Bændablaðið - 05.12.2019, Síða 57
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 2019 57
Kerckhaert býður upp á
mikið úrval af skeifum
fyrir öll hestakyn en
DF skeifurnar sem eru
sérhannaðar fyrir íslenska
hestinn eru til í tveimur
breiddum; 20mm og 22mm,
og þremur þykktum; 6mm,
8mm og 10mm.
Ekki láta hestinn þinn
vera í krummafót – notaðu
Kerckhaert!
Verslun Breidd
afgreiðslutími
Virkir dagar 08:00 - 18:30
Laugardagar 10:00 - 18:00
Sunnudagar 11:00 - 17:00
LANDBÚNAÐARHÁSKÓLI ÍSLANDS
Efling starfsemi Jarðræktarmiðstöðvar
Landbúnaðarháskóla Íslands
– Fjölgun starfsmanna og nýr tækjakostur
Nýverið fékk Jarðræktarmiðstöð
Landbúnaðarháskóla Íslands
styrk frá Innviðasjóði Rannís til
kaupa á fullkominni tilrauna-
þreskivél til nota við jarðræktar-
rannsóknir. Vélin er nauðsyn-
legur grunnbúnaður og síðasti
hlekkurinn í keðju vélbúnaðar
sem keyptur hefur verið á undan-
förnum árum til að færa aðstöðu
jarðræktarrannsókna á Íslandi
til nútímans, en sá búnaður sem
unnið var með var löngu úreltur.
„Tilraunaþreskivél sú sem hér er
til umræðu fullkomnar þennan búnað
og getur margfaldað umfang þeirra
tilrauna sem hægt verður að takast
á hendur við LbhÍ,“ segir Hrannar
Smári Hilmarsson tilraunastjóri.
Nýja vélin er af gerðinni Haldrup
C-70 og er tilraunaþreskivél sem
ræður við fræ af öllum stærðum
frá örsmáu grasfræi upp í korn og
baunir og getur með nákvæmum
hætti skorið upp, þreskt, vegið og
metið fræuppskeru úr einstökum
tilraunareitum eða smáreitum. Með
vélinni fylgir NIRS (Near Infrared
Reflectance Spectroscopy) sem
mælir þurrefni uppskerunnar, vatns-
leysanleg kolvetni og hráprótein.
Þannig fæst reiknað fóðurgildi upp-
skerunnar. Þannig fást ekki aðeins
uppskerutölur úr tilraunareitunum
heldur einnig upplýsingar um gæði
uppskerunnar.
Nýja vélin var að stórum hluta
fjármögnuð með styrk úr innviða-
sjóði Rannís en hlutverk hans er
að byggja upp rannsóknainnviði á
Íslandi og efla þar með innlendar
vísindarannsóknir með aðstoð við
fjármögnun. Þessir styrkir gera skól-
anum kleift að eflast til muna og
rímar vel við stefnu skólans til fram-
tíðar um aukna áherslu á rannsóknir,
nýsköpun og kennslu.
Góð aðstaða og afkastamik-
ill tækjabúnaður á tilraunastöð er
grunnur undir tilraunir af þessu
tagi og önnur fræðistörf vísinda-
manna LbhÍ, og ekki síður grunnur
undir fræðastarf skólans, sem æðri
menntastofnunar, og ráðgjafar-
starfsemi RML. Undanfarin tvö ár
hefur verið unnið að því að stórefla
aðstöðu LbhÍ til jarðræktartilrauna
með kaupum á nákvæmum vélbún-
aði og má í því sambandi nefna
frætalningarvél, borðþreskivél,
reitaáburðardreifara, reitasáningar-
vél og reitasláttuvél sem leysir af
hendi tímafreka vinnu sem áður var
að miklu leyti handunnin. Lífland
aðstoðaði við kaupin á reitasáðvél-
inni sem tekin var í notkun í vor.
Einnig kom styrkur frá fyrrum
búfræðingum sem brautskráðust
1968 og héldu því upp á 50 ára
afmæli 2018. Þeim er sérstaklega
þakkað fyrir sitt framlag.
