Bændablaðið - 05.12.2019, Síða 50
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 201950
Út er komin hjá
Vest firska forlaginu
Þorp verður til á
Flateyri 3. bók eftir
Jóhönnu Guðrúnu
Kristjánsdóttur. Með
þessari þriðju bók um
Flateyri hefur Jóhanna
Guðrún lokið frásögn
sinni af mönnum og mál-
efnum á heimaslóðum í
árdaga byggðar þar á
mölinni.
Flateyri varð til sem
þorp á síðari hluta 19. aldar.
Eins og í öðrum þorpum við
sjávarsíðuna allt í kringum
landið, voru fiskveiðar og
vinnsla aflans, ásamt þjón-
ustu við nærliggjandi sveitir,
grundvöllur byggðarinnar.
Undirstaða verksins er
fréttaefni úr sendibréfum
sem rituð voru um aldamótin
1900. Þau eru hluti tveggja
bréfasafna sem hafa legið í
ferðakofforti og kommóðu-
skúffu á Flateyri allar götur
síðan.
Í bókunum þremur er
fjallað um mannlíf, menn-
ingu og ýmsa aðra sögulega þætti á
Flateyri og nágrenni á liðnum tímum.
Margar teikningar eftir Freydísi
Kristjánsdóttur prýða verkið og
Ómar Smári Kristinsson kemur líka
þar við sögu. Einnig ljósmyndir frá
ýmsum tímum.
Þess skal getið að Vestfirska
forlagið gerir það ekki endasleppt
við Flateyri í komandi jólabóka-
flóði. Í nóvember mun nefnilega
koma út hjá forlaginu bókin Er það
hafið eða fjöllin? Um Flateyri og
fólkið þar eftir Sæbjörgu Freyju
Gísladóttur. Í henni er fjallað um
Flateyri og íbúa þar frá ýmsum
hliðum.
Vestfirska forlagið, sem
stofn að var á Hrafnseyri fyrir
25 árum, hefur nú gefið út yfir
400 bækur, án þess að nokkur
maður hafi tekið eftir því, eins
og Hallgrímur Sveinsson út-
gefandi orðaði það af mikilli
hógværð. Flestar fjalla þær
um Vestfirði og það merkilega
fólk sem þar hefur búið í tímans
rás. Kennir þar margra grasa.
Sumir myndu nú telja að nóg
væri komið og lýsti forlagið
því yfir fyrir nokkru að það væri hætt
að gefa út bækur. Þær halda samt
áfram koma út.
Margir Íslendingar ganga með
rithöfundinn í maganum og ofan
í skúffum víða um land liggja
óbirt handrit, sem mörg hver
ættu fullt erindi á prent. Þannig
er því einmitt varið með barna-
bókina Sólskin eftir Guðríði
Baldvinsdóttur, skógfræðing og
sauðfjárbónda í Kelduhverfi.
„Mig langaði til að skrifa bók
sem fjallaði um sveitakrakka og
reynsluheim þeirra. Það kemur
afskaplega lítið út af slíkum bókum.
Þær bækur sem á annað borð fjalla
um sveitalífið eru yfirleitt skrifaðar
útfrá augum gestkomandi. Krakkar
í sveitum þurfa líka að geta lesið
bækur þar sem þeir samsama sig
sögusviðinu.
Samband 11 ára stelpu og for-
ystugimbrarinnar hennar er í for-
grunni, en auðvita blandast ýmislegt
annað við frásögnina; æsispennandi
ævintýri sem tengist skítakjallara,
hestatamningar með hjálp YouTube,
upplifun krakka af fámennum skól-
um og togsreitu vegna mögulegra
flutninga aðalsöguhetjunnar úr
sveitinni, svo fátt eitt sé nefnt.
„Ég er mjög ánægð með að
Bjarni Harðarson hjá Bókaútgáfunni
Sæmundi var til í að gefa bókina
mína út því útgáfa barnabóka er
yfirleitt meira stunduð af hugsjón en
með arðsemi í huga. Bókin er komin
í verslanir og ég er mjög spennt yfir
viðtökunum. Hver veit nema fleiri
bækur úr sögusviði sveitanna líti
dagsins ljós í framtíðinni. “
Texti á bókarkápu
Sólskin með vanillubragði er saga
um nútíma sveitakrakka. Lífið
snýst um endalausa sumardaga,
týndar hænur, óþæga heimalninga,
snjalltæki og skítmokstur.
Tindra Sól er tæplega ellefu ára
stelpuskotta sem býr hjá ömmu
sinni í sveitinni. Besti vinur hennar
er uppátækjasöm og svolítið hrekkj-
ótt forystugimbur. Hrekkjunum fær
frændi Tindru að kynnast þegar
hann kemur í sumardvöl, en saman
lenda þau þrjú í ýmsum skondnum
ævintýrum. Einn skugga ber þó á,
Tindra á að flytja til mömmu sinnar
í Svíþjóðar um haustið!
Guðríður Baldvinsdóttir er
skógfræðingur og sauðfjárbóndi í
Kelduhverfi. Sólskin með vanillu-
bragði er hennar fyrsta bók. Hér
fjallar hún um einstaka vináttu milli
krakka og dýra sem fléttast saman
við raunsæjar lýsingar á lífinu í
sveitinni.
Stutt kaflabrot
En þar mátti þó sjá ummerki
að eitthvað hefði gengið á. Það
var búið að drekka alla mjólkina
úr kattadallinum, sem ævinlega
stóð hálf fullur. Draga brauðpok-
ann út á gólf og dreifa úr honum
út um allt, brauðsneiðarnar voru
þó ósnertar, ja, eða því sem næst.
Það var búið taka lítinn bita úr
horninu á sumum og miðjunni
á öðrum. Svört, ilmandi lamba-
sparðaslóð lá eftir gólfinu og inn
á gang þar sem hún endaði í litlum
ljósgulum pissupolli. Nei, hugsaði
Tindra, þetta er enginn ilmur, þetta
skapaði bara réttan ilm úti í fjár-
húsum. Hérna myndi amma kalla
þetta fýlu – fjárhúsafýla átti ekki
heima inni í íbúðarhúsi. Nógu oft
var hún búin að skammast í Tindru
fyrir að koma
í fjárhúsafötunum inn í húsið.
Tindra var núna farin að læð-
ast, hún var ekki viss um að hún
vildi kíkja inn í fleiri herbergi. Hún
ákvað að fresta því að sjá fleiri
skammarstrik Vanillu og náði sér í
eldhúspappír og þreif upp spörðin
og pissið eftir hana. Setti heilu
brauðsneiðarnar aftur í pokann í
þeirri von að amma tæki ekki eftir
því að næstum helminginn vant-
aði. Skipti svo þeim sem búið var
að narta í milli hænsnadallsins og
Lappa, sem lá hinn rólegasti á hlað-
inu eins og honum gæti ekki verið
meira sama um eyðilegginguna
innandyra.
Nú var ekki hægt að fresta þessu
lengur. Tindra hafði heyrt svolítil
læti innan af baði meðan hún var
að taka til og setti nú örlitla rifu
á dyrnar og kíkti inn. Hún byrj-
aði að flissa, það heyrðist skrjáf,
svo opnaði Tindra dyrnar upp á
gátt og byrjaði að hlæja upphátt.
Skrjáfið jókst og eftir dálitla stund
og mikið brölt birtist höfuðið á
Vanillu upp úr stórum haug af
klósettpappír. Haugurinn af ljós-
bleikum þriggjalaga dúnmjúkum
klósettpappír náði frá klósettinu,
alveg að baðkarinu og fram fyrir
vaskamottuna. Vanillu hafði tekist á
einhvern óskiljanlegan hátt að festa
sig í klósettpappírnum og síðan í
tilraun til að losa sig dregið hvert
einasta snitti af heilli klósettrúllu út
á gólf og í einn ristastóran haug þar
sem hún var miðpunkturinn. Vanilla
jarmaði með aumingjalegu, komdu
og bjargaðu mér jarmi. Tindra var
alveg magnvana af hlátri og hún lak
niður á gólfið. Þar lá Tindra alveg
jafn ósjálfbjarga og Vanilla þegar
amma kom að þeim.
Sólskin með vanillubragði
– barnabók fyrir 6–10 ára
Guðríður Baldvinsdóttir.
Guðbrandur Gíslason hefur
sent frá sér bókina Óbyrjur
tímans. Undirtitill bókarinn-
ar er: Um afskipti dauðans af
ástinni. Bókin er
ekki stór í sniðum,
eða 96 síður, en er
þó engin hrað-
lestrarbók. Segir
höfundur reyndar
sjálfur að sumum
þyki hún heldur
ekki auðmelt og
að hún krefjist
talsverðar íhug-
unar. Eða eins og
segir í inngangi;
„Sumt í þessari
bók er satt. Það
sem er logið er þó
sannast sagna.“
Guðbrandur
lauk MA prófi í
almennum málvísindum og bók-
menntafræði frá Kölnarháskóla
í Þýskalandi 1974. Hann hefur
starfað við blaðamennsku, m.a.
við Morgunblaðið, Alþýðublaðið
og Sjómannablaðið Víking.
Auk þýðinga liggja eftir hann
ljóð og sögur sem birst hafa
í tímaritum. Hann kenndi við
Samvinnuskólann á Bifröst frá
1974-76 og setti síðar upp og
stýrði Rekspalar námskeiðunum
í samvinnu við Endurmenntun
Háskóla Íslands, sem hartnær
fjögur þúsund
opinberir starfs-
menn sóttu.
Guðbrandur var
einnig fyrsti fram-
kvæmdast jór i
Kvikmyndasjóðs.
Auk fararstjórn-
ar erlendis áður
fyrr hefur hann
á undanförnum
árum sýnt ferða-
mönnum landið.
Fyrst heyrist
dynkurinn, svo
stunan. Ungur
drengur kemur í
hvítt hús. Móðir
hans flýr, faðirinn flæðir út í haf.
Lík rekur á land. Í Bandaríkjunum
kynnist hann ýmiskonar ást.
Áþreifanlega. Heima á Íslandi
veiðir prestur heilagfiski út af
Arnarstapa. Í þessum samtengdu
sögum lýsir höfundur því hvernig
einstök atvik í æsku móta þann
sem fyrir þeim verður. /HKr.
Óbyrjur tímans
Geisladiskurinn Áramóta- og
þrettándagleði eflir sannar-
lega áramótastemninguna á
hverju heimili. Hann snýst um
einstaka áramótamenn ingu
okkar Íslendinga. Áramóta-
geisladiskurinn er sá eini sem
til er á Íslandi (jólaplötur eru
til í tugum.) Þannig að útgáfan
var tímamót.
Fólk hefur tekið diskinum fagn-
andi og með þakklæti og hefur
hann fengið afar góða dóma. Því
væri gaman að hann kæmist inn á
sem flest heimili landsins.
Úgáfan er algjört einkafram-
tak Sigríðar Önnu Einarsdóttur og
tilgangurinn var að halda áramóta-
menningunni í heiðri.
Hann er með tónlist, sögum,
ljóðum, leikþætti og sögulegum
fróðleik. Samtals tveir diskar í
setti, alls 107 mínútur að lengd,
að auki fylgir bæklingur með text-
um og upplýsingum um flytjendur.
Diskarnir hafa allt það að geyma
sem skapar áramóta- og þrett-
ándastemningu á hverju íslensku
heimili.
Á disknum eru 12 tónlistar atriði
sem tengjast áramótunum og þrett-
ánda, svo sem Máninn hátt á himni
skín, Nú er glatt hjá álfum öllum,
Ólafur liljurós, Nú er glatt í hverj-
um hól, Stóð ég úti í tungsljósi,
Nú árið er liðið o.fl.
Allt efni var sérstaklega tekið
upp í tilefni útgáfunnar nema 3 lög.
Þeir sem koma að flutningi
tónlistar eru Kór Neskirkju,
Kór Áskirkju, Árneskórinn,
Lúðrasveitin Svanur, Kynslóða-
kórinn þ.e. kór elliheim-
ilisins að Hrafnistu í
Hafnafirði, félagar úr
kór Neskirkju, nem-
endur úr Söngskóla
Sigurðar Demetz, ung-
lingakór fyrrum bekkj-
arfélagar úr Melaskóla,
félagar úr barnakór
Hafnafjarðarkirkju.
Snorri Wium tenór,
Guðbjörg R. Tryggva-
dóttir sópran, Örn
Magnússon píanó-
leikari og organisti,
Hólmfríður Sigurðardóttir píanó-
leikari, Guðmundur Hafsteins son
trompetleikari, Elísa Guðmars-
dóttir trompetleikari, Jóhann
Baldvinsson orgelleikari, Stein-
grím ur Þórhallsson kórstjóri og
Magnús Ragnarsson kórstjóri.
Flutt eru sjö nýársljóð eftir sex
höfunda, þá er að finna þjóðsögur
sem tengjast áramótum og þrett-
ánda, ein gerist á gamlárskvöld,
þrjár á nýársnótt og þrjár á þrett-
ándanum.
Fjallað er um hvernig áramóta-
hefðir hafa breyst í gegnum aldirn-
ar og um sögu þrettándans. Einnig
er fjallað um áramótabrennur og
þjóðtrú sem tengist áramótum og
þrettánda hér á landi.
Loks hefur Áramóta- og þrett-
ándagleðin að geyma leikþátt
sem gerist á gamlárskvöld og
nýársnótt. Leikþátturinn gerist
í nútímanum en byggir á þjóð-
trúnni.
Þeir sem koma að þjóðlegum
fróðleik og flutningi ljóða og gerð
leikþáttar eru Árni Björnsson
doktor í menningarsögu,
Hjalti Rögnvaldsson leikari,
Ragnheiður K. Steindórsdóttir
leikari, Jón Hjartarson leikrita-
skáld, Bryndís Petra
Bragadóttir leikari,
Jón Júlíusson leik-
ari, Hallfríður Þóra
Tryggvadóttir leik-
ari og Sigurþór A.
Heimisson leikari. Páll
Orri Pétursson sá um
upptökur.
Sigríður Anna Ein-
ars dóttir er listrænn
stjórnandi og framleið-
andi diskanna.
Áramótageisla disk-
inn er hægt að panta
í gegnum netfangið aramot-
anna@gmail.com og einnig hjá
12 Tónum sem var valin besta
plötu- og geisladiskabúð í heimi
á síðasta ári.
Áramótageisladiskur
Sigríður Anna
Einarsdóttir
Þorp verður til á Flateyri – 3. bók
BÆKUR - TÓNLIST& MENNING