Bændablaðið - 05.12.2019, Side 61
61Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 2019
Pétur Halldórsson birti grein í
Bbl. hinn 21.11.19 sem ber tit-
ilinn „Fjóshaugur mannkyns“:
Grein Péturs fjallar annars
vegar um kolefni og hins vegar
um meint ómálefnaleg skrif mín
um vistheimt og ræktun (Bbl.
24.10.19), sem séu til þess fallin
að afvegaleiða lesendur.
Pétur segir mig „uppnefna
ræktaða skóga á Íslandi“ og „tala
[….] niður til skógræktar og annarrar
ræktunar“. Ég verð að vísa þessum
ásökunum Péturs til föðurhúsanna,
enda hefur málsmetandi fólk sem ég
hef borið greinina undir ekki fundið
þeim stað. Grein mín var innblásin
af þátttöku í alþjóðlegri ráðstefnu
um vistheimt í Suður-Ameríku
fyrr í haust og í tilefni þess að að
Sameinuðu þjóðirnar hafa ákveðið
að nefna næsta á áratug, 2021–2030,
Áratug vistheimtar.
Þótt ég taki skýra afstöðu með
vistheimt sem aðferð til að græða
stór (áhersla á stór) landsvæði á
Íslandi og þótt ég gjaldi varhug við
plantekruskógrækt – ræktun einn-
ar eða fárra trjátegunda á stórum
svæðum – sem lausn við loftslags-
vanda, fer því fjarri að ég tali niður
alla skógrækt eða ræktun. Ég tek
þetta meira að segja skýrt fram,
sbr. „Eðli skógræktarinnar skiptir
öllu máli í þessu sambandi“. Um
ræktun segi ég m.a. „Ræktun hefur
brauðfætt mannkyn um árþúsundir
og séð okkur fyrir timbri og pappír
og ýmsum öðrum nauðsynjavörum,
en mikilvægi vistheimtar fer sífellt
vaxandi í heimi þar sem umgengni
um náttúrleg vistkerfi hefur verið
áfátt svo vægt sé til orða tekið…“.
Tvennt í greininni minni virðist
hafa farið sérstaklega í taugarn-
ar á Pétri. Annað er orðið „plant-
ekruskógrækt“ og hitt setningin
„Vistheimt – endurheimt náttúru-
skóga eða annarrar upprunalegrar
gróðurþekju – er í raun eina ásætt-
anlega leiðin sem hægt er að fara
til að bæta kolefnisbúskap stórra
landsvæða sem eru illa farin vegna
ósjálfbærrar landnýtingar.“
Skoðum þetta aðeins. Orðið
plantekra er íslenska yfir það sem
á ensku er nefnt „plantation“, sem
skv. Merriam-Webster orðabókinni
þýðir m.a. „a usually large group
of plants and especially trees under
cultivation“ og skv. Cambridge
orðabókinni: „an area where trees
are grown for wood“ og sem dæmi
„plantations of fast-growing con-
ifers“. Á Wikipedia (Ísl.) er plan-
tekra skilgreind sem „stórt býli sem
sérhæfir sig í ræktun fárra tegunda
[plöntu]afurða“. Samkvæmt orð-
anna hljóðan er plantekra ekra sem
plantað er í. Þetta er að mínu mati
mjög gott og hlutlaust orð yfir þá
skógrækt sem Pétur kýs að kalla
frekar nytjaskógrækt og felst í
kerfisbundinni og tiltölulega þéttri
útplöntun fárra trjátegunda í land til
framleiðslu viðarafurða.
Ég gerði það mér til gamans að
„googla“ nokkur hugtök sem skóg-
ræktarmenn hafa notað yfir ræktaða
skóga í gegn um tíðina (fjöldi til-
vika sem Google fann innan sviga):
blandskógar (13.200), landgræðslu-
skógar (6.200), nytjaskógar (4.090),
skjólskógar (3.180), útivistarskógar
(1.500), timburskógar (640), fjöl-
nytjaskógar (397), yndisskógar
(163), iðnviðarskógar (137), land-
bótaskógar (116). Flest ef ekki öll
þessi hugtök eru að mínu mati mun
gildishlaðnari en plantekra eða plan-
tekruskógur.
