Bændablaðið - 28.03.2019, Blaðsíða 22
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. mars 201922
TÆKNI&VÍSINDI
Hyundai leggur aukna áherslu á vetnisknúin efnarafal:
Nýr Nexo vetnis-sportjeppi kemst 600 km á einni fyllingu
– Skilar engri kolefnismengun og aðeins vatni við efnahvörf á vetni
Meðan flestir bílafram leið endur
virðast leggja höfuð áherslu á að
bjóða upp á rafbíla með endur
hlaðanlegum lithiumion rafhlöðum
sem valkost við bensín og dísilbíla,
þá leggur Hyundai nú aukna
áherslu á vetnisknúna rafbíla.
Hefur þýski bíla framleiðandinn
Audi einnig tekið upp samvinnu við
Hyundai um vetnisbíla væðinguna.
Nýr vetnisknúinn Hyundai
Nexo sportjeppi er sagður komast
611 km eða 380 mílur á einni 6,3
kg samanþjappaðri vetnishleðslu.
Í raun er um rafbíl að ræða sem
fær raforkuna frá efnarafal í stað
þess að nota rafgeyma. Við það
vinnst tvennt. Annars vegar þarf
ekki að bíða í langan tíma eftir að
bíllinn hlaði inn á sig rafmagni því
það er framleitt með vetni sem er
fljótlegt að dæla á tanka bílsins. Þá
er auðveldara að útbúa bílinn til
langrar keyrslu en rafmagnsbíl sem
þarf stærri og mun þyngri rafhlöður
til að komast langt.
Bíll sem drykkjufélagi
Engin mengun fylgir bruna á
vetni, því það
breytist einfaldlega
í vatn eins og það
sem vetnið var
upphaflega unnið úr.
Einn dyggur lesandi
B æ n d a b l a ð s i n s
sagðist binda miklar
vonir við þróun
vetnisbílanna og
hlakkaði til að geta
nýtt sér slík farartæki
í framtíðinni. Þá gæti
hann loks eignast
bíl sem hann gæti
drukkið með. Ekki sakaði að auðvelt
væri að framleiða vetni hvar sem er,
með afgangsraforku, vindmyllum,
jarðgufu eða vatnsfallsorku.
Mikil drægni
Til að geyma vetnið í Nexo
jeppanum eru þrír tankar. Drægni
hans er rúmlega 600 km sem er
mun meiri en forvera hans Hyundai
Tucson sem hefur m.a. verið á
markaði í Suður-Kaliforníu. Þá
er drægnin líka aðeins meiri en á
Honda Clarity vetnisbílnum sem
kemst 366 mílur, eða um 589 km
á hleðslunni, og Toyota Mirai,
sem kemst 312 mílur, eða 502 km
á einni tankfyllingu. Tesla hefur
heldur ekki tekist að slá Nexo út, en
Tesla Model S 100D vetnisbíllinn
kemst „ekki nema“ 335 mílur, eða
539 km á tankhleðslunni.
Betri nýting á eldsneyti
Hyundai hefur tekist að ná
talsvert betri nýtingu með nýjum
efnarafal sem umbreytir vetninu í
raforku. Hefur nýtingarstuðullinn
á vetnisorkunni hækkað úr 55% í
60% sem samt vart er þó hægt að
hrópa húrra fyrir.
Hyundai hefur unnið að smíði
vetnisorkukerfis síðan 1998, en
fyrsta prufugerðin af slíkum bíl
kom á götuna í Tucson bíl árið
2000. Nýja útgáfan af efnarafalnum
er mun öflugri en fyrirrennarinn,
auk þess að vera minni, léttari og
með betri orkunýtni. Þá getur hann
unnið á mun víðara hitasviði sem
talið er gefa honum betri endingu.
Þá er hægt að kaldstarta nýja
vetnisbílnum í frosti allt niður í
-22 gráðum, en kuldi hefur einmitt
verið einn helsti Akkilesarhæll
vetnisbíla en samt ekki eins mikill
og rafhlöðuknúinna rafbíla.
Snerpan þolanleg
Efnarafallinn gefur 100 kílówött en
vetnisbíllinn er þó ekki eins snarpur
og hreinn rafbíll eins og Kona
sportjeppinn sem kemst þó ekki
„nema“ 415 km á einni raffyllingu.
Þannig er Nexo vetnisjeppinn 9,2
sekúndur að komast úr 0 í 60 mílna
hraða (96,6 km) á meðan Hyundai
Kona rafbíllinn er 7,6 sekúndur að
ná sama hraða. /HKr.
