Bændablaðið - 05.12.2019, Qupperneq 61

Bændablaðið - 05.12.2019, Qupperneq 61
61Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 2019 Pétur Halldórsson birti grein í Bbl. hinn 21.11.19 sem ber tit- ilinn „Fjóshaugur mannkyns“: Grein Péturs fjallar annars vegar um kolefni og hins vegar um meint ómálefnaleg skrif mín um vistheimt og ræktun (Bbl. 24.10.19), sem séu til þess fallin að afvegaleiða lesendur. Pétur segir mig „uppnefna ræktaða skóga á Íslandi“ og „tala [….] niður til skógræktar og annarrar ræktunar“. Ég verð að vísa þessum ásökunum Péturs til föðurhúsanna, enda hefur málsmetandi fólk sem ég hef borið greinina undir ekki fundið þeim stað. Grein mín var innblásin af þátttöku í alþjóðlegri ráðstefnu um vistheimt í Suður-Ameríku fyrr í haust og í tilefni þess að að Sameinuðu þjóðirnar hafa ákveðið að nefna næsta á áratug, 2021–2030, Áratug vistheimtar. Þótt ég taki skýra afstöðu með vistheimt sem aðferð til að græða stór (áhersla á stór) landsvæði á Íslandi og þótt ég gjaldi varhug við plantekruskógrækt – ræktun einn- ar eða fárra trjátegunda á stórum svæðum – sem lausn við loftslags- vanda, fer því fjarri að ég tali niður alla skógrækt eða ræktun. Ég tek þetta meira að segja skýrt fram, sbr. „Eðli skógræktarinnar skiptir öllu máli í þessu sambandi“. Um ræktun segi ég m.a. „Ræktun hefur brauðfætt mannkyn um árþúsundir og séð okkur fyrir timbri og pappír og ýmsum öðrum nauðsynjavörum, en mikilvægi vistheimtar fer sífellt vaxandi í heimi þar sem umgengni um náttúrleg vistkerfi hefur verið áfátt svo vægt sé til orða tekið…“. Tvennt í greininni minni virðist hafa farið sérstaklega í taugarn- ar á Pétri. Annað er orðið „plant- ekruskógrækt“ og hitt setningin „Vistheimt – endurheimt náttúru- skóga eða annarrar upprunalegrar gróðurþekju – er í raun eina ásætt- anlega leiðin sem hægt er að fara til að bæta kolefnisbúskap stórra landsvæða sem eru illa farin vegna ósjálfbærrar landnýtingar.“ Skoðum þetta aðeins. Orðið plantekra er íslenska yfir það sem á ensku er nefnt „plantation“, sem skv. Merriam-Webster orðabókinni þýðir m.a. „a usually large group of plants and especially trees under cultivation“ og skv. Cambridge orðabókinni: „an area where trees are grown for wood“ og sem dæmi „plantations of fast-growing con- ifers“. Á Wikipedia (Ísl.) er plan- tekra skilgreind sem „stórt býli sem sérhæfir sig í ræktun fárra tegunda [plöntu]afurða“. Samkvæmt orð- anna hljóðan er plantekra ekra sem plantað er í. Þetta er að mínu mati mjög gott og hlutlaust orð yfir þá skógrækt sem Pétur kýs að kalla frekar nytjaskógrækt og felst í kerfisbundinni og tiltölulega þéttri útplöntun fárra trjátegunda í land til framleiðslu viðarafurða. Ég gerði það mér til gamans að „googla“ nokkur hugtök sem skóg- ræktarmenn hafa notað yfir ræktaða skóga í gegn um tíðina (fjöldi til- vika sem Google fann innan sviga): blandskógar (13.200), landgræðslu- skógar (6.200), nytjaskógar (4.090), skjólskógar (3.180), útivistarskógar (1.500), timburskógar (640), fjöl- nytjaskógar (397), yndisskógar (163), iðnviðarskógar (137), land- bótaskógar (116). Flest ef ekki öll þessi hugtök eru að mínu mati mun gildishlaðnari