Bændablaðið - 28.03.2019, Blaðsíða 29

Bændablaðið - 28.03.2019, Blaðsíða 29
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. mars 2019 29 Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 HAUGHRÆRUR - Vörubílar - Rútur - Vinnuvélar Vantar þig veggi? Stilltu þeim upp eftir eigin höfði með vegghleðslusteinum Hafðu samband! Sölumenn okkar aðstoða með ánægju í síma 412 5050 eða á sala@bmvalla.is bmvalla.is 80/ 160 cm 8 0 c m 80cm Fáanlegur í tveim stærðum Vegghleðslusteinar frá BM Vallá eru sterkir og stöðugir og bjóða upp á ‚ölbreytta notkun. Þeir eru fljótlegir í uppsetningu, hægt er að raða þeim upp að vild og þú losnar við uppslátt og steypu. Steinarnir henta vel einir og sér, eða með öðrum byggingarefnum, til dæmis í skjólveggi, skilrúm ýmiskonar eða geymslu fyrir vélar, hey, jarðveg og margt fleira. KY NN INGARVER Ð 25.000KR. STK.Ó H ÁÐ STÆR Ð vinsælasta prjónagarnið sé ódýrast í verslunum. Gríðarlegu magni hliðarafurða hent Hulda segir að í nóvember síðastliðnum hafi Icelandic lamb veitt þeim viðurkenningu fyrir framúrskarandi verkefni á sviði ullarvinnslu og handverks, en mánuði síðar hafi sú deild innan Icelandic lamb verið lögð niður – sem væri slæmt fyrir þessa grein. Hulda sagði að hliðarafurðir geti vel skilað sínu inn í sauðfjárbúskapinn og nefndi starfsemina í kringum Uppspuna sem dæmi um það – hún ætti að geta veitt innblástur til betri verka. Icelandic lamb hafi skilað öflugu starfi til að efla kjötsölu í landinu; kynningarstarf til útlendinga hafi skilað heilmiklu og neysla innanlands hafi staðið í stað. Það væri góður árangur samanborið við útlönd, þar sem kindakjötsneysla hafi víðast hvar dregist saman. Icelandic lamb hafi líka skilað góðu starfi varðandi handverk og ull og þess vegna harmi hún að sá hluti verkefnisins hafi verið lagður niður. Á þeim tímum þar sem allt snýst um umhverfisvernd og það að minnka sóun, sé hér á Íslandi stunduð kjötframleiðsla þar sem gríðarlegu magni hliðarafurða sé sóað. Markaðir fyrir innmat og gærur hafi þrengst og lokast með þeim afleiðingum að beinum, gærum og innmat sé hent. Það sé heilmikil þyngd í þessu sem þarf að fara með á haugana með tilheyrandi kostnaði fyrir afurðastöðvarnar sem legðist síðan ofan á sláturkostnað bænda. Milliliðalaus viðskipti framleiðenda og neytenda Oddný Anna Björnsdóttir, verktaki hjá Matarauði Íslands, var síðust á mælendaskrá ráðstefnunnar og kynnti fyrirbærið REKO sem rekið er í gegnum Facebook-síður. REKO er sænsk skammstöfun og stendur fyrir sjálfbæra og heiðarlega viðskiptahætti en hugmyndafræðin er finnsk og er notuð á Norðurlöndunum, Ítalíu og í Suður-Afríku. Bændur, heimavinnsluaðilar og smáframleiðendur tengjast neytendum og veitingamönnum í gegnum tilteknar Facebook-síður, sem eru flokkaðar svæðisbundið. Í aðalatriðum virkar REKO þannig, samkvæmt Oddnýju, að framleiðendur stofna hóp á Facebook og bjóða neytendum og veitingamönnum í hópinn. Stjórnendur hvers hóps búa til viðburð fyrir hverja afhendingu á vörum og þeir framleiðendur sem vilja taka þátt í þeim viðburði setja inn færslu í viðburðinn þar sem þeir tiltaka hvaða vörur þeir hafi að bjóða og hvað þær kosti. Síðan bjóða þeir á viðburðinn og honum er deilt á milli fólks til auglýsa hann upp. Kaupendur panta svo með því að skrifa athugasemdir undir viðeigandi færslu inni í viðburðinum. Framleiðendurnir senda þeim sem panta hjá þeim greiðsluupplýsingar og hvað pöntunin kostar og kaupendur greiða rafrænt fyrir pöntunina fyrir afhendinguna. Á afhendingardeginum mæta framleiðendur með vörurnar á afhendingarstaðinn á tilgreindum tíma og afhenda kaupendum. REKO-hópar eru nú reknir í tengslum við sjö landsvæði; Reykjavík/höfuðborgarsvæðið, Vesturland, sunnanverða Vestfirði, norðanverða Vestfirði, Norðurland, Austurland og Suðurland og hafa afhendingar átt sér stað í öllum þessum hópum nema á norðanverðum Vestfjörðum. Hagkvæm og skilvirk viðskipti Að sögn Oddnýjar eru markmið REKO að gera viðskipti með matvæli úr héraði, sem ekki eru í almennri dreifingu í matvöruverslunum, hagkvæm og skilvirk – og efla nærsamfélagsneyslu. Markmiðin eru einnig að gera matarhandverki og heimavinnslu hærra undir höfði, stuðla að aukinni nýsköpun á sviði matvæla um land allt, auka framlegð í gegnum milliliðalaus viðskipti, draga úr matarsóun með leiðum til að selja útlitsgallaðar vörur, gefa neytendum tækifæri til að þekkja sinn bónda og sinn mat og styrkja tengslanet bænda, heimavinnsluaðila og smáframleiðenda. /smh Ráðstefnugestir á Hótel Örk. Myndir / HKr. Oddný Anna Björnsdóttir, útskýrði fyrirbærið REKO.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.