Fréttablaðið - 16.05.2020, Blaðsíða 98
Þá er laserlyfting
eitthvað fyrir þig.
Bjóðum
20% afslátt í maí.
Verið velkomin!
HÚÐIN skin clinic
Hátúni 6b, 105 Rvík
Sími 519-3223
www.hudin.is
Viltu viðhalda húðinni
á náttúrulegan hátt?
Eurovision hefði átt að fara fram í Rotterdam í kvöld. Það er einhvern veginn dæmalaust að keppnin ha f i fa ll ið niður nú í ár, akkúrat
þegar við hefðum unnið, en við
höldum það nú í hvert einasta
skipti.
Daða-peysurnar hafa rokselst
og klárt mál að þrátt fyrir að hann
hafi aldrei fengið að stíga á svið-
ið hefur lúkkið algjörlega náð að
stimpla sig í sögubækurnar. Von-
andi verður keppnin á næsta ári
bara f lottari fyrir vikið og að þátt-
takendur noti tímann til að leggja
allt sitt í að gera geggjaða keppni.
Það er um að gera fagna þrátt
fyrir allt saman núna í kvöld og
klæða sig upp á í glamúr og glimm-
er í tilefni dagsins. Hér eru nokkrar
af skemmtilegustu, umdeildustu
og og eftirminnilegustu múnder-
ingunum úr fyrri keppnum.
steingerdur@frettabladid.is
Klikkuðustu
Júrógallarnir
Eurovision hefði átt að fara fram í kvöld og
því tilvalið að rifja upp klikkuðustu, flott-
ustu og eftirminnilegustu múnderingarnar.
Verka Serduchka sló í gegn á Eurovision árið 2007 og
lenti í öðru sæti. Síðan þá hefur húnleikið í kvikmynd
inni Spy og túrað um allan heim. MYND/GETTY IMAGES
Kjóllinn hennar Jóhönnu var nokkuð umdeildur hér
heima en þegar á sviðið var komið passaði hann full
komlega við atriðið og sönginn.
Wig Wam frá Noregi vakti athygli fyrir einstaka bún
inga og sótti meðal annars Ísland heim, enda var lagið,
In My Dreams, lengi vinsælt eftir keppnina.
Conchita Wurst sigraði fyrir hönd
Austurríkis með laginu Rise like a
Phoenix og vakti athygli fyrir glæsi
legan klæðaburð og skeggvöxt.
LÍFIÐ
Ruslana vann keppnina árið 2004
með laginu Wild Dances fyrir hönd
Úkraínu og var einstaklega flott í
eftirminnilegri múnderingu.
Atriðið
var umdeilt á
sínum tíma hjá Sil
víu Nótt en það getur
enginn neitað því að
klæðnaðurinn var mjög
eftirminnilegur og
skemmtilegur.
Þeir í
Lordi komu,
sáu og sigruðu
með Hard Rock Halle
lujah, en eru engu síður
eftirminnilegir fyrir
stórbrotna búninga
og einstaka sviðs
framkomu.
Katie
MillerHeidke
lenti í níunda sæti
með einstakt atriði
fyrir Ástralíu í
fyrra.
1 6 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R46 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð