Bændablaðið - 05.12.2019, Síða 56
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 201956
Í upphafi árs 2018 hófu heima-
menn í Biskupstungum í góðu
samstarfi við ferða- og sam-
göngunefnd Landssambands
hestamannafélaga, að vinna að
stóru verkefni er varðar kort-
lagningu og merkingu reiðleiða á
Biskupstungnaafrétti.
Tildrög verkefnisins má rekja
til vinnu við nýtt aðalskipulag
Bláskógabyggðar. Í þeirri vinnu
var ítarlega lagst yfir reiðleiðir
á afréttinum, sumum leiðum var
lokað, aðrar gerðar takmarkandi, þ.e.
einungis má fara þær með hesta í
taumi, ekki rekstra og sums staðar
hefur umferð ríðandi manna verið
beint af viðkvæmum gróðursvæðum.
Við auglýsingu aðalskipulagsins
gerði ferða- og samgöngunefnd LH
athugasemdir við sumar af þeim
breytingum á reiðleiðum sem við
lögðum til. Brugðist var við þeim
athugasemdum með því að funda
með fulltrúum ferða- og sam-
göngunefndar LH. Það er skemmst
frá að segja að hvergi steytti á í okkar
samræðum. Allir voru sammála um
að með markvissum merkingum,
kortlagningu reiðleiða, stýringu,
góðum og aðgengilegum upplýs-
ingum um hvernig ferðast skal um
hálendið, þá geti hestamenn og allir
þeir sem njóta vilja hálendsins farið
um það án þess að raska viðkvæmum
svæðum.
Niðurstaða fundarins var að
merkja allar reiðleiðir á afréttinum
og auk þess að koma upp fræðslu/
upplýsingaskiltum við helstu áninga-
staði. Alls urðu vegprestarnir 15 og
vegvísar á þeim 42. Syðsti presturinn
er við afréttarmörk, rétt innan við
Gullfoss og svo rekja þeir sig um
allan afrétt, alla leið inn á Hveravelli.
Á hverjum vegpresti er númer
(póstnr. svæðisins og svo hlaupandi
nr. 801.01 – 15). Vegprestarnir eru
hnitsettir í kortasjá LH, Neyðarlínan
er með öll hnit úr kortasjánni þ.e.
reiðleiðir, vegpresta, skála ofl.
þannig að öryggi þeirra sem ferð-
ast um hálendið eykst til muna.
Fræðslu-og upplýsingaskiltin eru
staðsett í Fremstaveri, Árbúðum og
Svartárbotnum. Einnig í Sóleyjardal
til upplýsinga fyrir þá sem fara um
Þjófadali. Á þessum skiltum er kort
af nærliggjandi svæði, örnefni, stutt
ágrip um sögu viðkomandi svæð-
is og upplýsingar um það hvernig
ferðast á um hálendið, skiltin eru
bæði á ensku og íslensku. Kortin á
skiltunum mynda saman eina heild
frá byggð í Biskupstungum og norð-
ur í Guðlaugstungur.
Allt unnið í sjálfboðavinnu
Öll vinna við verkefnið var unnin í
sjálfboðavinnu. Hönnun skiltanna,
textagerð, þýðing yfir á ensku,
fundarseta, keyrsla í kringum verk-
efnið og uppsetning skiltanna var
unnið í sameiningu Tungnamanna
og ferða- og samgöngunefndar LH,
enginn þáði laun fyrir. Eini kostnað-
urinn við verkefnið var framleiðsla
skiltanna, sá kostnaður var greiddur
af LH, tæpar 2 milljónir. Það var svo
á björtum og fögrum degi í lok ágúst
2018 sem vaskir Tungnamenn héldu
inn á Biskupstungnaafrétt og hófu
uppsetningu skiltanna.
Á liðnu sumri var uppsetningu
skiltanna haldið áfram, nú með
liðsinni félaga úr Björgunarsveit
Biskupstungna. Afrétturinn er víð-
feðmur og ekki einfalt að komast
að sumum þeirra staða sem skilti
voru sett. Þess var gætt í hvívetna
að raska ekki að neinu leyti þeim
stöðum sem um var farið og voru
skiltin sett niður með handstaurabor
og skóflum og sums staðar gengið
um langan veg með allan búnað til
að koma skiltunum á rétta staði.
Góður aðbúnaður á Kili
Eins og flestum er kunnugt liggur
Kjalvegur um Biskupstungnaafrétt.
Með tilkomu skiltanna er aðgengi
og öryggi þeirra sem ferðast um
Kjöl með því allra besta sem
þekkist á hálendi Íslands, ekki ein-
göngu hestamanna því mikill fjöldi
göngufólks fer um Kjöl og munu
vegvísarnir og upplýsingaskiltin
ekki síst nýtast þeim hópi.
