Fréttablaðið - 16.05.2020, Qupperneq 30
Það þarf svolítið
að setja sig í spor
tímanna, eða tímans, og
huga að því að þeir hafa
náttúrulega verið að
berjast á móti fólki í
brynjum.
Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir
hjordiserna@frettabladid.is
HEMA stendur fyrir „Histori-cal European Martial Arts“ eða „Western Martial Arts“,
sögulega, evrópska bardagalist
þar sem skylmingar eru í aðalhlut-
verki. Þjálfunin byggir að mestu
leyti á miðaldaritum eftir þýska
skylmingameistarann og sverða-
smiðinn Joachim Meyer.
Þýski stíllinn vinsæll
Atli Freyr Guðmundsson er einn af
þjálfurunum í Reykjavík HEMA-
klúbbnum. „Við æfum miðalda-
skylmingar og erum þá aðallega
að fara eftir gömlum handritum
skylmingameistara frá miðöldum
og aðhyllumst einkum þýska
stílinn, eins og hann er kallaður. Þá
förum við mestmegnis eftir hand-
riti Joachim Meyer frá 1571. En við
döðrum við aðra meistara, bara til
þess að fylla inn í og til að skoða
aðrar hliðar á skylmingum.“
Þó að íslenski hópurinn sé
tiltölulega nýr þá er að finna
fjölda sams konar hópa úti um
allan heim. „Það er frekar stórt
og mikið samfélag í kringum
þetta. Það eru margar alþjóðlegar
keppnir, sú stærsta er væntanlega
Swordfish, sem er haldin seint á
árinu, í september eða október.
Okkur dreymir náttúrulega um
að geta sent einhvern á hana en
það fá bara þeir sem eru efstir á
listum að taka þátt, þeir fá alltaf
miðana fyrst. Það þyrfti að senda
fleiri á erlend mót, það eru ein-
hverjir okkar sem hafa farið á mót
erlendis og verða væntanlega fleiri
og fleiri eftir því sem líður á.“
Atli segir mikinn áhuga meðal
erlendra félaga á Íslandi. „Við
ætluðum að halda fyrsta íslenska
mótið í apríl en það gekk ekki út
af Covid þannig að við þurftum að
fresta því og ætlum að bíða þangað
til öllum helstu höftum hefur verið
aflétt og halda þá innanlandsmót.
En það er rosa mikill áhugi á að
koma á mót að utan, við höfum
alveg fengið að heyra það. Um leið
og við höldum opið mót verður
alveg örugglega strax uppselt. Það
eru mörg félög úti sem vilja endi-
lega fá að koma.“
Áhersla á skylmingar
Blaðamaður spyr Atla hvort það
sé mikill áhugi á sagnfræði innan
hópsins. „Já, svona inn á milli þá
erum við algjörir nördar í raun-
inni,“ segir hann og hlær. „Ef þú vilt
lesa upprunalegu handritin, eins og
til dæmis bara handritið hans Joac-
him Meyer þar sem hann skrifar á
háþýsku, þá þarf svolítið að kunna
að lesa í handritin. Það er líka gott
að kunna að lesa í myndirnar og
velta fyrir sér af hverju hann kennir
þetta svona eða hinsegin. Það þarf
svolítið að setja sig í spor tímanna,
eða tímans, og huga að því að þeir
hafa náttúrulega verið að berjast á
móti fólki í brynjum.“
Félagið leggur fyrst og fremst
áherslu á skylmingar. „Við einbeit-
um okkur að langsverðum og saber,
svona bjúgsverði, og svo einnar
handar sverði og skjöldum. Það er
það sem við einbeitum okkur helst
að, en reynum að taka líka glímu,
og hnífa sem tengjast þessu.“
Vel er tekið á móti byrjendum.
„Félagið sér byrjendum fyrir plast-
sverðum, skjöldum og brynjum
svo að hægt sé að stunda skylming-
arnar. En svo eftir því sem þú ert
lengur í félaginu, þá er mjög líklegt
að einstaklingar fari að kaupa sér
sjálfir sínar eigin brynjur og sverð.
Það er ekkert alltof gaman að vera
að fara í lánaðar brynjur sem eru
kannski orðnar svolítið sveittar
og illa lyktandi,“ segir Atli og hlær.
