Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2014, Side 31

Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2014, Side 31
Sveinbjörn Berentsson og Viðar Magnússon skrifa Nýjar áherslur í meðferð háls- og hryggáverka Sveinbjörn Berentsson, Viðar Magnússon, aðstoðarvarðstjóri/ yfirlæknir brdðaþjón- bráðatæknir SHS ustu utan sjúkrahúsa Áður þurfti maður ekki að læra mikið um sjúkraflutninga til þess að vita að allir þeir sem minnsti grunur leikur á að hafi fengið áverka á hálsi eða hrygg eiga að fá hálskraga og vera reyrðir niður á bretti áður en þeir eru fluttir á sjúkrahús. Þetta er staðalmeðferð og ákveðinn gæðastimpill á sjúkraflutningaþjónustu. En ef maður skoðar þann vísindalega grunn sem þessi aðferðafræði byggir á er hann afskaplega rýr. Svo rýr að hópur vísindamanna sem var fenginn til þess að meta þetta fyrir hönd Cochrane Collaboration komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri ljóst hvort gagn væri að skorðun á hrygg og óvíst væri þannig um áhrif skorðunar á lifun, taugaskaða, stöðugleika mænu og hliðarverkanir af meðferðinni hjá slösuðum einstaklingum. Ýmsar smærri rannsóknir eru þó til sem mæla bæði með og á móti skorðun. Vandamálið er hins vegar að þetta er ekki alsaklaus meðferð því vísbendingar eru um að skorðun geti stuðlað að lokun öndunarvegar hjá slösuðum, valdið legusárum og jafnvel aukið á mænuáverka. Skynsemin talar þó áfram fyrir varfærnislegri meðferð sjúklinga sem hugsanlega eru með óstöðuga áverka á hálsi eða hrygg. En hvað er varfærnis- leg meðferð? Er það kragi og bretti eða kemur eitthvað annað til greina? Ókostir bakbretta Varðandi brettin má benda á að: • Bakbretti aðlaga sig ekki að sveigju hryggjar. • Bakbretti valda auknum þrýstingi á hryggjarliði. • Bakbretti eykur verki. • Bakbretti veldur þrýstingssárum í löngum flutningum. • Bakbretti gera öndunaraðstoð erfiðari. • Skorðun á bakbretti kemur ekki í veg fyrir hliðarhreyfingar. • Eini hluti líkamans sem er tryggi- lega fastur er höfuðið. • Bakbretti auka líkur á varanlegum skaða. Ókostir hálskraga Einnig hefur verið sýnt fram á það að hálskragar séu ekki það undratól sem af er látið: • Rangt stilltur hálskragi getur valdið frekari skaða. • Röng ásetning getur valdið frekari skaða. • Of þröngur hálskragi getur leitt til hækkunar á innankúpuþrýstingi. • Allt að 30° hreyfing í allar áttir. • Geta myndað allt að sjö mm tog á áverkastað. • Vakandi sjúklingar verja sig betur sjálfir. Hvað þá? Hvað gerum við þá? Fólk hættir ekki að slasast. Hlutfall þeirra sem slasast og eru með alvarlega, óstöðuga áverka á hálsi og hrygg er sam- kvæmt rannsóknum um tvö prósent. Sjúkraflutningamenn þurfa að hafa færni og verkfæri til þess að sinna þeim. Skröpur til þess að ná fólki beint upp án þess að velta því og flutningur á vacum dýnu ofan á sjúkrakörfu minnkar óþægindi við flutning samanborið við bakbretti. Að þessu ber að stefna. Rétt stilltum hálskraga skal koma fyrir en verði því ekki við komið á að nýta teppi, lök eða höfuðpúða til þess að skorða höfuð af. En hvað með hin 98 prósentin sem ekki þurfa fullan stuðning? Markmiðið á að vera að koma í veg fyrir óþarfa spelkun. Til þess þurfa sjúkraflutn- ingamenn verkferil eða leiðbein- ingar til aðstoðar við útilokun áverka. Canadian spine clearance protocol og NEXUS eru tveir ferlar sem hægt er að styðjast við. SHS ásamt yfirlækni utanspítalaþjónustu hefur hafið vinnu við þessar leiðbeiningar sem munu síðan líta dagsins ljós í vinnuferlum sjúkraflutningamanna. SLökkviLið höfuðborgarsvæðisins Slökkviliðsmaðurinn 31

x

Slökkviliðsmaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Slökkviliðsmaðurinn
https://timarit.is/publication/1435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.