Vinninginn hefur þó hið ónot-
hæfa hugtak, eða kannski „upp-
nefni“ (sbr. nálgun Péturs), bland-
skógar sem ég hef raunar gagnrýnt
oft áður á prenti fyrir markleysu.
Hugtakið gefur til kynna að með því
að blanda nokkrum trjátegundum
saman verði allt gott og blessað, að
blanda af t.d. sitkagreni, stafafuru og
birki sé jafngild náttúrulegum birki-
skógi. Hugtök sem þessi blekkja og
afvegaleiða umræðuna miklu frekar
en að kalla hlutina sínu rétta nafni.
Ég hef í gegn um tíðina skrifað
margar greinar gegn ofuráherslu
Skógræktarinnar á ræktun innfluttra
tegunda í úthaga landsins, oft í hróp-
legri andstöðu við sjónarmið lífríkis-
og landslagsverndar. Þar með er ekki
sagt að ég sé á móti allri skógrækt.
Ábyrgð þjóðarinnar og allra þjóða
felst ekki í einhliða áherslu á timbur-
framleiðslu eða kolefnisbúskap með
hámarks framleiðni að leiðarljósi.
Ábyrgðin felst í því að ástunda
ræktun og landbætur í sátt við land
og þjóð með fjölþætt markmið að
leiðarljósi, sem lúta m.a. að vernd
og endurheimt upprunalegs lífríkis,
vernd jarðvegs og landslags, betra
loftslagi, nytjum og yndisauka.
Í nýjum skógræktarlögum er lögð
áhersla á þessa samþættingu ólíkra
markmiða, sbr. 1. grein:
„Markmið laga þessara er:
a. að vernda náttúruskóga lands-
ins og stuðla að aukinni
útbreiðslu þeirra,
b. að vernda og endurheimta líf-
ræðilega fjölbreytni,
c. ræktun nýrra skóga til að
byggja upp fjölbreytta skógar-
auðlind til sjálfbærra nytja,
d. að nýting skóga sé sjálfbær
þannig að skógarnytjar skili
sem mestum hagrænum,
félagslegum og umhverfisleg-
um ávinningi fyrir samfélagið,
e. að skógrækt verði í samræmi
við skipulagsáætlanir og nátt-
úruvernd,
f. að auðvelda aðgengi fólks að
skógum til útivistar og auka
þekkingu fólks á málefnum
skóga og skógræktar,
g. að stuðla að kolefnisbindingu
með ræktun skóga og aðlögun
þeirra að loftslagsbreytingum,
h. að skógrækt stuðli að
verndun jarðvegs og dragi úr
hugsanlegu tjóni vegna nátt-
úruvár.“
Fjögur af átta markmiðum
Skógræktarlaga falla beint undir
náttúruvernd og vistheimt (a, b, e
og h). Markmiðum a og b verður
ekki náð með ræktun innfluttra
tegunda. Náttúruskógur í skilningi
laganna er: „Land, a.m.k. 0,5 ha að
flatarmáli, þar sem sjálfsánar, inn-
lendar trjátegundir, þ.e. ilmbjörk,
reyniviður, blæösp, gulvíðir eða
loðvíðir, eru ríkjandi..“ Það er ekki
fræðilega mögulegt að vernda og
breiða út náttúruskóga á Íslandi með
útplöntun sitkagrenis eða stafafuru.
Blandað skóg- og kjarrlendi með
innlendum tegundum bindur líka
umtalsvert kolefni og mestur ávinn-
ingur fæst með því að endurheimta
illa gróin vistkerfi á stórum svæðum
– enda er það moldin ekki síður en
gróðurinn sem bindur kolefnið. Þess
vegna stend ég keikur við það að
vistheimt sé í raun eina ásættanlega
leiðin sem hægt er að fara til að bæta
kolefnisbúskap stórra landsvæða.
Sú staðhæfing Péturs að endurheimt
gróðurlendi verði ekki nákvæmlega
eins og hin upprunalegu er að mínu
mati hártogun til þess fallin að
afvegaleiða umræðuna (sbr. ásökun
Péturs). Flóra og fána endurheimts
skóg- og kjarrlendis, ásýnd í lands-
laginu og fjölbreytt þjónusta við
land, þjóð og lífríki (t.d. vatnsmiðl-
un, jarðvegsvernd, kolefnisbinding,
útivist, yndisauki, smíðaviður, ber)
verður í grundvallaratriðum samb-
ærilegt við náttúruskóg, öfugt við
ræktaðan skóg þar sem meiri hlutinn
eru barrviðir.
