Bændablaðið - 05.12.2019, Qupperneq 49
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 2019 49
unnar 1,5 til 3 metrar og er algengt
að blómstöngullinn sé átta til níu
metrar á hæð. Blómin mörg saman
í hnapp á blómstilknum, einn til átta
millimetrar að lengd, gulgræn að lit.
Aldinið oddmjór belgur sem inni-
heldur hátt í tuttugu svört og D-laga
fræ sem eru sex til átta millimetrar
á lengd. Frjóvgun A. americana fer
fram með skordýrum, fuglum og
leðurblökum en fræin dreifast að
mestu með vindi.
Plantan gengur undir ýmsum
nöfnum eins og til dæmis aldarjurt
og amerískt aloa. Aldarjurtarheiti
er dregið af þeirri trú að plantan lifi
í að minnsta kosti eina öld en trúin
er tilkomin að því hversu langan
tíma tekur plöntuna að blómstra.
Almennt lifa einstaka plöntur í 10 til
40 ár. Amerískt aloa er seinni tíma
heiti og vísar til útlitslegra líkinda
Ageve tegunda við Aloa tegundir
sem finnast í Afríku. Útlitsleg lík-
indi þeirra stafa af aðlögun að svip-
uðum umhverfisaðstæðum í tveimur
heimsálfum fremur en líffræðilegum
skyldleika.
A. americana var flutt til Suður-
Evrópu um miðja sextándu öld og
hefur aðlagast vel. Auk þess sem
hún hefur gert sig heimakomna í
náttúrunni víða við Miðjarðarhafið,
í Afríku, á Indlandi, Kína, Taílandi og
í Ástralíu þar sem hún hefur slæðst
út frá ræktun.
Undur náttúrunnar
Árið 1843 segir bandaríski sagn-
fræðingurinn William H. Prescott í
bók sinn The History of the Conquest
of Mexico að agave-plantan sé eitt af
kraftaverkum náttúrunnar.
Hann segir meðal annars í laus-
legri þýðingu að pýramídalaga blóm-
in teygja sig hátt upp úr kórónulaga
laufkransinum sem þekja margar
ekrur af flatlendi. Úr brotnum eða
sárum á blöðunum vætlar þykkur
vökvi sem vinna má úr pappír. Safi
blaðanna er gerjaður og úr honum
búinn til áfengur drykkur sem inn-
fæddir eru mjög hrifnir af. Laufið er
auk þess notað sem efniviður í ódýrt
húsaskjól og úr þeim eru unnar trefj-
ar í sterka kaðla og klæði. Nálar og
títuprjónar eru búnir til úr þyrnum
blaðanna. Úr rótunum, séu þær rétt
eldaðar, má búa til hollan og góðan
mat. Agave er sem sagt allt í senn
fæða, drykkur, klæðnaður og efnivið-
ur til að skrifa á. Með sanni má segja
að náttúran hafi aldrei áður sett saman
á einum stað eins mikið af þægindum
og menningu manninum til gagns.
Saga og goðsagnir
Talið er að fyrstu agave-plönturnar
eða forverar þeirra hafi komið fram
á sjónarsviðið fyrir um 60 milljónum
ára. Agave-plöntu var þó ekki lýst á
prenti fyrr en árið 1577 af landvinn-
ingamanninum Francisco Hernándes
og minnist hann í skrifum sínum
einnig á áfengan drykk sem unninn
er úr plöntunni.
Sagan segir að Astekar hafi
fyrst bruggað vægt áfengi úr safa
plöntunnar á árunum milli 1172 og
1291 eftir að þeir settust að í Mið-
Ameríku. Astekar notuðu mjöðinn
við trúarathafnir og áttu sína eigin
drykkjugyðju sem hét Mayahuel
og þótti henni sopinn góður eins og
getið er í söngvum og ljóðum. Til er
veggmynd sem sýnir Mayahuel gefa
sauðdrukknum kanínubörnum sínum
brjóst. Samkvæmt goðafræði Asteka
átti gyðjan 400 kanínubörn og rann
mjöðurinn Metl í æðum hennar og
voru sífullu kanínubörnin sögð vera
guðir vímunnar.
