Bændablaðið - 05.12.2019, Qupperneq 64

Bændablaðið - 05.12.2019, Qupperneq 64
Bændablaðið | Fimmtudagur 5. desember 201964 MATARKRÓKURINN LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR Auður kaupir jörðina af foreldr- um sínum árið 2000 en foreldrar hennar eru Gunnar Jóhannesson frá Hömrum og Kristín Carol Chadwick frá Leeds, Englandi. Sama ættin hefur búið á Hömrum síðan 1726. Býli: Hamrar II í Grímsnesi. Staðsett í sveit: Keyrt er um Sólheimahring. Hamrar eru austast í hringnum, niður við Hvítá. Ábúendur: Auður Gunnarsdóttir frá Hömrum og Ingólfur Jónsson frá Miðfelli í Þingvallasveit. Fjölskyldustærð (og gæludýra): Auður og Ingólfur. Börnin eru Gunnar, 14 ára og Hrafnhildur, 10 ára. Fyrir á Ingólfur þrjár upp­ komnar dætur, Silju, Rut og Tinnu. Gæludýrin eru: Kettirnir Lísa, Nala, Matti og Ólífvera. Hundarnir eru: Birta, Skotta, Kerling, Skvísa og Larfur. Stærð jarðar? Hamrar II eru tæpir 200 ha og tún um 55 ha en jörðin liggur að Hömrum I, sem einnig er nýtt af okkur. Gerð bús? Sauðfjárbú, hross og verktakastarfsemi ýmiss konar. Fjöldi búfjár og tegundir? 400 vetrarfóðraðar kindur, 30 hross og 17 hænur. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Börnin fara í skólann rétt fyrir átta. Eftir það taka við ýmis verk, mis­ munandi eftir árstíðum. Þessa dag­ ana er rútínan frekar hefðbundin, gegningar, bókhald og verktaka­ starfsemin. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Það er alltaf leiðinlegt þegar eitthvað bilar í heyskap, þó er heyskapur rosa skemmtilegur í góðu veðri og allt gengur vel. Svo er það svo merkilegt að þó maður geti orðið mjög þreyttur (eiginlega sjúklega þreyttur) á sauðburði og í smalamennskum, Þá eru það mjög skemmtilegir tímar líka. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Svipaður. Vonandi meiri kraft­ ur í ræktun, bæði á fé og túnum. Hvaða skoðun hafið þið á félags- málum bænda? Við lítum upp til þeirra sem standa vörð um íslensk­ an landbúnað. Það er ekki auðvelt verk þessa dagana. Hvernig mun íslenskum landbún- aði vegna í framtíðinni? Mjög vel. Hvar teljið þið að helstu tæki- færin séu í útflutningi íslenskra búvara? Þetta er viðkvæm spurn­ ing. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Mjólk, ostur, feti og rabarbarasulta. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Bjúgur, heimagert kjöt­ fars og ærfille. Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Við munum ekkert eftir neinu sérstöku. En gjafakerfi í fjár­ húsin, eftirlitmyndavélar á sauð­ burði og dróni við smalamennskur. Allt framfarir sem munar mikið um. Snúningur á rækjukokteilinn og jólaleg önd Margir kjósa auðveld jól með góðum matarundirbúningi. Það er hægt að gera bragðgóða og ferska rétti sem kalla ekki á mikið stress, heldur bara smá skipulagningu. Það er hægt að kryddleggja, gera sósur og eftirrétti með góðum fyrir­ vara og geyma í kæli eða jafnvel frysti. Ceviche Það getur verið sniðug leið í mat­ reiðslunni að taka hefðir frá heitari löndum og blanda við úrvals íslenskt sjávarfang. Ein góð hugmynd er rétturinn ceviche með ristuðu brauði og þá erum við eiginlega komin með snúning á gamla rækjukokteilinn. Chili Tiger's safi › Lítið stykki (5 cm) ferskur engifer, skorinn í tvennt › 1 lítið hvítlauksrif, skorið í tvennt › Blöð af 4 kóríander stilkum, söxuð › 8 lime-aldin, safinn kreistur úr og börkur tekinn af helmingnum › 1/2 tsk. salt › 2 tsk. Amarillo Chile Paste (eða hvaða chili sem er) Aðferð Setjið engiferið, hvítlaukinn, kórí­ ander og lime­safann í skál. Hrærið og leyfið því að standa í 5 mínútur. Sigtið blönduna í gegnum sigti í aðra skál. Bætið við salti og chili­maukinu og blandið vel saman. Þetta er gott að geyma í fjórar