Bændablaðið - 05.12.2019, Qupperneq 56

Bændablaðið - 05.12.2019, Qupperneq 56
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 201956 Í upphafi árs 2018 hófu heima- menn í Biskupstungum í góðu samstarfi við ferða- og sam- göngunefnd Landssambands hestamannafélaga, að vinna að stóru verkefni er varðar kort- lagningu og merkingu reiðleiða á Biskupstungnaafrétti. Tildrög verkefnisins má rekja til vinnu við nýtt aðalskipulag Bláskógabyggðar. Í þeirri vinnu var ítarlega lagst yfir reiðleiðir á afréttinum, sumum leiðum var lokað, aðrar gerðar takmarkandi, þ.e. einungis má fara þær með hesta í taumi, ekki rekstra og sums staðar hefur umferð ríðandi manna verið beint af viðkvæmum gróðursvæðum. Við auglýsingu aðalskipulagsins gerði ferða- og samgöngunefnd LH athugasemdir við sumar af þeim breytingum á reiðleiðum sem við lögðum til. Brugðist var við þeim athugasemdum með því að funda með fulltrúum ferða- og sam- göngunefndar LH. Það er skemmst frá að segja að hvergi steytti á í okkar samræðum. Allir voru sammála um að með markvissum merkingum, kortlagningu reiðleiða, stýringu, góðum og aðgengilegum upplýs- ingum um hvernig ferðast skal um hálendið, þá geti hestamenn og allir þeir sem njóta vilja hálendsins farið um það án þess að raska viðkvæmum svæðum. Niðurstaða fundarins var að merkja allar reiðleiðir á afréttinum og auk þess að koma upp fræðslu/ upplýsingaskiltum við helstu áninga- staði. Alls urðu vegprestarnir 15 og vegvísar á þeim 42. Syðsti presturinn er við afréttarmörk, rétt innan við Gullfoss og svo rekja þeir sig um allan afrétt, alla leið inn á Hveravelli. Á hverjum vegpresti er númer (póstnr. svæðisins og svo hlaupandi nr. 801.01 – 15). Vegprestarnir eru hnitsettir í kortasjá LH, Neyðarlínan er með öll hnit úr kortasjánni þ.e. reiðleiðir, vegpresta, skála ofl. þannig að öryggi þeirra sem ferð- ast um hálendið eykst til muna. Fræðslu-og upplýsingaskiltin eru staðsett í Fremstaveri, Árbúðum og Svartárbotnum. Einnig í Sóleyjardal til upplýsinga fyrir þá sem fara um Þjófadali. Á þessum skiltum er kort af nærliggjandi svæði, örnefni, stutt ágrip um sögu viðkomandi svæð- is og upplýsingar um það hvernig ferðast á um hálendið, skiltin eru bæði á ensku og íslensku. Kortin á skiltunum mynda saman eina heild frá byggð í Biskupstungum og norð- ur í Guðlaugstungur. Allt unnið í sjálfboðavinnu Öll vinna við verkefnið var unnin í sjálfboðavinnu. Hönnun skiltanna, textagerð, þýðing yfir á ensku, fundarseta, keyrsla í kringum verk- efnið og uppsetning skiltanna var unnið í sameiningu Tungnamanna og ferða- og samgöngunefndar LH, enginn þáði laun fyrir. Eini kostnað- urinn við verkefnið var framleiðsla skiltanna, sá kostnaður var greiddur af LH, tæpar 2 milljónir. Það var svo á björtum og fögrum degi í lok ágúst 2018 sem vaskir Tungnamenn héldu inn á Biskupstungnaafrétt og hófu uppsetningu skiltanna. Á liðnu sumri var uppsetningu skiltanna haldið áfram, nú með liðsinni félaga úr Björgunarsveit Biskupstungna. Afrétturinn er víð- feðmur og ekki einfalt að komast að sumum þeirra staða sem skilti voru sett. Þess var gætt í hvívetna að raska ekki að neinu leyti þeim stöðum sem um var farið og voru skiltin sett niður með handstaurabor og skóflum og sums staðar gengið um langan veg með allan búnað til að koma skiltunum á rétta staði. Góður aðbúnaður á Kili Eins og flestum er kunnugt liggur Kjalvegur um Biskupstungnaafrétt. Með tilkomu skiltanna er aðgengi og öryggi þeirra sem ferðast um Kjöl með því allra besta sem þekkist á hálendi Íslands, ekki ein- göngu hestamanna því mikill fjöldi göngufólks fer um Kjöl og munu vegvísarnir og upplýsingaskiltin ekki síst nýtast þeim hópi. Hvað annnan aðbúnað varðar