Hvað annnan aðbúnað varðar
fyrir þá sem ferðast um afréttinn
þá erum við Tungnamenn stöðugt
að bæta aðstöðuna. Í sumar var
nýtt hesthús reist í Fremstaveri í
sjálfboðavinnu af Tungnamönnum,
sveitarfélagið styrkti verkefnið lítil-
lega með fjármagni til efniskaupa.
Nú eru á afréttinum þrír góðir fjalla-
skálar, hesthús og góð gerði við þá
alla. Alls staðar eru góð vatnssalerni
og í Árbúðum og Svartárbotnum
(Gíslaskála) eru sturtur. Einnig er
hesthús og gerði við Hvítá, norð-
an við Bláfell. Skálarnir eru í eigu
sveitarfélagsins en reknir af heima-
fólki sem á og rekur ferðaþjónustu-
fyrirtækið Gljástein og hefur um
árabil sinnt viðhaldi og rekstri skál-
anna af miklum myndarbrag.
Mikil uppbygging
fyrir lítið fjármagn
Tungnamenn bera sterkar taugar
til hálendisins, svo miklar að al-
gengt er að einstaklingar gefi
fjármagn í hin ýmsu verkefni sem
ráðist er í á afréttinum. Einnig er
löng hefð fyrir margs konar sjál-
boðavinnu við hin ýmsu verkefni.
Landgræðslufélag Biskupstungna,
sauðfjárbændur, grunnskólabörn og
ýmis félagasamtök hafa í áratugi
stundað öflugt landgræðslustarf og
má víða á afréttinum sjá árangur af
þeirri vinnu.
Kolefnisbinding með skógrækt
í samvinnu við ferðaþjónustufyrir-
tæki og skólaskógar sem skólabörn
sinna, eru dæmi um metnaðarfullt
starf á afréttinum. Þá má einnig
nefna göngubrú yfir Svartá við
Árbúðir sem tekin var í notkun
2017. Brúin var hönnuð og smíðuð
af miklu hugviti heimamanna, í
sjálfboðavinnu. Hún er þannig gerð
að hægt er að draga hana á land að
hausti þannig að hún verði ekki fyrir
tjóni yfir vetur og vor. Þá er rétt að
geta þess að allir skálarnir, hesthús-
in og gerðin eru að langmestu leyti
reist í sjálfboðavinnu.
Það er von okkar Tungnamanna
að afrétturinn verði áfram í okkar
umsjá. Við höfum sinnt honum
vel og byggt upp aðbúnað sem er
með því besta sem gerist á hálendi
Íslands, fyrir lágmarks fjármagn. Öll
þessi uppbygging og góði aðbúnað-
ur nýtist svo landsmönnum öllum,
ekki síst þeim fjölmörgu erlendu
gestum sem ferðast um Kjöl.
Þakkir til ferða- og
samgöngunefndar LH
Að endingu vil ég þakka ferða- og
samgöngunefnd Landssambands
hestamannafélaga fyrir gott sam-
starf, sérstaklega þeim Halldóri
H. Halldórssyni og Sæmundi
Eiríkssyni. Það er miklill mannauður
í þeim félögum og þekking sem
þeir búa yfir varðandi kortlagn-
ingu reiðleiða um allt land. Það er
mikill metnaður hjá hestamönnum
að ganga vel um landið þegar um
það er ferðast.
Að koma að slíku verkefni með
okkur Tungnamönnum, sýnir að
hestamenn bera mikla virðingu fyrir
hálendi Íslands og vilja leggja sitt
af mörkum til verndar því. Þetta
góða samstarf Tungnamanna og LH
er gott dæmi um verkefni sem hægt
er að vinna í sátt og samlyndi með
góðum árangri fyrir lítið fjármagn
ef tekið er tillit til sjónarmiða og
þarfa mismunandi hópa, í stað þess
að fáir aðilar taki sér alræðisvald
með boðum og bönnum.
Guðrún S. Magnúsdóttir
Arctic Trucks Ísland ehf.
Kletthálsi 3
110 Reykjavík
Sími 540 4900
Netfang info@arctictrucks.is
Vefur www.arctictrucks.is
JEPPADEKK.IS
Vönduð amerísk jeppadekk sem
henta frábærlega fyrir íslenskar
aðstæður. Stærðir 29”-44”.
38” radíaldekk
sem hefur
margsannað
sig á hálendi
Íslands.
44” radíal.
Hannað í
samstarfi
Arctic Trucks
og Nokian.
35” radíal.
Frábært
neglt
vetrardekk!
kr. 39.900,- kr. 39.900,- kr. 49.900,- kr. 49.900,- kr. 49.900,-
FELGUR
Gott úrval
Margar stærðir
LESENDABÁS
Fyrirmyndarverkefni á Biskupstungnaafrétti
– Kortlagning og merkingar reiðleiða
Bræðurnir Egill og Ólafur Jónassynir frá Kjóastöðum grafa fyrir skiltunum í Svartárbotnum.
Göngubrú yfir Svartá.
Nýtt hesthús í Fremstaveri.Bræðurnir Egill og Ólafur Jónassynir við skilti í Árbúðum.