Bændablaðið - 28.03.2019, Blaðsíða 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 28. mars 20198
Að undanförnu hafa drög að
frumvarpi til laga um breytingar
á lögum um dýrasjúkdóma
og matvæli vakið hörð
viðbrögð meðal sérfræðinga
í sýkla- og veirufræðum sem
og hjá bændum. Var þetta
einnig til umræðu á ársfundi
Bændasamtakanna sem haldinn
var í Hveragerði föstudaginn
15. mars, m.a. í ræðu Katrínar
Jakobsdóttur forsætisráherra
sem telur matvælalöggjöf
Evrópusambandsins um margt
gallaða.
Í útskýringum með frumvarps
drögunum segir m.a. að á síðustu
tveimur árum hafa bæði EFTA
dómstóllinn og Hæstiréttur
Íslands staðfest að íslensk
stjórnvöld hafi með þessu brotið
gegn skuldbindingum sínum
samkvæmt EESsamningnum.
Þá hafi skaðabótaskylda íslenska
ríkisins vegna þessa verið staðfest.
Með hliðsjón af því er lagt til með
frumvarpi þessu að núverandi
leyfisveitingarkerfi verði afnumið.
Stjórnvöld sett í erfiða stöðu
Í viðtali við Bændablaðið fyrir
fundinn Í Hveragerði sagði Katrín
að dómurinn setti stjórnvöld
auðvitað í mjög erfiða stöðu.
„Ég held að það séu allir
sammála um það að mikilvægt sé
að hleypa ekki EESsamningnum
í uppnám. Um leið hefur umræðan
breyst að mínu mati mjög mikið
og fólk er að átta sig betur á því
að matvælalöggjöf Evrópu tekur
ekki mið af heilbrigðismálum eins
og ég kýs að kalla það. Það er að
segja hvað varðar matvælaöryggi
og fæðuöryggi eins og við viljum
sjá það á tuttugustu og fyrstu
öldinni.“
Ráðherra leggur áherslur á að
reisa nýjar varnir
„Það sem ráðherrann [Kristján
Þór Júlíusson, sjávarútvegs og
landbúnaðarráðherra] hefur verið
að leggja áherslu á er að það verði
reistar nýjar kamfýlóbakter og
salmonelluvarnir. Sömuleiðis
hefur hann lagt af stað í verkefni
með heilbrigðisráðherra hvað
varðar sýklalyfjaónæmi. Ég veit
að ráðherrann mun eiga fundi með
Evrópusambandinu um þau mál.
Það sem ég held að staðan kalli
á er að við þurftum að bregðast
við dómnum. Við þurfum hins
vegar líka að fara í þá vinnu sem
þarf til að tryggja þá einstöku
stöðu sem við erum með gagnvart
búfjársjúkdómum.“
Smitað svínakjöt flutt til
landsins og vottað sem ósmitað
af ESB
Í síðustu viku birti Matvælastofnun
(MAST) frétt um vöktun á
sýklalyfjaónæmi í kjöti og dýrum
á árinu 2018. Náði skimunin til
900 bakteríustofna. Þar kemur
fram að sýklalyfjaónæmi sé til
staðar í íslensku búfé en minna
en í flestum Evrópulöndum og í
sumum tilfellum ekkert.
Ekkert salmonelluónæmi
fannst t.d. í alifuglum. Þá fannst
ekki MÓSA (methicillin ónæmir
Staphylococcus aureus) í svínum
hér á landi, en sú baktería hefur
breiðst ört út í Evrópu. Hins
vegar fundust reyndust tveir
salmonellustofnar sem voru
ónæmir fyrir sýklalyfjum í
svínakjöti á markaði hérlendis.
Voru báðir stofnarnir fjölónæmir.
Kjötið var frá Spáni og því
hafði fylgt salmonelluvottorð
við innflutning. Kjötið var
innkallað, en bar vöruheitið Lúxus
grísakótilettur.
Getum gert kröfu um að fá
einungis ósýkta vöru
Getum við ekki gert þá kröfu
varðandi innflutning landbúnaðar
afurða að þær séu framleiddar við
sambærilegar kröfur og skylt er að
gera hér á landi?
„Það er t.d. hægt að gera ákveðna
kröfu um að varan sé ekki sýkt.
Það hlýtur að vera eitthvað sem
stenst EESsamninginn. Þá er bara
verið að krefjast sambærilegra
heilbrigðiskrafna. Hér á landi er
auðvitað mjög mikið eftirlit með
því,“ segir Katrín.
„Mín skoðun er sú að þegar við
horfum á þessa matvælalöggjöf
Evrópusambandsins þá hafi hún ekki
tekið mið af þessum breytingum.
