Slökkviliðsmaðurinn - 01.06.2014, Síða 34
Metfjöldi á heimsleikana í Belfast
íslendingar náðu góðum árangri
á heimsleikum lögreglu- og
slökkviliðsmanna sem haldnir voru
í Belfast á Norður-írlandi í ágúst
2013. Að þessu sinni fór metfjöldi frá
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins,
rúmlega 40 manns. Þennan mikla
áhuga má meðal annars rekja til þess
að sameiginlegt lið slökkviliðs- og
lögreglumanna sendi lið til leiks í
íshokkí. Liðið, sem var stofnað fyrir
aðeins þremur árum, stóð sig mjög
vel og var gríðarlega vinsælt meðal
heimamanna í Belfast.
Ríkjandi heimsmeistarar íslenskra
slökkviliðs- og lögreglumanna í
körfubolta fóru hamförum. Þeir
unnu alla sína leiki með yfirburðum
og vörðu heimsmeistaratitilinn
auðveldlega. Golflið Slökkviliðs
höfuðborgarsvæðisins stóð sig
með stakri prýði á mjög erfiðum en
jafnframt stórskemmtilegum völlum.
Engin verðlaun unnust í golfinu
en það var mál manna að íslensku
slökkviliðsmennirnir væru flottastir í
tauinu.
Að venju komum við þó heim
hlaðnir verðlaunum. Körfuboltaliðið
vann gullið, Asgeir Gylfason fékk
enn eitt gullið í bekkpressu, Óttar
Karlsson vann gull og brons í sundi
og Ásgeir Valur Flosason náði einnig
í brons í sundi. Spjótkastarinn Friðrik
Theodórsson gerði sér lítið fyrir og
kastaði sptjótinu næst lengst allra
og fékk silfur og þeir Kristmundur
Carter og Pétur Ingi Guðmundsson
kræktu í silfurverðlaun í liðakeppni í
sjóstangveiði. Auk þess var keppt í 10
km og 5 km hlaupi, keilu, fjölþraut og
starfstengdum greinum.
Leikarnir í Belfast heppnuðust
einstaklega vel, allt skipulag og
framkvæmd var til fyrirmyndar og
íbúar Belfast virkilega elskulegir og
gestrisnir. Næstu heimsleikar verða
haldnir í Fairfax í Bandaríkjunum 26.
júní - 5. júlí 2015.
Fyrir áhugasama er hægt að nálgast
frekari upplýsingar um leikana á vef-
síðunni: www.fairfax2015.com
Sigurjón Ólafsson
l+t
SLYSAVARNAFELAGIÐ
LflNDSBJÖRG
HS ORKAHF
FIT
'VINBUÐIN
landhelgisgæsla islands
ICELANDIC COAST GUARD
rafeindaþjónusta
KADECO
112
EINN EINN TVEIR
ÖRYGGI OG TÆKNI
Alcoa Fjarðaál H
ALCO^
*
www.linde-healthcare.is
SJÚKRA FLUTMHSA SKÓLIHH
w
Arion banki
NORÐUR jM; VERKÍS
VERKFRÆOISTOFA
RioTintoAlcan _____________________________
ISAL-STRAUMSVlK
^ RARIK
kT) NORÐURÁL
I ^ I I CenturyAiuMiNUM
/t\ Frumherji
Heykjavíkiuliorg
Skipulags- og byggingarsviÖ
HBGRANDI
LlFEYRISSJÓÐUR
STARFSMANNA
SVEITARFÉLAGA
S@RPA
ÁRANGUR í UMHVERFISMÁLUM
Hvalur hf.
Lögreglustjóra-
embættið
í Reykjavík
tj|l = HÉÐINN =
mpbanKl
34 Slökkviliðsmaðurínn
V
vörc3ur
Heilbrigöisstofnun
Suðurlands
Akureyrí
ÖLL LÍFSINS GÆÐI *