„Með þessum nýja tækjabúnaði
stóreflum við gæði rannsókna og
nákvæmni vinnunnar“ segir Jónína
Svavarsdóttir starfsmaður hjá
Jarðræktarmiðstöðinni. Áður til að
mynda voru fræ handtalin en með
betri búnaði aukast afköstin til muna
og þar með gæði vinnunnar.
Efling mannafla við skólann
Erla Sturludóttir var ráðin sem
lektor í jarðrækt og hóf störf nú í
haust. Erla lauk námi í umhverfis
og náttúrufræði frá LBHÍ árið 2008.
Hún fór þá í masternám í tölfræði
við HÍ en vann verkefnið hjá LBHÍ
sem snéri að uppskeru og fóður-
gæðum í grasa og smárablöndum.
Eftir masternámið hélt hún áfram
í doktornám í tölfræði og var
rannsóknarefnið nú tengt náttúru
og umhverfisfræðum. Þar þróaði
hún tölfræðiaðferðir til að greina
breytingar í vöktunarmælingum.
Hún kannaði hvernig mengun
hefur verið að breytast í hafinu í
kringum Ísland undanfarna áratugi
og svo þróaði hún stofnlíkan fyrir
rjúpnastofninn og skoðað hvernig
breytt veiðstjórnun hefur haft áhrif
á stofninn.
Áður en hún hóf störf við LbHÍ
hafði hún stöðu nýdoktors við HÍ þar
sem hún vann að Evrópuverkefnum
tengdri vistfræðilegri nálgun við
fiskveiðistjórnun. Hennar helsta
hlutverk í þeim verkefnu var að gera
vistkerfislíkan af hafinu í kringum
Ísland.
Erla hefur því breiðan bakgrunn
á sviði náttúru og umhverfisfræða
og landbúnaðar. Þekking hennar á
tölfræði á eftir að nýtast einstaklega
vel við hin ýmsu rannsóknarverk-
efni sem skólinn kemur að. Hún
er spennt fyrir nýja starfinu enda
mörg spennandi verkefni framund-
an bæði í jarðræktinni þar sem nýr
tækjakostur gefur tækifæri á öflugri
rannsóknum á því sviði og einnig í
umhverfisfræðum.
Rósa Björk Jónsdóttir
markaðs- & kynningarstjóri
Landbúnaðarháskóla Íslands
ATH Van
tar mynd
irRósa Björk Jónsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri LbhÍ. Nýverið fékk Jarðræktarmiðstöð Landbúnaðarháskóla Íslands styrk frá Innviðasjóði Rannís til kaupa á fullkominni tilraunaþreskivél til nota við jarðræktarrannsóknir.
Tilraunareitur í kornrækt á Hvanneyri. Undanfarin tvö ár hefur verið unnið að því að stórefla aðstöðu LbhÍ til jarð-
ræktartilrauna með kaupum á nákvæmum vélbúnaði og má í því sambandi nefna frætalningarvél, borðþreskivél,
reitaáburðardreifara, reitasáningarvél og reitasláttuvél sem leysir af hendi tímafreka vinnu sem áður var að miklu
leyti handunnin.
Sögur útgáfa:
Bók um bý
Bókin Bók um bý
minnir okkur á hversu
mikilvægar býflugur
eru í hringrás náttúr-
unnar og hversu stóru
hlutverki þær gegna
í fæðuframleiðslu
heimsins.
Bókin er í stóru broti
og njóta því einstakar
og glæsilegar myndir
hennar sér vel. Í bók-
inni er að finna haf-
sjó af skemmtilegum
fróðleik um býflugur
og blómin og lífríkið.
Rakin er saga
býflugna og hunangs-
framleiðslu og sagt
frá býflugnabúum,
vinnusemi flugnanna,
dansi og mörgu öðru
áhugaverðu.
Bók um bý er eftir
sömu höfunda, Piotr
Socha og Wojciech
Grajkowski, og Bók um tré sem kom
út hjá Sögur útgáfu á síðasta ári og
vakti mikla athygli. Ljóst er að nýja
bókin mun ekki síður
vekja athygli þeirra sem heilluðust
af fyrri bók höfundar. /VH
BÆKUR & MENNING