Hún snýst svo mikið um frjálsa
för og hrein viðskipti milli landa
og tekur ekki mið af þessum nýju
sjónarmiðum sem eru samt ekkert
ný fyrir þeim sem hafa verið á kafi
í þessum hlutum árum saman. Þau
eru hins vegar að koma meira upp
á yfirborðið í almennri umræðu
meðal neytenda. Það er kannski
það jákvæða við þetta mál sem mér
finnst að öðru leyti ekki gott. Þessi
dómur er auðvitað alveg skelfilegur,
en þær jákvæðu afleiðingar sem
hann hefur haft er að það sé ákveðin
vitundarvakning að verða um þessi
mál.
Þarna höfum við möguleika
á að koma okkar sjónarmiðum
að og ég veit að nálgun
landbúnaðarráðherrans, sem hefur
komið fram á þeim fundum sem
hann hefur haldið, er að reyna að
verja heilbrigðisstöðu íslensks
búfjár. Sömuleiðis að fara í aðgerðir
gegn sýklalyfjaónæmi.
Ég held að við séum þar á miklum
tímamótum og því mjög mikilvægt
að vel takist til.
Við sjáum bara þegar við horfum
til íbúa landsins hvað getur gerst ef
ekki er varlega farið. Við höfum
verið að kljást hér við mislinga sem
sýnir að það má svo lítið út af bregða
til að við getum misst niður okkar
stöðu. Það getur gerst mjög hratt,“
sagði Katrín Jakobsdóttir. /HKr.
FRÉTTIR
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðhera á ársfundi Bændasamtaka Íslands. Þar sagði hún að það þyrfti að fara í þá
vinnu að tryggja þá einstöku stöðu sem við erum með gagnvart búfjársjúkdómum. Mynd / HKr.
Stjórnvöld telja nauðsynlegt að bregðast við EES-dómunum og afnema frystiskyldu á hráum matvælum:
Matvælalöggjöf Evrópu tekur
ekki mið af heilbrigðismálum
– Hún snýst meira um frjálsa för og hrein viðskipti milli landa, segir Katrín Jakobsdóttir
Norðlenska:
Ræða uppbætur á sauðfjár-
innlegg á næsta stjórnarfundi
Stjórn Norðlenska hafa borist
áskoranir frá félögum sauð-
fjárbænda á starfssvæði félagsins
varðandi greiðslur uppbóta á
sauðfjárinnlegg haustsins 2018.
Ágúst Torfi Hauksson, fram
kvæmda stjóri Norðlenska, segir
að verðskrá félag sins síðastliðin
tvö ár hafi verið til skoðunar í
því samhengi, en félagið greiddi
uppbætur vegna innleggs ársins
2017 tvívegis á árinu 2018.
„Norðlenska hefur hugsað sér að
greiða uppbætur á innlegg með sama
hætti og gert var á árinu 2018, þar sem
greidd var uppbót vegna kjöts sem
þegar hafði verið selt á ásættanlegri
framlegð en ekki þess sem enn var
í birgðum,“ segir hann. „Í kjölfar
fyrrnefndra áskorana mun stjórn
því ræða á næsta fundi sínum hvort
félagið muni beita sömu aðferðarfræði
áfram eða endurskoða hana.“
/MÞÞ
Sameining Norðlenska, Kjarnafæðis og SAH afurða:
Áhugasamir fjárfestar
óskuðu eftir lengri fresti
„Sameiningarviðræður Norð-
lenska, Kjarnafæðis og SAH
afurða hafa gengið ágætlega, en
einhverjar tafir hafa þó orðið enda
málið ekki einfalt viðureignar,“
segir Ágúst Torfi Hauksson,
framkvæmdastjóri Norðlenska.
Hann segir að áhugasamir
fjárfestar hafi óskað eftir lengri
tímafrestum til að skila inn
óskuldbindandi tilboðum í hlut í
sameinuðu fyrirtæki.
„Tilboð hafa nú borist en það á
eftir að fara betur yfir þau og eins að
ræða við tilboðsgjafa,“ segir Ágúst
Torfi.
Boðað hafði verið til hlut
hafafundar í Búsæld, félagi sem á
Norðlenska, nú á laugardag 30. mars
í Mývatnssveit, en vegna tafa sem
orðið hafa hefur honum verið frestað.
Ágúst Torfi segir að nýtt fundarboð
verði sent út þegar ljóst sé hvenær
þeirri vinnu sem þarf að ljúka fyrir
hluthafafund verði lokið. /MÞÞ
Fé á Auðkúluheiði. Mynd / HKr.
Ágúst Torfi Hauksson, framkvæmdastjóri Norðlenska. Mynd / MÞÞ