Geislar sólarinnar virkjaðir til eldunar
Bandaríski frumkvöðullinn
Patrick Sherwin á og rekur
fyrirtækið GoSun í kringum
vörur sem hann hefur hannað
og þróað sem nota eingöngu
geisla frá sólu til ýmist að kæla
niður matvæli nú og eða elda
á sérstöku sólargrilli. Patrick,
sem er sérfræðingur í sólarorku,
byrjaði vöruþróun í bílskúrnum
heima hjá sér því hann hafði það
markmið að hanna vörur þar
sem fólk gæti eldað matinn sinn
á umhverfisvænan hátt.
Fyrirtækið óx hratt og í dag
hefur Patrick meðal annars fengið
til liðs við sig unga hönnuði,
verkfræðinga og hugmyndasmiði
sem trúa á hugmyndafræði
hans. Patrick segir að í dag eldi
um þrír milljarðar manna með
óhreinum orkugjöfum eins og
eldivið, mykju eða kolum og
afleiðingar af því sé hátt hlutfall af
öndunarfærasjúkdómum hjá fólki.
Þar að auki leiði skortur til dæmis
á eldivið oft til þess að fjölskyldur
í sumum heimshlutum þurfa að
eyða mörgum klukkustundum í
að verða sér úti um og flytja hann
á sínar heimaslóðir í vistkerfum
sem séu nú þegar í hættu. Þurfi
þessir sömu íbúar hins vegar að
kaupa eldiviðinn þá er það ansi
hátt hlutfall af heildarinnkomu
fjölskyldunnar.
Margir kostir sólargrillsins
„Ég var búinn að eiga í basli með
að taka í sundur vatnshitaratæki
sem hitað er af sólinni þegar ég
uppgötvaði að sennilega gæti ég
upphitað hádegismatinn minn
með vakúmrörinu sem lá við
hliðina á mér. Þegar maturinn kom
heitur og grillaður út úr rörinu þá
varð það opinberun fyrir mér,“
segir Patrick, sem hafði í mörg
ár unnið í þróunarlöndum við að
aðstoða fólk að fá orku til sín á
sem ódýrastan og einfaldastan
hátt. Einnig starfaði hann sem
sjálfboðaliði til að koma í veg
fyrir orkufátækt á Haítí og í
Suður-Ameríku.
Hugmynd Patricks er að með
sólargrillinu geti fólk eldað matinn
sinn án nokkurs jarðefnaeldsneytis,
kola eða eldiviðar og að enginn
skað legur reykur myndist við eldun
með sólargrillinu en Alþjóða heil-
brigðis málastofnunin áætlar að um
4 milljónir manna deyi á hverju ári
vegna öndunarfærasjúkdóma sem
eru afleiðing af eldun með föstu
eldsneyti. Sé grillið notað daglega
getur það sparað um tvö tonn af
losun gróðurhúsalofttegunda á ári
hverju á hverja fjölskyldu. /ehg
Bandaríski frumkvöðullinn Patrick Sherwin, sem á og rekur fyrirtækið GoSun,
ferðaðist um Bandaríkin í 40 daga í mars þar sem hann neytti eingöngu
matar sem eldaður var með sólargeislum.
Á hverjum degi elda um 40 prósent jarðarbúa við opinn eld og ganga þar
með á skóga heimsins en með GoSun-grillinu þarf einungis geisla sólar til
að elda matinn.
Spegill beinir sólarljósinu að sívalningi sem hitar matinn sem í honum er.
Hyundai bindur miklar vonir við nýja Nexo-vetnissport-
jeppann. Mynd / HyundaiÓMISSANDI Í SAUÐBURÐINN
LAMBBOOST OG FLORYBOOST eru fæðubótarefni sem verka styrkjandi og
efla ónæmiskerfi unglamba. 100% náttúrulegar vörur sem löngu hafa sannað sig.
Auðvelt í notkun, þarf ekki að blanda og kemur með íslenskum leiðbeiningum.
Nánari upplýsingar hjá dýralæknum og umboðsaðila www.dyraheilsa.is
Lambboost er fæðubótarefni sem er auðugt af
broddmjólk og næringarefnum og er sérstaklega
hannað með þarfir lítilla og léttra lamba í huga.
Heilbrigð þarmaflóra – Mjólkursýrugerlar
Eflir ónæmiskerfið – Broddur
Örvandi – Jurtakraftur (kóla, gúarana)
Eykur líkamlegan styrk – Flókin samsetning vítamína og járns
Eykur orku – Nauðsynlegar fitusýrur, glúkósi, þríglyseríðar
LAMBBOOST
FLORYBOOST
Floryboost stuðlar að jafnvægi þarmaflórunnar og
saltbúskap líkamans þegar meltingartruflanir gera vart við sig.
Verndar þarmana – Viðarkol og leir sem draga í sig eiturefni
Kemur jafnvægi á saltbúskap líkamans – Natríumklóríð,
magnesíumklóríð, kalíumklóríð og fosföt
Eykur orku – Dextrósi
Styrkir erta slímhúð – Nauðsynlegar olíur unnar m.a. úr rósmaríni,
cajeput, timótei og thymol