Bændablaðið - 28.03.2019, Blaðsíða 39

Bændablaðið - 28.03.2019, Blaðsíða 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. mars 2019 39 Víkurvagnar ehf. – Hyrjarhöfði 8. – 110 Reykjavík Sími 577-1090 – www.vikurvagnar.is – sala@vikurvagnar.is STYRKUR, ÞJÓNUSTA OG ÁREIÐANLEIKI MIKIÐ ÚRVAL KERRUVARAHLUTA VÍKURVAGNAR EHF. RAFMAGNSBÚNAÐUR BREMSUR BEISLI DEKK LJÓS LED LJÓS Göngum til liðs við gróðurinn Með straumum vinds og sjávar nam melgresisfræ land og tók að vaxa hér rétt eftir síðustu ísöld eða þegar jöklar hófu að hopa. Því má segja að melgresi sé ein af landnámsplöntum íslensku flórunnar. Fyrr á tímum var melgresi nýtt frá rót til fræja. Nytjahlutir voru ofnir úr löngu rótarkerfinu, stráin voru nýtt til einangrunar og fullþroska korn nýtt í matseld. Því má halda því fram að melgresi og nýting þess sé hluti af íslenskum menningararfi sem vert væri að halda til haga og jafnvel endurvekja. Nú til dags er melgresi nánast eingöngu nýtt til landgræðslu en það vex og dafnar á sandauðnum og er mikilvæg brú á milli svartra sanda og samfelldrar gróðurþekju. Ísland er að stórum hluta þakið svörtum sandi þar sem lítill sem enginn gróður vex, en þegar við mannfólkið settumst að hér á þessari eyju úti í ballarhafi var Ísland þakið gróðri. Með ágangi okkar manna hafa vistkerfin hrunið vegna ósjálfbærrar landnýtingar, hamfara svo sem eldvirkni og veðurfars eða samblands allra þessara þátta og gróðurþekjan hefur því snarminnkað. Nú þegar höfum við glatað heilu landsvæðunum en til þess að ekki fari verr þurfum við að grípa inn í af enn meiri krafti svo að landið okkar og jarðvegur spænist ekki upp á komandi árum. Til þess að vindurinn feyki ekki sandinum/jarðveginum út í buskann þarf hann bindingu og þar kemur gróðurinn til skjalanna, hann bindur jarðveg. Gróður er afar takmarkaður á sandauðnum landsins og þær eru því vindinum auðveld bráð. Aðgerðir til að hefta sandfok og binda jarðveg eru því afar brýnar. Jarðvegur er okkur lífverum hér á jörðinni einstaklega mikilvægur. Hann sér okkur fyrir næringu og veitir okkur skjól. Jarðvegur geymir sögu og býður okkur upp á útivist, afþreyingu og miðlar vatni. Jarðvegur vinnur fyrir okkur það mikilvæga verk að varðveita næringarefni og binda niður kolefni sem finnst í andrúmsloftinu. Þegar sandur eða önnur jarðefni takast á loft og fjúka getur mikil eyðilegging átt sér stað. Sandurinn eyðir grónu landi í kring og smátt og smátt kæfir hann gróðurinn og sandauðnirnar stækka. Það er því nokkuð ljóst að við þurfum að bretta upp ermar og koma í veg fyrir fekari skaða en þann sem þegar er orðinn. Þó að sandauðnirnar færi okkur sérstæða náttúrufegurð og víðáttumikla auðn sem heillar marga þá eru þær okkur frekar til ama en hitt. Þær takmarka meðal annars fjölbreytt dýra- og gróðurlíf, eyða öðrum gróðri og minnka loftgæðin. Kjöraðstæður fyrir vöxt og viðgang melgresis er sandur. Þegar melgresi sest þar að lifir það þar um nokkurt skeið þar til aðrar plöntur nema þar land og þegar fram í sækir víkur melgresið fyrir öðrum gróðri. Gróðurinn bindur jarðveginn og smátt og smátt byggist upp jarðvegur þar til gróðurþekja hylur landið. Það hefur í för með sér að jarðvegur hefst síður á loft, mengar síður og eyðir ekki öðrum gróðri. Dýralíf dafnar bæði ofan jarðar og neðan. Fuglalíf verður fjölbreyttara og ýmiss konar skordýr og örverur setjast þar að. Landgræðslan hefur nýtt melgresi til uppgræðslu í meira en hundrað ár með góðum árangri. Hún hefur samt ekki undan. Nú er kominn tími til að við endurgjöldum móður jörð og bætum fyrir áganginn með því að komast í snertingu við okkar eigið land. Hvað með að safnast saman á sandinum með fræ í skjóðu sem skjóta rótum með hækkandi sól? Göngum til liðs við gróðurinn og hjálpum jarðveginum að græða sín sár sjálfur með hjálp melgresis. Hugum að sjálfbærri framtíð með það að leiðarljósi að endurheimta jörð og jarðveg. Signý Jónsdóttir, nemandi við vöruhönnunardeild Listaháskóla Íslands ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA, SMÍÐI OG SAMSETNING ALLAR HURÐIR SMÍÐAÐAR SAMKVÆMT MÁLI HANNAÐAR FYRIR ÍSLENSKT VEÐURFAR MARGAR ÚTFÆRSLUR OG LITAMÖGULEIKAR STUTTUR AFGREIÐSLUTÍMI ✔ ✔ ✔ ✔ ✔ BÍLSKÚRSHURÐIR IS Hurðir ehf. | Reykjalundi, 270 Mosfellsbæ 564 0013 / 865 1237 | logi@ishurdir.is | www.ishurdir.is Í S L E N S K F R A M L E I Ð S L A Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 RÚÐUR Í DRÁTTARVÉLAR FRÁBÆR VERÐ John Deere Zetor Case IH McCormick Steyr Claas Ford Fiat New Holland Deutz-Fahr Massey Ferguson Dýralæknir óskast til starfa Nautastöð Bændasamtaka Íslands óskar eftir að ráða dýralækni til starfa. Mögulegt er að um hlutastarf verði að ræða. Starfið felst m.a. í eftirfarandi þáttum: 1. gæðaeftirliti á stöðinni. 2. rannsóknum og skimun á sæði. 3. alhliða frjósemisleiðbeiningum fyrir frjótækna og bændur. 4. námskeiðum fyrir nýja frjótækna. 5. umsjón með heilbrigði og velferð nauta á stöðinni. 6. öðrum verkefnum sem honum eru falin. Æskilegt er að viðkomandi hafi: • sérmenntun í frjósemi jórturdýra. • reynslu í kúasæðingum. • reynslu af starfi við sæðingastöð. • reynslu af frjósemisleiðbeiningum til bænda. Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf sem fyrst. Umsóknum, ásamt fylgiskjölum, skal skila til Sveinbjörns Eyjólfssonar á Nautastöð BÍ fyrir 15. apríl nk. Nánari upplýsingar um starfið gefur Sveinbjörn Eyjólfsson í gegnum netfangið bull@emax.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.