Bændablaðið - 28.03.2019, Blaðsíða 6
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. mars 20196
Breytingar eru hluti af lífinu. Þær verða
ýmist vegna einhvers sem við ákveðum
sjálf að breyta eða einhverju sem breytist
í umhverfi okkar og við höfum lítil áhrif
á. Þær breytingar sem við ákveðum sjálf
hafa eitthvert markmið – og við erum þá
að stefna þangað.
En hvert stefnir íslenskur landbúnaður?
Öll viljum við framleiða góðar vörur á sem
hagkvæmastan hátt og hafa af því sanngjarna
afkomu. En hvað svo? Hver er framtíðarsýn
okkar bænda varðandi landbúnaðinn sem við
stundum? Hvernig mynduð þið, lesendur góðir,
orða þá framtíðarsýn? Hugsið aðeins um það.
Allur heimurinn er að tala um landbúnað.
Allur heimurinn er að velta fyrir sér framtíðinni
og fæðunni. Umræðan á Íslandi er hins vegar
sett upp á svolítið öðrum forsendum eins og
til dæmis orðræðan um innflutning á ófrystu
kjöti sýnir. Er það svo að bændur deili þessari
sýn? Nú er það alltaf svo að mál í umræðu
dagsins geta stundum yfirskyggt stærri sýn
á málið, en mig langar til að biðja ykkur að
lyfta umræðunni aðeins yfir átakalínuna um
innflutning á kjöti og horfa til lengri framtíðar.
Framtíðarsýn
Ég á mér skýra sýn um framtíð landbúnaðar á
Íslandi og hvar hann verður staddur eftir einn
til tvo áratugi.
Við verðum nær sjálfbær og rekum öflug
fjölskyldubú um allt land. Við framleiðum allt
svínakjöt, kjúkling, egg, nautakjöt og lambakjöt
sem neytt er í landinu. Grænmetisrækt er orðin
meiri háttar atvinnugrein eftir að tekin var
ákvörðun um að nýting orkuauðlindanna
yrði frekar á sviði garðyrkju og ræktunar
en stóriðju. Mjólkurframleiðslan er í blóma
þar sem við gerum út á sérstöðu okkar og
ferðaþjónustan treystir á að bændur byggi
landið allt. Loðdýraræktin nær sér á strik,
hrossaræktin ber hróður okkar um víða
veröld og íslenska geitin hefur vart undan að
framleiða mjólk í verðmæta geitaosta. Skógar
landsins skapa bændum stöðugar tekjur og
lífræn ræktun, sala beint frá býli og ýmis
hlunnindanýting vex hratt.
Sveitin er eftirsótt af ungu fólki sem skapar
sér líf úti á landi því það er fullt af tækifærum
bæði í hefðbundnum búskap, nýsköpun tengdri
búskapnum eða annarri starfsemi. Innviðir
sveitanna eru í góðu standi þar sem landið er
orðið ljóstengt, þriggja fasa rafmagn komið á
alla bæi og vegirnir hafa verið bættir og eru
nú allir malbikaðir.
Á Íslandi ríkir sátt um metnaðarfulla
landbúnaðarstefnu. Bændur eru öflugir
þátttakendur í að ná markmiðum Íslands í
loftslagsmálum með uppgræðslu og skógrækt.
Lögð er áhersla á að landbúnaðurinn sé eins
vistvænn og hægt er.
Þetta er mín framtíðarsýn, en saman
verðum við íslenskir bændur að móta okkar.
Við þurfum að velta fyrir okkur á breiðum
grunni hvernig við viljum sjá þróunina í
landbúnaðinum til frambúðar. Við eigum að
setja okkur metnaðarfulla stefnu, þar sem
bæði er tekið á því hvernig við viljum sjá
landbúnaðinn þróast en ekki síður um þau skref
sem við viljum taka til þess að framleiðslan sé
í fullkominni sátt við umhverfið. Hvaða leiðir
viljum við fara til að ná þessum markmiðum?
Framtíðin er full af tækifærum
Á næstu vikum hefst vinna Bændasamtaka
Íslands við að rýna og móta betur stefnu
íslenskra bænda. Að verkinu munu koma
starfsmenn okkar og aðildarfélög. Þessi stefna
á og þarf að verða lifandi plagg sem gefur
glögga mynd af því hvert við viljum stefna. En
til þess að þetta verði stefnan okkar þá viljum
við fá sem flestar hugmyndir.
Kæru bændur, skrifið niður ykkar sýn eða
áherslur því nú köllum við eftir hugmyndum
ykkar. Sendið á framtid@bondi.is ykkar
sýn. Spennandi verður að heyra frá ykkur.
Framtíðin er full af tækifærum og það er okkar
val hvernig við nýtum þau tækifæri! Ég hlakka
til hennar.
Bændablaðið kemur út 24 sinnum á ári. Því er dreift ókeypis á yfir 400 stöðum
á landinu og á öll lögbýli landsins.
Lesendur geta einnig gerst áskrifendur að blaðinu og fengið það sent heim í pósti
gegn greiðslu. Árgangurinn kostar þá kr. 10.900 með vsk. (innheimt í tvennu lagi).
Ársáskrift fyrir eldri borgara kostar 5.450 með vsk.
Heimilisfang: Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík.
Sími: 563 0300 – Fax: 562 3058 – Kt: 631294–2279
Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands. − Málgagn bænda og landsbyggðar −
SKOÐUN
Íslenskur landbúnaður hefur tekið
algjörum stakkaskiptum á síðustu
100 til 200 árum samhliða umbyltingu
þjóðfélagsins. Í dag er íslenska þjóðin
orðin ein sú ríkasta í heimi með full yfirráð
yfir eigin auðlindum í sjó og á landi. Þar
eru samt alvarlegar blikur á lofti hvað
varðar mismunun í samkeppnisstöðu og
ásælni erlendra ríkja í íslenska orku og
aðrar auðlindir.