Í einni goðsögn um Mayahuel
segir að gyðjan hafi verið gift
guðinum Petácatl sem var skapari
og verndari alls plöntulífs á jörðinni.
Þar segir að gyðjan hafi 400 brjóst,
eitt fyrir hvert af kanínubörnum
hennar. Mayahuel er sögð einstaklega
lokkandi og að guðinn Quetzalcoatl,
skapari mannsins, hafi náð að heilla
hug hennar til framhjáhalds. Þegar
Petácatl kemst að framhjáhaldinu
verður hann svo æfur af reiði að
Mayahuel og Quetzalcoatl flúðu
frá guðaheimum til jarðarinnar og
földu þau sig í plöntumynd. Þegar
Tzinzinmilt langamma Mayahuel
kemst að framhjáhaldinu og flótt-
anum eyðir hún barnabarninu með
eldingu og Quetzalcoatl grefur ösk-
una og upp af henni vex agave-plant-
an.
Flest bendir til að áfengi hafi
verið bruggað úr plöntunni löngu
fyrir komu Asteka til Mið-Ameríku.
Apache og fleiri ættflokkar indíána
á suðvestursvæðum Bandaríkjanna
brugguðu einnig áfengi úr agave og
neyttu þess við hátíðleg tækifæri og
við trúarathafnir.
Í Mexíkó hefur lengi loðað við
áfengi sem unnið er úr agave að það
sé lostaörvandi.
Sænski grasafræðingurinn Carl
Linnaeus gaf ættkvíslinni heiti sitt
Agave eftir eintaki af A. americana
árið 1753. Heitið kemur úr grísku
agauos sem þýðir aðdáunarverður og
vísar til blómstilksins. Tegundarheitið
americana vísar til uppruna plöntunn-
ar.
Í dag er tegundinni skipt í tvær
undirtegundir og þrjá varianta A.
americana subsp. americana var.
americana, A. americana subsp.
americana var. expansa, A. americana
subsp. americana var. oaxacensis og
A. americana subsp. protamericana.
Nytjar
Nytjar á agave eru margs konar
og plantan meðal annars notuð til
skrauts, sem fóðurjurt, til lækninga
og til að hefta uppblástur. Auk þess að
henni er plantað sem lifandi girðingu
til að halda villtum dýrum frá nytja-
plöntum og búsmala.
Elstu heimildir um nytjar agave
til matar eru átta þúsund ára gamlar
minjar um ristuð blöð plöntunnar sem
fundust í hellum í Tehucán í Mexíkó.
Minjar benda einnig til að plantan hafi
lengi einnig verið notuð til vefnaðar
og til að framkalla vímu. Efni sem
unnið var úr plöntunni var einnig
notað til að lama fiska á afmörkuðum
svæðum í tjörnum og vötnum til að
auðvelda veiðar á þeim.
Allir hlutar plöntunnar eru nýttir.
Langir og trénaðir blómstönglar eru
hafðir sem þakuppistöður, sperrur og
sem girðingastaurar og í Ástralíu er
búið til úr þeim hljóðfærið digerlídú
eða drunupípa. Ungir og ferskir stilkar
sem eru steiktir á pönnu eru sagð-
ir sætir og bragðgóðir. Fersk og ný
útsprungin blómin þykja bragðgóð.
Safi laufanna er sagður bakteríu-
drepandi og draga úr bólgum en hann
er einnig sagður geta valdið sárum
sviða í húð. Úr laufi og rótum eru
unnar ýmiss konar tiktúrur sem not-
aðar eru við margs konar mannamein-
um, eins og snákabiti, fótsveppum,
kynsjúkdómum, liðagigt og niður-
gangi svo dæmi séu tekin.
Úr blöðum nánast allra aga-
ve-tegunda eru unnar trefjar í klæði,
teppi, körfur, kaðlar, reipi og þráður til
sauma. Úr blöðum og rótum er einnig
unnin sápa. Tegundin A. sisalana er
stundum kölluð sisalhampur.
