Bændablaðið - 28.03.2019, Blaðsíða 1

Bændablaðið - 28.03.2019, Blaðsíða 1
18 6. tölublað 2019 ▯ Fimmtudagur 28. mars ▯ Blað nr. 535 ▯ 25. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is Ríkisstjórn samþykkti í síðustu viku að leggja orkupakka 3 frá ESB fyrir Alþingi til væntanlegrar samþykktar: Orkupakki 3 mun stórskaða íslenska garðyrkju, heimili og allt atvinnulíf – segir formaður Sambands garðyrkjubænda og telur að fyrirvari um sæstreng breyti þar engu um Gunnar Þorgeirsson, formaður Sambands garðyrkjubænda, segir þann fyrirvara um sæstreng sem ríkisstjórn Íslands hyggst gera við innleiðingu á orkupakka 3 frá ESB ekki halda vatni. Eftir standi að orkupakkinn eins og hann leggur sig sé óbreyttur og innleiðing hans muni stórskaða íslenska matvælaframleiðslu, heimili og atvinnulíf. Ríkisstjórn samþykkti í síðustu viku að leggja orkupakka 3 fyrir Alþingi til væntanlegrar samþykktar. Var frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum, nr. 65/2003 sett inn á samráðsgátt stjórnvalda 22. mars og einungis gefinn kostur á að senda umsagnir í fjóra daga, eða til 26. mars. Gunnar segir ekkert hafa breyst síðan í haust þegar hann sagði m.a. á forsíðu Bændablaðsins að innleiðing orkupakkans myndi leiða til stórhækkunar á orkuverði. „Mér líst ekkert á þetta og get ekki skilið af hverju íslensk þjóð á ekki að fá að vera sjálf með sína orkustefnu á sínum forsendum þar sem við erum ekki tengdir neinum öðrum. Hvers vegna í veröldinni þurfum við að taka upp Evrópureglur til að stýra okkar eigin málum?“ Hann segist standa við fyrri orð sín og segir málið grafalvarlegt fyrir Ísland og íslensku þjóðina og undrast áhugaleysi margra þingmanna á þessari stöðu. „Það er algjörlega ljóst í mínum huga að við innleiðingu á orkupakka 3 og hækkandi raforkuverði í kjölfarið verða ekki framleiddir hér framar tómatar, gúrkur, jarðarber eða grænmeti sem krefst raflýsingar. Kryddjurtirnar frá mér myndu örugglega hverfa úr verslunum.“ Getum ekki sett í Evrópureglur hvað sem okkur sýnist „Ég veit ekki til þess að Evrópu­ sambandið sætti sig við að við setjum inn í þeirra reglugerðir það sem okkur sýnist. Ekki var það í hráakjötsmálinu. Mér finnst það mjög athyglisvert ef menn ætla bara að setja þessar tvær línur inn í samþykkt á orkupakkanum að ekki komi til lagningar rafstrengs á milli Evrópu og Íslands nema með samþykki Alþingis. Það þykir mér mjög léttvægt og hvað með allt annað sem felst í pakkanum? Ég sé því hvergi hreyft í þessum ágæta texta. Á þetta að vera viðbót við orkupakka 3 sem á að skrifa undir gagnvart Evrópusambandinu? Eða á þetta bara að vera sérstök bókun sem Alþingi gerir bara fyrir okkur til að dást að á sunnudögum? Ég dreg stórlega í efa að við getum breytt samningnum sem ESB leggur fyrir í orkupakka 3. Norðmenn gátu það ekki. Hjáróma bókun þar við hliðina sem á að veifa framan í íslenska þjóð heldur alls ekki vatni þegar við mætum fyrir ESA. Ef það á að skrifa undir þennan orkupakka eins og hann lítur út núna á grundvelli Evrópusambandsins þá hlýtur þessi ákvörðun um að við ætlum ekki að heimila sæstreng nema með sérstöku samþykki Alþingis að vera kæranleg til ESA. Ef við skrifum undir orkupakkann, erum við þá ekki búin að afsala okkur þessu? Er þá ekki líklegast að ESA komist að þeirri niðurstöðu að hér gildi frjálst flæði fjármagns og afurða? Við höfum þegar reynslu af slíkum kærum og þær hafa allar fallið með ESB.“ Hvað er búið að semja um við Breta? „Maður spyr sig líka hvaða samkomu lag utanríkisráðherra er búinn að gera við Breta í tengslum við Brexit. Á að heimila Bretum að kaupa héðan orku eins og þeir hafa sóst eftir að fá? Hvort sem Bretar fara úr ESB eða ekki þá er orkukerfi þeirra beintengt evrópska orkunetinu og um það gilda ákvæði orkupakkanna.“ IceLink-verkefnið komið lengra en menn hafa þorað að viðurkenna „Það skiptir engu máli þótt menn segist draga sig út úr IceLink­verkefninu til að koma orkupakkanum í gegnum þingið. Það verkefni er greinilega komið mun lengra en menn hafa þorað að viðurkenna opinberlega og auðvelt að setja það í gang aftur,“ segir Gunnar. IceLink­verkefnið er samstarfs­ verkefni Landsvirkjunar, Landsnets og National Grid Interconnector Holdings Ltd. um lagningu sæstrengs til Bretlands. IceLink er inni á PCI­lista (e. Projects of Common Interest). Það er á verkefnaskrá ACER, orkustofnunar ESB, sem hóf starfsemi i Ljubliana í Slóveníu árið 2011. IceLink er þar inni sem liður í víðtækri samþættingu orkunets Evrópu. Gegn ályktun landsfundar Sjálfstæðisflokksins Gunnar segir undarlegt ef ráðherrar Sjálfstæðisflokksins ætli að leggja þetta mál fram á þingi og ganga þannig gegn ályktun atvinnuveganefndar á landsfundi flokksins um iðnaðar­ og orkumál. Þar segir m.a. orðrétt: „Sjálfstæðisflokkurinn hafnar frekara framsali á yfirráðum yfir íslenskum orkumarkaði til stofnana Evrópusambandsins.“ „Hefur landsfundur Sjálfstæðis­ flokksins þá ekkert vægi? Menn leita í grasrótina þegar það þarf að kjósa, en svo þegar það er búið virðist grasrótin ekki skipta neinu máli,“ segir Gunnar Þorgeirsson. /HKr. – Sjá nánar á bls. 2 Gunnar Þorgeirsson. Mynd / smh Stjórn Bændasamtaka Íslands eftir breytingar sem gerðar voru á ársfundi sem haldinn var í Hveragerði 15. mars eftir að Sindri Sigurgeirsson sagði af sér formennsku. Talið frá vinstri: Guðrún Sigríður Tryggvadóttir, bóndi í Svartárkoti, sem er nýr formaður stjórnar og fyrsta konan sem gegnir því embætti. Þá er Einar Ófeigur Björnsson, bóndi í Lóni II, sem er varaformaður, Eiríkur Blöndal, bóndi á Jaðri, Guðrún Lárusdóttir, bóndi í Keldudal, sem kemur ný inn í aðalstjórn, og Gunnar K. Eiríksson, bóndi á Túnsbergi. Mynd /HKr. Fólki er freklega misboðið að það er sífellt verið að ganga meira á rétt landeigenda Vísbendingar um að ræktunarstarfið hafi leitt til minni meyrni 8 Matvælalöggjöf Evrópu tekur ekki mið af heilbrigðismálum Fólki er freklega misboðið 24
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.