fyrir þá sem ferðast um afréttinn þá erum við Tungnamenn stöðugt að bæta aðstöðuna. Í sumar var nýtt hesthús reist í Fremstaveri í sjálfboðavinnu af Tungnamönnum, sveitarfélagið styrkti verkefnið lítil- lega með fjármagni til efniskaupa. Nú eru á afréttinum þrír góðir fjalla- skálar, hesthús og góð gerði við þá alla. Alls staðar eru góð vatnssalerni og í Árbúðum og Svartárbotnum (Gíslaskála) eru sturtur. Einnig er hesthús og gerði við Hvítá, norð- an við Bláfell. Skálarnir eru í eigu sveitarfélagsins en reknir af heima- fólki sem á og rekur ferðaþjónustu- fyrirtækið Gljástein og hefur um árabil sinnt viðhaldi og rekstri skál- anna af miklum myndarbrag. Mikil uppbygging fyrir lítið fjármagn Tungnamenn bera sterkar taugar til hálendisins, svo miklar að al- gengt er að einstaklingar gefi fjármagn í hin ýmsu verkefni sem ráðist er í á afréttinum. Einnig er löng hefð fyrir margs konar sjál- boðavinnu við hin ýmsu verkefni. Landgræðslufélag Biskupstungna, sauðfjárbændur, grunnskólabörn og ýmis félagasamtök hafa í áratugi stundað öflugt landgræðslustarf og má víða á afréttinum sjá árangur af þeirri vinnu. Kolefnisbinding með skógrækt í samvinnu við ferðaþjónustufyrir- tæki og skólaskógar sem skólabörn sinna, eru dæmi um metnaðarfullt starf á afréttinum. Þá má einnig nefna göngubrú yfir Svartá við Árbúðir sem tekin var í notkun 2017. Brúin var hönnuð og smíðuð af miklu hugviti heimamanna, í sjálfboðavinnu. Hún er þannig gerð að hægt er að draga hana á land að hausti þannig að hún verði ekki fyrir tjóni yfir vetur og vor. Þá er rétt að geta þess að allir skálarnir, hesthús- in og gerðin eru að langmestu leyti reist í sjálfboðavinnu. Það er von okkar Tungnamanna að afrétturinn verði áfram í okkar umsjá. Við höfum sinnt honum vel og byggt upp aðbúnað sem er með því besta sem gerist á hálendi Íslands, fyrir lágmarks fjármagn. Öll þessi uppbygging og góði aðbúnað- ur nýtist svo landsmönnum öllum, ekki síst þeim fjölmörgu erlendu gestum sem ferðast um Kjöl. Þakkir til ferða- og samgöngunefndar LH Að endingu vil ég þakka ferða- og samgöngunefnd Landssambands hestamannafélaga fyrir gott sam- starf, sérstaklega þeim Halldóri H. Halldórssyni og Sæmundi Eiríkssyni. Það er miklill mannauður í þeim félögum og þekking sem þeir búa yfir varðandi kortlagn- ingu reiðleiða um allt land. Það er mikill metnaður hjá hestamönnum að ganga vel um landið þegar um það er ferðast. Að koma að slíku verkefni með okkur Tungnamönnum, sýnir að hestamenn bera mikla virðingu fyrir hálendi Íslands og vilja leggja sitt af mörkum til verndar því. Þetta góða samstarf Tungnamanna og LH er gott dæmi um verkefni sem hægt er að vinna í sátt og samlyndi með góðum árangri fyrir lítið fjármagn ef tekið er tillit til sjónarmiða og þarfa mismunandi hópa, í stað þess að fáir aðilar taki sér alræðisvald með boðum og bönnum. Guðrún S. Magnúsdóttir Arctic Trucks Ísland ehf. Kletthálsi 3 110 Reykjavík Sími 540 4900 Netfang info@arctictrucks.is Vefur www.arctictrucks.is JEPPADEKK.IS Vönduð amerísk jeppadekk sem henta frábærlega fyrir íslenskar aðstæður. Stærðir 29”-44”. 38” radíaldekk sem hefur margsannað sig á hálendi Íslands. 44” radíal. Hannað í samstarfi Arctic Trucks og Nokian. 35” radíal. Frábært neglt vetrardekk! kr. 39.900,- kr. 39.900,- kr. 49.900,- kr. 49.900,- kr. 49.900,- FELGUR Gott úrval Margar stærðir LESENDABÁS Fyrirmyndarverkefni á Biskupstungnaafrétti – Kortlagning og merkingar reiðleiða Bræðurnir Egill og Ólafur Jónassynir frá Kjóastöðum grafa fyrir skiltunum í Svartárbotnum. Göngubrú yfir Svartá. Nýtt hesthús í Fremstaveri.Bræðurnir Egill og Ólafur Jónassynir við skilti í Árbúðum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.