Innfæddir á svæðum þar sem aga-
ve-tegundir vaxa villtar hafa lengi nýtt
plönturnar til matar. Úr blöðunum
var meðal annars unnið eins konar
blaðkjöt sem aðgreint var frá trefjun-
um. Blaðkjötið var síðan annaðhvort
bakað í brauð sem mátti þurrka til
geymslu eða soðið í súpu og borðað
ferskt.
Úr blómunum er unnið aga-
ve-sýróp, auk þess sem úr blómunum
er unnið svokallað hunangsvatn.
Áfengir drykkir eins og tekíla,
meskal og pulque eru unnir úr safa
agave-plantna. Upphaflega var safa
til framleiðslunnar safnað með því
að skera burt blómstöngulinn gerja
safann sem úr sárinu rann. Í dag er
tekíla unnið úr stofni plöntunnar. Eftir
að blöðin hafa verið skorin burt er
stofninn hæghitaður í ofni og safinn
úr honum pressaður burt og látinn
gerjast í tré- eða stáltunnu. Því næst
er safinn eimaður einu sinni eða oftar
til að auka hreinleika framleiðslunnar
þrátt fyrir að sumir segi að endur-
tekin eimun dragi úr bragðgæðum
tekílasins.
Samkvæmt samningi sem stjórn-
völd í Mexíkó og Evrópusambandið
gerðu með sér árið 2001 er 100%
hreint tekíla einungis framleitt úr
yrki A. tequilana sem kallast 'Weber's
Blue'.
Margaríta með saltrönd
Þjóðardrykkur Mexíkó er 40% tekíla
og sagt er að hanastélsdrykkurinn
margaríta hafi orðið til á bar í bænum
Tijunna í þeim tilgangi að fá kven-
kyns Ameríkana til að drekka tekíla.
Margarítakokteill samanstendur af 60
millilítrum af tekíla og 30 millilítrum
af appelsínu- eða limesafa og klaka og
að sjálfsögðu saltrönd á þar til gerðu
margarítaglasi.
Ræktun
Auðvelt er að rækta A. americana af
fræi en yfirleitt er plöntunni fjölgað af
ungplöntum sem vaxa af stofni móð-
urplöntunnar. Sé plantan ræktuð af
fræi getur það tekið fræin um þrjá
mánuði að spíra.
Í potti þrífst plantan best í sendn-
um og vel framræstum jarðvegi og
beinni sól.
Talsverðar vonir eru bundnar við
ræktun á agave í framtíðinni þar sem
plantan er einstaklega þurrkþolin og
nægjusöm og gæti því reynst góð
nytjaplanta, fæða, klæðnaður og lyf,
á svæðum sem talið er að munu líða
vatnsskort vegna hlýnunar andrúms-
loftsins.
Agave í Íslandi
Fremur litlum sögum fer af agave eða
þyrnililju sem pottaplöntu hér á landi
þótt þær leynist án efa einhvers staðar.
Vinsældir agave-síróps hafa verið að
aukast og nota margir það í staðinn
fyrir sykur til baksturs og út í te.
Af eigin reynslu er drykkja á tekíla
ekki almenn á Íslandi nema þá helst
sem hluti af hanastéli. Mörgum og
reyndar mér sjálfum þykir þó gott að
slamma eitt og eitt tekílaskot annað
slagið með salti og sítrónu.
Agave attenuata er upprunnin í Mexíkó en fremur sjaldgæf í náttúrunni.
Agave-uppskera.
Plantan skorin fyrir vinnslu.
Stofninn er hægsoðinn í ofni til að
mýkja hann áður en safinn er press-
aður úr honum.
Fullkomin margaríta.
Gyðjan Mayahuel er verndari Agave
plantna.
Í nærmynd sjást trefjar plöntunnar
vel.
Sandalar sem ofnir eru úr agave-
þráðum þykja einstaklega hljóðlátir.