Á ársfundi Bændasamtaka Íslands sem
haldinn var þann 15. mars síðastliðinn voru
flutt nokkur áhugaverð erindi um möguleika
sem felast í íslenskum landbúnaði. Þar má
nefna lífræna framleiðslu af öllu tagi sem er
hér nánast óplægður akur, en er ört vaxandi
í okkar nágrannaríkjum.
Örn Karlsson, bóndi á Sandhóli í
Meðallandi, sagði þar m.a. frá þeim góða
árangri sem honum og hans fólki hefur tekist
að ná við ræktun á höfrum og framleiðslu á
alíslensku haframjöli. Benti hann einnig á þá
mismunun sem íslenskum bændum er gert
að búa við í kornrækt gagnvart kollegum á
hinum Norðurlöndunum varðandi framfylgni
við evrópskar aðbúnaðarreglugerðir.
Þeir sem gerst þekkja til í þessum efnum
segja þó að grunnreglurnar samkvæmt EES
samningnum séu þær sömu. Hins vegar er
framkvæmd eftirlits og eftirfylgni með
framkvæmd reglugerða oft með gjörólíkum
hætti. Eins og hvað varðar notkun alls konar
hjálparefna í landbúnaði sem hér á landi eru
lítið eða ekkert brúkuð.
Í skýrslu Evrópusambandsins sem birt var
2017 um sjálfbæra notkun hjálparefna á borð
við skordýraeitur og gróðureyðingarefni,
kom í ljós að innan ESB-landanna er á þessu
mikill misbrestur. Flest ESB-landanna hafa
ekki fylgt eftir innleiðingu á reglugerðum
um þessi mál og sum þeirra hafa ekki einu
sinni markað sér stefnu á þeim vettvangi.
Það á m.a. við um notkun á eiturefninu
glyfosat sem rannsóknarstofnanir hafa
staðfest að getur verið hættulegt mönnum.
Í ræktun búfjár hafa kjötframleiðslu-
greinar í Evrópu líka komist upp með
að nota margháttuð sýklalyf sem
vaxtarhvetjandi efni til að framleiða ódýrara
kjöt. Það hefur leitt til vaxandi útbreiðslu
á sýklalyfjaónæmum bakteríum sem er
farið að skaða heilbrigðiskerfið og valda
stórfelldu manntjóni. Slíkt er með öllu
óheimilt á Íslandi og er ekki stundað. Það er
reyndar líka sagt ólöglegt í ESB-ríkjunum,
en hefur ekki verið fylgt eftir. Vegna þessa
hafa íslenskir bændur því alls ekki staðið
jafnfætis erlendum kollegum sínum við
framleiðslu á nautakjöti, alifuglakjöti og
svínakjöti.
Stöðugt eru gerðar kröfur um aukið
heilnæmi kjötafurða og annarrar matvöru.
Slíkum kröfum ber að fagna. Það er því
dapurlegt þegar hart er gengið fram í því
að fullkomið frelsi verði gefið til að flytja
inn hrátt kjöt frá erlendum bændum sem
sniðganga allar reglur sem íslenskum
bændum er gert að fara eftir. Hvernig er
hægt að ætlast til að íslenskir bændur keppi
við slíkan sóðaskap á jafnréttisgrunni?
Enn skal höggvið í sama knérunn
íslenskra bænda. Nú er það ásælni í okkar
orkulindir sem er undir með innleiðingu
á orkupakka 3 frá Evrópusambandinu.
Samband garðyrjubænda hefur varað mjög
sterklega við þeim áformum. Það myndi
leiða til verulegra hækkana á orkuverði
fyrir almenning og framleiðslufyrirtæki
á Íslandi, þ.m.t. í garðyrkju. Slíkt myndi
rýra lífskjör almennings og draga mjög úr
samkeppnishæfni innlendrar framleiðslu.
Mörg garðyrkjufyrirtæki legðu mögulega
niður starfsemi auk ótalinna áhrifa á aðrar
innlendar framleiðslugreinar. Svo ekki sé
talað um aukið kolefnisspor vegna aukningar
á matvælainnflutningi. – Er þetta virkilega
það sem Íslendingar vilja? /HKr.
Hvert ætlum við að stefna?
Ritstjóri: Hörður Kristjánsson (ábm.) hk@bondi.is – Sími: 563 0339 − Rekstur og markaðsmál: Tjörvi Bjarnason tjorvi@bondi.is – Blaðamenn: Margrét Þ. Þórsdóttir mth@bondi.is – Sigurður Már Harðarson
smh@bondi.is – Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is – Auglýsingastjóri: Guðrún Hulda Pálsdóttir ghp@bondi.is – Sími: 563 0303 – Netfang auglýsinga: augl@bondi.is − Vefur blaðsins:
www.bbl.is − Netfang blaðsins: (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is
Frágangur fyrir prentun: Anna Kristín Ólafsdóttir – Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: sjá forsíðu – Dreifing: Landsprent og Íslandspóstur. ISSN 1025-5621
ÍSLAND ER LAND ÞITT
Guðrún S. Tryggvadóttir
formaður Bændasamtaka Íslands
gst@bondi.is
Innri-Fagridalur á Skarðsströnd við innanverðan Breiðafjörð. Geitadalur til vinstri, en beint fram undan er Fagridalur. Hæst gnæfir Skeggöxl í
813 metra hæð. Mynd / HKr.
Samkeppnismisvægi