„Það eru nokkrir sem eiga sín eigin
stálsverð, þau eru að sjálfsögðu
ekki beitt. Það væri auðvitað frekar
leiðinlegt að meiða liðsfélagana og
svo kæmust þeir ekki á æfingu fyrr
en eftir nokkra mánuði.“
Öryggið er í fyrirrúmi. „Sverðin
eru ekki beitt en annars eru þau
alvöru, eða svipar til þeirra sem
var verið að nota í þá daga, svona
æfingasverð. Þetta heitir fjaður-
sverð, þar sem því svipar til fjaðrar.
Við erum með hjálma, hanska og
brynjur og erum alltaf að bæta við
í safnið okkar, aðallega brynjum og
svona og núna ættum við að eiga
nokkuð vel af slíku.“
Félagið stendur fyrir æfingu í dag
og gefst áhugasömum þá kostur
á að kynna sér fræðin. „Æfingin
er klukkan fjögur. Við verðum á
Klambratúni og mér skilst að það
eigi að vera gott veður, svo það ættu
einhverjir að mæta.“
Skylmingar og fróðleikur
Reykjavík HEMA Club var settur á laggirnar síðastliðið haust. Þar kemur áhugafólk um evrópska
bardagalist saman og æfir sig í miðaldaskylmingum, ásamt því að rýna í handrit frá miðöldum.
Atli Freyr er hér til vinstri ásamt liðsfélaga sínum úr Reykjavík HEMA Club. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Það er mikið um að vera á æfingum félagsins.
Í Kína eru sæbjúgu þekkt sem heilsubótarfæði og notuð til bóta við hinum ýmsu meinum. Kín-
verjar kalla sæbjúgu gjarnan „gin-
seng hafsins“ og til eru sagnir um
notkun sæbjúgna þar fyrir meira
en þúsund árum.
Arctic Star sæbjúgnahylkin
innihalda yfir fimmtíu tegundir
af næringarefnum sem geta haft
jákvæð áhrif á lífeðlisfræðilega
starfsemi mannslíkamans, til
dæmis er mikið kollagen í þeim en
það er eitt helsta uppbyggingar-
prótein líkamans.
Finnur mikinn mun á sér
Á síðustu árum hefur Arctic
Star sérhæft sig í þróun á fæðu-
bótarefnum, svo sem framleiðslu,
markaðssetningu og sölu á hágæða
sæbjúgnahylkjum. Hylkin eru
framleidd úr íslenskum, hágæða,
villtum sæbjúgum sem eru veidd í
Atlantshafinu.
Magnús Friðbergsson, verkefna-
stjóri hjá Landspítala, hefur tekið
sæbjúgnahylkin frá Arctic Star
undanfarin tvö ár. „Vinur minn
kynnti mig fyrir sæbjúgnahylkj-
unum og þar sem ég
hafði lengi verið slæmur
í hnjám, með liðverki
og lítið getað beitt mér,
ákvað ég að prófa.
Tveimur til þremur
vikum seinna fann
ég mikinn mun.
Nú hef ég tekið
sæbjúgnahylkin í
tvö ár og fer allra
minna ferða án
óþæginda. Það er
algjör bylting frá
því sem áður var.
Nú get ég gert
hluti eins og
að fara í langar
gönguferðir,
sem ég gat varla
Sæbjúgnahylkin eru bylting
Magnús Friðbergsson mælir með sæbjúgnahylkjum frá Arctic Star en hann finnur mun á sér
eftir að hann fór að nota þau. Sæbjúgu innihalda fimmtíu tegundir af næringarefnum.
Magnús er
betri í hnjám og
finnur minna
fyrir liðverkjum
eftir að hann
fór að taka
sæbjúgna-
hylkin. Hylkin
eru nú komin í
nýjar umbúðir
eins og sjá má
á myndinni.
MYND/GVA
gert áður. Að minnsta kosti gerði
ég það ekki með bros á vör og það
tók mig langan tíma að jafna mig
eftir álag,“ útskýrir hann.
Magnús, sem er 69 ára gamall í
dag, hafði fengið að heyra frá lækni
að mikið slit væri í hnjám hans
og ekki væri von á að það gengi til
baka. „Hann sagði mér að kíkja
á fæðingardaginn minn og að ég
gæti ekki búist við að fara aftur
í tíma. Mér fannst vont að heyra
þetta og var því tilbúinn að prófa
ýmislegt sem gæti mögulega lagað
þetta. Sæbjúgnahylkin frá Arctic
Star virka mjög vel á mig og ég
mæli með að fólk prófi þau.“
Framleiðandi sæbjúgna er
Arctic Star ehf. Allar nánari upp-
lýsingar fást á arcticstar.is. Arctic
Star sæbjúgnahylki fást í flestum
apótekum og heilsubúðum og í
Hagkaupum.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . M A Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R