en plantekra eða plan- tekruskógur. Vinninginn hefur þó hið ónot- hæfa hugtak, eða kannski „upp- nefni“ (sbr. nálgun Péturs), bland- skógar sem ég hef raunar gagnrýnt oft áður á prenti fyrir markleysu. Hugtakið gefur til kynna að með því að blanda nokkrum trjátegundum saman verði allt gott og blessað, að blanda af t.d. sitkagreni, stafafuru og birki sé jafngild náttúrulegum birki- skógi. Hugtök sem þessi blekkja og afvegaleiða umræðuna miklu frekar en að kalla hlutina sínu rétta nafni. Ég hef í gegn um tíðina skrifað margar greinar gegn ofuráherslu Skógræktarinnar á ræktun innfluttra tegunda í úthaga landsins, oft í hróp- legri andstöðu við sjónarmið lífríkis- og landslagsverndar. Þar með er ekki sagt að ég sé á móti allri skógrækt. Ábyrgð þjóðarinnar og allra þjóða felst ekki í einhliða áherslu á timbur- framleiðslu eða kolefnisbúskap með hámarks framleiðni að leiðarljósi. Ábyrgðin felst í því að ástunda ræktun og landbætur í sátt við land og þjóð með fjölþætt markmið að leiðarljósi, sem lúta m.a. að vernd og endurheimt upprunalegs lífríkis, vernd jarðvegs og landslags, betra loftslagi, nytjum og yndisauka. Í nýjum skógræktarlögum er lögð áhersla á þessa samþættingu ólíkra markmiða, sbr. 1. grein: „Markmið laga þessara er: a. að vernda náttúruskóga lands- ins og stuðla að aukinni útbreiðslu þeirra, b. að vernda og endurheimta líf- ræðilega fjölbreytni, c. ræktun nýrra skóga til að byggja upp fjölbreytta skógar- auðlind til sjálfbærra nytja, d. að nýting skóga sé sjálfbær þannig að skógarnytjar skili sem mestum hagrænum, félagslegum og umhverfisleg- um ávinningi fyrir samfélagið, e. að skógrækt verði í samræmi við skipulagsáætlanir og nátt- úruvernd, f. að auðvelda aðgengi fólks að skógum til útivistar og auka þekkingu fólks á málefnum skóga og skógræktar, g. að stuðla að kolefnisbindingu með ræktun skóga og aðlögun þeirra að loftslagsbreytingum, h. að skógrækt stuðli að verndun jarðvegs og dragi úr hugsanlegu tjóni vegna nátt- úruvár.“ Fjögur af átta markmiðum Skógræktarlaga falla beint undir náttúruvernd og vistheimt (a, b, e og h). Markmiðum a og b verður ekki náð með ræktun innfluttra tegunda. Náttúruskógur í skilningi laganna er: „Land, a.m.k. 0,5 ha að flatarmáli, þar sem sjálfsánar, inn- lendar trjátegundir, þ.e. ilmbjörk, reyniviður, blæösp, gulvíðir eða loðvíðir, eru ríkjandi..“ Það er ekki fræðilega mögulegt að vernda og breiða út náttúruskóga á Íslandi með útplöntun sitkagrenis eða stafafuru. Blandað skóg- og kjarrlendi með innlendum tegundum bindur líka umtalsvert kolefni og mestur ávinn- ingur fæst með því að endurheimta illa gróin vistkerfi á stórum svæðum – enda er það moldin ekki síður en gróðurinn sem bindur kolefnið. Þess vegna stend ég keikur við það að vistheimt sé í raun eina ásættanlega leiðin sem hægt er að fara til að bæta kolefnisbúskap stórra landsvæða. Sú staðhæfing Péturs að endurheimt gróðurlendi verði ekki nákvæmlega eins og hin upprunalegu er að mínu mati hártogun til þess fallin að afvegaleiða umræðuna (sbr. ásökun Péturs). Flóra og fána endurheimts skóg- og kjarrlendis, ásýnd í lands- laginu og fjölbreytt þjónusta við land, þjóð og lífríki (t.d. vatnsmiðl- un, jarðvegsvernd, kolefnisbinding, útivist, yndisauki, smíðaviður, ber) verður í grundvallaratriðum samb- ærilegt við náttúruskóg, öfugt við ræktaðan skóg þar sem meiri hlutinn eru barrviðir. Setjum sem svo að 2.000 km2 af illa grónum þjóðlendum neðan 400 m y.s. (af nógu er að taka) verði teknar til vistheimtar með birki og víði. Þá má þess vænta áður en langt um líður og án mikilla fjárútláta að svæðið bindi yfir 400.000 tonn CO2 á ári. Þar með væri gengið langt í að kolefnisjafna allan landbúnað á Íslandi á sama tíma og lagður er grunnur að náttúrulegum vistkerf- um sem falla vel að ásýnd landsins. Í verkefnum af þessum toga liggja stóru tækifærin hjá Skógræktinni. Spurning Péturs í greinarlok, „Skiptir kannski meira máli hvaða þjónustu skógarnir veita en hvaða trjátegundir vaxa þar?“ er því ákaf- lega afvegaleiðandi, sbr. ofanskráð. Náttúruskógar veita alla sömu þjón- ustu og ræktaðir skógar – fyrir utan grófari timburafurðir (borðvið, burðarvið o.fl.) – og á sumum svið- um mun víðtækari þjónustu fyrir minni útlagðan kostnað. Hvað heillar okkur Íslendinga og erlenda ferðamenn við landið? Er það ekki miklu frekar víðáttan, víðsýnið og lágstemmdur jurta- og trjágróður frekar en hávaxnir, þéttir greniskógar? Snorri Baldursson, deildarforseti við Landbúnaðarháskóla Íslands Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is Hjá okkur færðu heyrnarhlífar og samskiptatæki sem henta þinni vinnu. Hafðu samband. Við veitum þér faglega aðstoð. Peltor heyrnarhlífar XPI WS ALERT APP með hleðslutæki og bluetooth LESENDABÁS Að græða „fjóshaug mannkyns“ – Í tilefni af grein Péturs Halldórssonar, kynningarfulltrúa Skógræktarinnar Vistheimt á Skeiðarársandi. Stærsti birkiskógur landsins vex nú upp á Skeiðarársandi án aðkomu manna. Mynd / Snorri Baldursson Rafstöð í Grímsey endurbætt: Þrjár nýjar öflugar vélar settar upp Endurbótum er lokið á nýrri rafstöð RARIK í Grímsey og hefur hún verið tekin í notkun. Búnaðurinn var gamall og þörf komin á endurnýjun. Íbúar í eyj- unni hafa orðið varir við að nýju vélarnar eru mun lágværari en þær gömlu, að því er fram kemur á vef Rarik. Settar voru upp þrjár nýjar Scania 160 kW díselvélar, sem hver og ein nægir til að anna orkuþörf í eyjunni. Ef álag eykst ræsir stjórnkerfið aðra vél í samkeyrslu. Þær eru reknar sem sjálfstæðar einingar og er hægt að taka hverja einingu úr notkun ef þörf er á vegna viðhalds. Við val á vélum var tekið mið af eldsneytis- og varmaorkunýtni þeirra. Samhliða var allur raf- og stýribúnaður og stoðkerfi stöðvarinnar endurnýjað í því skyni að gera rafstöð RARIK í Grímsey eins sjálfvirka og framast er kostur og að bæta vöktunar- og fjarstýrimöguleika og auka þar með áreiðanleika. Þá var sett upp nýtt og fullkomið loftræstikerfi sem tryggir loftskipti í rafstöðvarbyggingunni og dregur úr raka og seltu í innblásturlofti. Varmaorkan frá nýju díselvélunum mun að hluta til nýtast til að hita upp sundlaug Grímseyinga. Næsta sumar er áætlað að lag- færa húsnæði stöðvarinnar að utan og ganga frá lóð og frárennslislögn- um með olíugildrum og endurnýja birgðatank. /MÞÞ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.