Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2014, Síða 6
Sverrir Björn Björnsson
formaður við setningu þings LSS
Landssamband slökkviliðs-
og sjúkraflutningamanna
- a
Varar við að ríkið taki
yfir sjúkraflutninga
r
Eg el þá von í brjósti að ráðherra heilbrigðismála semji við sveitarfélögin um sjúkraflutninga.
Þannig verði tryggt að þessi grunnbráðaþjónusta landsins megi halda áfram að þróast til
góðs fyrir alla landsmenn, sagði Sverrir Björn Björnsson, formaður LSS, meðal annars við setn-
ingu þings LSS sem haldið var í Reykjavík 25.-26. apríl síðastliðinn. Sverrir Björn varaði mjög við því
að ríkið yfirtaki sjúkraflutninga og sagðist telja að þjónustan yrði ekki söm á eftir.
Þegar þingið fór fram var ósamið um
rekstur sjúkraflutninga við Slökkvilið
höfuðborgarsvæðisins, Brunavarnir
Suðurnesja og Slökkvilið Akureyrar
en þessi þrjú lið annast um 80 prósent
allra sjúkraflutninga í landinu. Sverrir
Björn sagðist telja að mikill mannauður
myndi tapast ef verkefnið færðist frá
slökkviliðunum til ríkisins. Hann sagði
þá þróun sem orðið hefur í sjúkra-
flutningum á undanförnum árum ekki
runna undan rifjum heilbrigðisyfir-
valda heldur kæmi til af metnaði stóru
atvinnuslökkviliðanna sem rekin eru af
sveitarfélögunum.
Hærra menntunarstig
hjá slökkviliðum
„Þar hefur framþróunin fyrst og fremst
átt sér stað. Því vil ég vara við því að
farin verði sú leið sem boðuð hefur
verið, að slíta í sundur rekstur slökkvi-
liða og sjúkraflutninga," sagði Sverrir
Björn og spáði því að aðskilnaður verk-
efnanna myndi leiða til skorts á mennt-
uðum sjúkraflutningamönnum.
Hann minnti á að LSS hefur á
síðustu mánuðum veitt á sjöttu
milljón króna úr sjóðum sínum til að
efla menntun sjúkraflutningamanna,
einkum þeirra sem starfa á lands-
byggðinni.
„Þörfin fyrir eflingu námsins var þó
mest þar sem sjúkraflutningaþjónustan
er á hendi ríkisins, hjá heilbrigðisstofn-
unum. Enn og aftur kemur það fram að
þar sem slökkvilið og sjúkraflutningar
eru samrekin er menntunarstigið mun
hærra en þar sem ríkið kemur beint
að þessari þjónustu," sagði Sverrir og
bætti við:
„Það er þó ekki bara svartnætti
framundan hjá okkur, gleðileg og
langþráð markmið LSS eru í burðar-
liðnum því ráðuneytið hefur veitt
Sjúkraflutningaskólanum fé til reksturs
svo nýtt og betra nám geti hafist með
nýju ári. Það er gleðilegt og ber að
þakka það sem vel er gert. Það gæti
orðið upphaf bjartari tíma ef deiluað-
ilar semja. í því sambandi má þó ekki
gleyma mikilvægi þess að koma á námi
fyrir bráðatækna hér á landi."
Kjarasamningar framundan
Sverrir Björn vék að gerð kjara-
samninga en LSS hefur nýlega
samið við Isavia og fjármálaráðuneytið.
Framundan eru viðræður við sveitar-
félögin en Sverrir Björn greindi frá
vandkvæðum sem komið hafa upp við
6 Slökkviliðsmaðurinn