klukkustundir í ísskápnum. Ceviche › 1 stór rauðlaukur, mjög þunnt skorinn › 600 g af hvítum fiski eða skelfiski, bein- og roðlaus › Chili Tiger‘s safi (hér að ofan) › Nokkur kóríanderlauf, fínt söxuð › 1 chili, fræhreinsaður og saxaður fínt › 1 sæt kartafla, soðin og skorin í litla teninga › Fínt sjávarsalt Aðferð Skolið laukinn og látið hann liggja í bleyti í klakavatni í 10 mínútur. Hellið vatninu af og þerrið vand­ lega, dreifið á pappír eða hreint eld­ hússtykki til að fjarlægja umfram vatn og setjið síðan í ísskáp þar til þess er þörf. Þetta mun gera laukinn mildari og hjálpa til við að halda sneiðunum stökkum. Skerið fiskinn í jafnar ræmur (3 x 2 cm). Setjið í stóra skál, bætið við góðri klípu af salti og blandið var­ lega saman við með skeið. Saltið mun hjálpa til við að marinera fisk­ inn. Látið þetta standa í tvær mín­ útur, hellið síðan kryddvökvanum yfir og blandið varlega saman með skeiðinni. Látið fiskinn „eldast“ í þessari marineríngu í 2 mínútur. Bætið lauknum, kóríander, chili og sætum kartöflum við fiskinn. Blandið varlega saman við með skeiðinni og smakkið, til að ganga úr skugga um að jafnvægi salts, súrs og chili sé í lagi. Skiptið þessu á milli diska og berið fram strax með salati. Jólaleg önd með stökkum kartöfl- um og púrtvínssósu Hunangs­ og sinnepsgljáð önd er falleg viðbót við jólaborðið. Það er góð hugmynd að láta hana liggja í kryddlegi yfir nótt. › 3 kvistir af fersku rósmarín › 1 stk. múskat › nýmalaður svartur pipar › 2 appelsínur › 1 x 2 kg heil önd eða bringur (þá er pönnusteiking og svo settar í ofn þegar gesti ber að garði, gott að nota hitamæli upp að 60 gráðu kjarnhita) › 8 hvítlauksrif › 3 rauðlaukar › nokkrir stilkar sellerí › 3 stk. gulrætur › 5 sentimetrar ferskt engifer › ½ stafur kanil › 3 lárviðarlauf › 2 kg kartöflur › 1 lítri eplasafi eða kjúklingasoð › 2 msk. hveiti › 200 ml púrtvín Taktu laufin af einum rósmarínstilk. Rífið hálft múskatið og takið börk af báðum appelsínunum. Skerið appelsínurnar í tvennt og leggið til hliðar til að fylla öndina með. Setjið allt hráefni á bretti með einni matskeið af sjávarsalti og saxið það allt saman. Nuddið blöndunni um alla öndina, að innan sem utan. Lokið með plastfilmu og látið standa í ísskápnum í nokkrar klukkustundir eða yfir nótt til að láta jólabragðið komast inn í kjötið. Hitið ofninn í 180 gráður og setjið ofnskúffu í miðjan ofninn. Fyllið öndina með rósmarínkvist­ um, hvítlauksrifunum og skornum appelsínuhelmingnum. Afhýðið og skerið laukinn í fjóra hluta. Snyrtið síðan og saxið selleríið og gulræturnar gróflega. Afhýðið og saxið engiferinn. Dreifið grænmetinu og engiferinu í botninn á ofnfatinu ásamt kanil og lárviðarlaufum. Setjið öndina ofan á kryddið og grænmetið, með brjósthliðina upp, og skiljið eftir pláss fyrir kart­ öflurnar í kring til að þær eldist í fitunni og safanum. Á meðan eru kartöflurnar afhýddar og skornar í bita. Setjið í pott og hyljið með köldu, söltu vatni. Látið sjóða í 5 til 10 mínútur, en hellið síðan vatninu af og þerrið í sigti. Penslið fituna með sinnepi og hun­ angi. Öndin er loks pipruð, kartöflur settar í kringum hana, eplasafa hellt í botninn og hún elduð í klukku­ stund, þar til hún er orðin gullin. Hellið safa yfir á 15 mínútna fresti til að tryggja jafnan gljáa. Takið úr ofninum og látið hvíla í 15 mínútur. Hægt er að nota yndislegan safann sem eftir er á pönnunni til að búa til kjötsósu, með smá hveiti og púrtvíni. Berið fram með kartöflunum og kjötsósunni. Bjarni Gunnar Kristinsson Matreiðslumeistari Ceviche með skelfiski, japönsku majónesi með kóríander og lime-safa. Hamrar II Úr eftirlitsmyndavélinni í fjárhúsunum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.