Fréttablaðið - 19.05.2020, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 19.05.2020, Blaðsíða 13
Kæli- og frystiskápar á tilboði. Ferskari matvæli og minni matarsóun með Siemens og Bosch kæliskápum. Með hyperFresh tækni heldur kæliskápurinn ávöxtum, grænmeti og nýjum kjötvörum ferskum allt að tvisvar til þrisvar sinnum lengur. Matarsóun minnkar, peningar sparast og umhverfisvitund eykst. Allt að 26% afsláttur af völdum kæliskápum í maí. Fimm ára ábyrgð á öllum heimilistækjum. Einfalt að versla í netverslun okkar. Tilboð gilda til og með 5. júní eða á meðan birgðir endast. Smith & Norland er bæði Siemens og Bosch-umboðið á Íslandi og sinnir varahluta- og viðhaldsþjónustu af faglegum metnaði á eigin verkstæði. Þann 13. mars sl. tilkynnti Svan-dís Svavarsdóttir heilbrigðis-ráðherra á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum að takmarka skyldi samkomur við 100 manns í fjórar vikur frá miðnætti 15. mars. Engin fordæmi voru fyrir slíku banni í lýðveldissögu Íslands. Engan óraði fyrir um framhaldið. Óvissan var gríðarleg. Sama dag samþykkti ríkisstjórn- in frumvarp Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barnamála- ráðherra, um breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar og lögum um Ábyrgðasjóð launa, vegna sérstakra aðstæðna á vinnu- markaði. Markmið breytinganna, eins og það er orðað á vef Stjórnar- ráðsins „… er að aðstoða vinnu- veitendur við að halda ráðningar- sambandi við starfsfólk sitt, þar til aðstæður batna“. Ekki komu fram önnur skilyrði en þau að starf- semin hefði dregist saman vegna kórónaveirunnar. Minnka starfshlutfall en forðast uppsagnir Á vef Stjórnarráðsins var einnig hvatt til þess að vinnuveitendur minnkuðu frekar starfshlutfall starfsfólks tímabundið en að grípa til uppsagna og er þar haft eftir ráð- herra, Ásmundi Einari Daðasyni: „Ég vonast til þess að atvinnurek- endur bregðist við þessum breyt- ingum á þann veg að halda ráðn- ingasamböndum við starfsfólk sitt eins og nokkur kostur er í stað þess að ráðast í uppsagnir.“ Sama dag hvatti ráðherra fyrirtæki til að nýta úrræðið í samtali við mbl.is „Hugsunin er auðvitað sú að hvetja fyrirtæki til þess að nýta sér þessa heimild vegna þess að við erum öll í þessu saman.“ Með þessu úrræði réttu stjórn- völd út hjálparhönd til að koma í veg fyrir fjöldauppsagnir vegna gífurlegrar óvissu um framhaldið og tryggja af komu heimila tíma- bundið, eða þar til aðstæður skýrð- ust. Fyrirtækin sömdu við starfsfólk um minnkun starfshlutfalls tíma- bundið og ríkið greiddi mismun- inn upp að ákveðnu marki beint til launþega. Engar greiðslur fóru til fyrirtækjanna. Í staðinn var komið í veg fyrir uppsagnir. Fljótt varð ljóst að úrræðið myndi nýtast fjölda fyrirtækja og starfsfólki þeirra – og verða ein stærsta og mikilvægasta einstaka stuðningsaðgerð stjórn- valda frá upphafi. Hversu skýr lína milli þess að mega og mega ekki? Nú rúmum tveimur mánuðum síðar erum við á góðri leið út úr samkomu banninu. Umræður um hvaða fyrirtæki hafi átt rétt á að nýta sér hlutabótaúrræðið hófust og í umræðunni komu fram ýmis skil- yrði sem almenningur taldi sann- gjörn svo sem að fyrirtækin hefðu ekki greitt út arð vegna ársins 2019 eða að eiginfjárstaða þeirra væri ekki góð. Sum þeirra skilyrða eru eðlileg og skynsamleg. Vandinn er að ekkert slíkt er að finna í lögunum. Brúarlánin, stuðningslánin, lok- unarstyrkir og önnur úrræði stjórn- valda til að koma í veg fyrir gjald- þrot fyrirtækja voru með skýra ramma um það hverjir ættu rétt á að nýta sér þau og hverjir ekki. Sé hlutabótaleiðin skoðuð, lögin og ummæli ráðherra, er ljóst að rammi hennar er afar óskýr. Úrræðið var hugsað „vegna tímabundins sam- dráttar í starfsemi vinnuveitanda“ en ekki var kveðið á um hversu mik- inn samdrátt eða á hvaða tímabili. Hlutabætur í algjörri óvissu Jafnframt segir í lögum um hluta- bótaleiðina að „Vinnumálastofnun er heimilt að óska eftir upplýsingum og gögnum frá vinnuveitanda sem launamaður missti starf sitt hjá að hluta þar sem fram komi nánari rökstuðningur fyrir samdrætti í starfseminni, svo sem fækkun verk- efna eða samdráttur í þjónustu.“ sem erfitt er að skilja öðruvísi en svo að það sé alfarið í höndum stofnunarinnar að meta réttmæti nýtingu úrræðisins. Þegar úrræðinu var komið á um miðjan marsmánuð herjaði veiran á landsmenn, úrræði stjórnvalda þurftu að vinnast hratt og frumvörp voru keyrð í gegnum þingið. Í öllum asanum var hlutabótaleiðin sam- þykkt án skýrra skilyrða og því eru nú stjórnendur margra fyrirtækja að meta, í ljósi þess sem gerst hefur, hvort rétt hafi verið að þiggja hana eður ei. Hlutabótaleiðin verður framlengd, stjórnvöld ætla að læra af reynslunni og setja skýr skilyrði, þannig að fyrirtækin búi við réttar- vissu. Samfélagsleg ábyrgð og góðir stjórnarhættir Mikilvægi samfélagslegrar ábyrgðar fyrirtækja í landinu er mikil og víð- tæk – á kórónatímum sem endra- nær. Á það við um stór fyrirtæki jafnt sem lítil, sem nýttu sér líf línu stjórnvalda á tímum mikillar óvissu og töldu sig uppfylla skilyrði hluta- bótaleiðarinnar. Eftir að umræðan komst á f lug um hverjir ættu rétt á úrræðinu eða ekki, hefur komið í ljós að mörg fyrirtæki nýttu sér ekki úrræðið þrátt fyrir að horfa fram á mikinn samdrátt og enn önnur hafa nú þegar greitt stuðninginn til baka eftir endurmat. Það er auðvelt að benda á það sem betur hefði mátt fara með því að horfa í baksýnisspegilinn – og er sá lærdómur mikilvægur atvinnulífinu og stjórnvöldum. En ekki er síður mikilvægt á tímum sem þessum að sýna skilning á ákvörðunum sem teknar voru í fullkominni óvissu, bæði um regl- urnar sjálfar og hvað framtíðin bæri í skauti sér. Ásta Sigríður Fjeldsted framkvæmda- stjóri Viðskipta- ráðs Íslands S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 13Þ R I Ð J U D A G U R 1 9 . M A Í 2 0 2 0
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.