Setjum sem svo að 2.000 km2
af illa grónum þjóðlendum neðan
400 m y.s. (af nógu er að taka) verði
teknar til vistheimtar með birki og
víði. Þá má þess vænta áður en langt
um líður og án mikilla fjárútláta að
svæðið bindi yfir 400.000 tonn CO2
á ári. Þar með væri gengið langt í
að kolefnisjafna allan landbúnað
á Íslandi á sama tíma og lagður er
grunnur að náttúrulegum vistkerf-
um sem falla vel að ásýnd landsins.
Í verkefnum af þessum toga liggja
stóru tækifærin hjá Skógræktinni.
Spurning Péturs í greinarlok,
„Skiptir kannski meira máli hvaða
þjónustu skógarnir veita en hvaða
trjátegundir vaxa þar?“ er því ákaf-
lega afvegaleiðandi, sbr. ofanskráð.
Náttúruskógar veita alla sömu þjón-
ustu og ræktaðir skógar – fyrir utan
grófari timburafurðir (borðvið,
burðarvið o.fl.) – og á sumum svið-
um mun víðtækari þjónustu fyrir
minni útlagðan kostnað.
Hvað heillar okkur Íslendinga
og erlenda ferðamenn við landið?
Er það ekki miklu frekar víðáttan,
víðsýnið og lágstemmdur jurta- og
trjágróður frekar en hávaxnir, þéttir
greniskógar?
Snorri Baldursson,
deildarforseti við
Landbúnaðarháskóla Íslands
Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is
Hjá okkur færðu heyrnarhlífar og
samskiptatæki sem henta þinni vinnu.
Hafðu samband.
Við veitum þér faglega aðstoð.
Peltor heyrnarhlífar
XPI WS ALERT APP
með hleðslutæki og bluetooth
LESENDABÁS
Að græða „fjóshaug mannkyns“
– Í tilefni af grein Péturs Halldórssonar, kynningarfulltrúa Skógræktarinnar
Vistheimt á Skeiðarársandi. Stærsti birkiskógur landsins vex nú upp á
Skeiðarársandi án aðkomu manna. Mynd / Snorri Baldursson
Rafstöð í Grímsey endurbætt:
Þrjár nýjar öflugar
vélar settar upp
Endurbótum er lokið á nýrri
rafstöð RARIK í Grímsey og
hefur hún verið tekin í notkun.
Búnaðurinn var gamall og þörf
komin á endurnýjun. Íbúar í eyj-
unni hafa orðið varir við að nýju
vélarnar eru mun lágværari en
þær gömlu, að því er fram kemur
á vef Rarik.
Settar voru upp þrjár nýjar Scania
160 kW díselvélar, sem hver og ein
nægir til að anna orkuþörf í eyjunni.
Ef álag eykst ræsir stjórnkerfið aðra
vél í samkeyrslu. Þær eru reknar sem
sjálfstæðar einingar og er hægt að
taka hverja einingu úr notkun ef
þörf er á vegna viðhalds. Við val á
vélum var tekið mið af eldsneytis-
og varmaorkunýtni þeirra. Samhliða
var allur raf- og stýribúnaður og
stoðkerfi stöðvarinnar endurnýjað í
því skyni að gera rafstöð RARIK í
Grímsey eins sjálfvirka og framast
er kostur og að bæta vöktunar- og
fjarstýrimöguleika og auka þar með
áreiðanleika.
Þá var sett upp nýtt og fullkomið
loftræstikerfi sem tryggir loftskipti
í rafstöðvarbyggingunni og dregur
úr raka og seltu í innblásturlofti.
Varmaorkan frá nýju díselvélunum
mun að hluta til nýtast til að hita upp
sundlaug Grímseyinga.
Næsta sumar er áætlað að lag-
færa húsnæði stöðvarinnar að utan
og ganga frá lóð og frárennslislögn-
um með olíugildrum og endurnýja
birgðatank. /MÞÞ