Fréttablaðið - 16.05.2020, Page 44
Grunnskólar
• Baðvörður (KK) - Lækjarskóli
• Deildarstjóri - Engidalsskóli
• Deildarstjóri fjölgreinadeildar - Hraunvallaskóli
• Enskukennari - Áslandsskóli
• Heimilisfræðikennsla - Setbergsskóli
• Íþróttakennari - Öldutúnsskóli
• Náms- og starfsráðgjafi - Engidalsskóli
• Náttúrufræðikennari á unglingastigi -
Öldutúnsskóli
• Skrifstofustjóri - Skarðshlíðarskóli
• Stærðfræðikennari á unglingastigi -
Lækjarskóli
• Umsjónarkennari á miðstigi - Hvaleyrarskóli
• Umsjónarkennari á yngsta stigi - Setbergsskóli
• Umsjónarkennari í Bjargi - Hvaleyrarskóli
• Þroskaþjálfi - Hraunvallaskóli
• Þroskaþjálfi - Lækjarskóli
• Þroskaþjálfi í fjölgreinadeild - Hraunvallaskóli
Leikskólar
• Deildarstjóri - Stekkjarás
• Deildarstjóri - Skarðshlíðarleikskóli
• Deildarstjóri - Hraunvallaleikskóli
• Leikskólakennarar - Norðurberg
• Leikskólakennari - Hraunvallaleikskóli
• Leikskólakennari - Hlíðarendi
• Leikskólakennari - Smáralundur
• Sérkennslustjóri - Hlíðarendi
Málefni fatlaðs fólks
• Hlutastarf á heimili fyrir fatlað fólk
• Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk
• Starfsmaður í athvarf fyrir fólk með
geðraskanir - Lækur
• Yfirþroskaþjálfi - Hæfingarstöðin Bæjarhrauni
Sumarstörf háskólanema
• Sumarstörf við rannsóknir og nýsköpun
Vinnuskóli Hafnarfjarðar
• Biðlisti fyrir 18 ára og eldri
• Sumarstörf fyrir ungmenni fædd 2003
• Vinnuskóli fyrir ungmenni fædd 2004
• Vinnuskóli fyrir ungmenni fædd 2005
• Vinnuskóli fyrir ungmenni fædd 2006
Þjónustu- og þróunarsvið
• Kerfisfræðingur í þróunar- og tölvudeild
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna
hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir
bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.
Nánar á hafnarfjordur.is
HJÁ HAFNARFJARÐARBÆ
LAUS STÖRF
hafnarfjordur.is585 5500
Menntunar- og hæfnikröfur
Háskólamenntun á sviði viðskipta- eða hagfræði
Reynsla af starfi á endurskoðendastofu og/eða í greiningardeild
Reynsla af skýrslugerð og úrvinnslu tölulegra gagna
Reynsla af uppgjörum æskileg
Reynsla af innleiðingu kerfa
Mjög góð kunnátta í Excel
Alhliða þekking og reynsla á sviði upplýsingatækni
Jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum
Skipulagshæfileikar, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Sérfræðingur í greiningu á fjármálasviði
Umsóknarfrestur er til og með 25. maí 2020.
Sótt er um starfið á vef Póstsins, posturinn.is/atvinna. Umsókn skal fylgja ferilsskrá og kynningarbréf sem
greinir frá ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Öllum umsóknum verður svarað.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Þórhildur Ólöf Helgadóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs,
á netfanginu thorhildurh@postur.is.
Pósturinn vill ráða sérfræðing í greiningu til starfa sem sér um sértæk uppgjör
og úrvinnslu tölfræðilegra gagna ásamt skýrslugerð. Hann sér um upplýsingagjöf
og ráðgjöf til stjórnenda og starfsmanna og hefur með hendi eftirlit og frávikagreiningu
á rekstri. Hann kemur að umbótum í rekstri og bestun ferla ásamt því að taka þátt
í stafrænni innleiðingu nýrra kerfa. Þá tekur hann einnig þátt í vinnu við undirbúning
og gerð fjárhagsáætlunar.
ERT ÞÚ HJÚKRUNARFRÆÐINGUR SEM HEFUR
ÁHUGA Á AÐ VINNA Í RANNSÓKN Á HEIMSVÍSU?
Auglýst er eftir hjúkrunarfræðingi (e. study nurse/study coordinator) í 80–100% starf við vísindarannsóknina
Blóðskimun til bjargar, skimunarrannsókn og lyfjarannsókn við Læknadeild Háskóla Íslands. Markmið hennar
er að rannsaka árangur skimunar fyrir forstigi mergæxlis. Verkefnið er unnið í samstarfi við Háskóla Íslands,
Landspítala, Krabbameinsfélag Íslands, Binding Site í Bretlandi, Memorial Sloan Kettering krabbameinsmiðstöðina í
New York og International Myeloma Foundation.
Skimað er fyrir forstigi mergæxlis með blóðprufu og þeim einstaklingum sem greinast með forstig mergæxlis fylgt
eftir í klínískri rannsókn. Þátttakendur eru kallaðir inn í frekari rannsóknir og fá eftirfylgd með reglubundnum hætti.
Þeim sem greinast með mergæxli er hinsvegar boðið að taka þátt í lyfjarannsókn.
Hjúkrunarfræðingar rannsóknarinnar koma bæði að uppvinnslu og eftirfylgd í skimunarrannsókn og uppvinnslu og
meðferð í lyfjarannsókn. Móttaka þátttakenda fer að mestu fram á móttökusetri Blóðskimunar að Skógarhlíð 8,
en einnig í tímabundnum móttökustöðvum á landsbyggðinni sem og á LSH Hringbraut. Starfið býður upp á einstaka
innsýn og reynslu af rannsóknarvinnu og klínísku starfi.
Blóðskimun er lítill og fjölskylduvænn vinnustaður, þar sem áhersla er lögð á gott starfsumhverfi sem felur í sér
möguleika á sveigjanleika og sjálfræði í starfi fyrir samhentan hóp til að vinna að krefjandi verkefnum.
Helstu menntunar- og hæfniskröfur:
• Íslenskt hjúkrunarleyfi
• Reynsla af vinnu við vísindaverkefni er kostur
• Þekking á good clinical practice (GCP) er kostur
• Reynsla af hjúkrun krabbameinsveikra og krabbameins-
lyfjagjöf er kostur
• Reynsla af því að vinna í teymi
• Sjálfstæð, skipulögð og lausnamiðuð vinnubrögð
• Framúrskarandi samskiptahæfni, nákvæmni, útsjónarsemi
• Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
• Gott vald á upplýsingatækni og hæfni til að tileinka
sér nýjungar á því sviði
Hægt er að sækja um og fá nánari upplýsingar
á heimasíðu HÍ: www.hi.is/laus_storf
Umsóknarfrestur er til og með 25. maí 2020
Fasteignasali óskast!
Heimili fasteignasala óskar eftir að
ráða fasteignasala til starfa.
Við leitum að einstaklingi sem býr yfir góðri sölutækni, á auðvelt
með að vinna sjálfstætt og býr yfir góðum hæfileikum í mannlegum
samskiptum. Viðkomandi þarf að geta starfað skipulega með öðrum
og veitt ábyrga þjónustu í starfi sínu.
Umsækjendur þurfa að vera löggiltir fasteignasalar, eða vera í námi
til löggiltingar. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf fljótlega.
Umsóknum skal skila til Finnboga Hilmarssonar, fasteignasala, á
finnbogi@heimili.is sem jafnframt veitir allar frekari upplýsingar.