Fréttablaðið - 19.05.2020, Blaðsíða 20
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Þessi fyrirtæki
hafa lagt kapp á
allt gæðaeftirlit og að öll
hráefni séu fyrsta flokks.
Þau eru með stöðuga
framþróun í sínum
vörum og með þroska
barnsfótarins að leiðar-
ljósi.
Framhald af forsíðu ➛
2 KYNNINGARBLAÐ 1 9 . M A Í 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U RSUMAR OG BÖRN
Kristín Johansen, eigandi verslunarinnar, segir að í Fló sé boðið upp á allt frá fyrstu
skóm upp í fullorðinsstærðir.
„Allt frá sandölum yfir í stígvél
og kuldaskó. Við leggjum mikið
upp úr því að vera með vandaða
og fjölbreytta vöru, persónulega
þjónustu og gefa okkur tíma til
að finna réttu skóna fyrir hvert
barn. Við finnum að fólk kann að
meta þjónustuna og við erum með
stóran og vaxandi hóp af fasta-
kúnnum sem koma aftur og aftur.
Það er auðvitað mjög hvetjandi að
finna þennan áhuga,“ segir hún.
Kristín segir að allt of mikið sé af
fjöldaframleiddum og óvönduðum
skóm í boði í dag sem jafnvel eru
bara uppfylling í stórum fata-
keðjum. „Við finnum að okkar
viðskiptavinahópur áttar sig á
þessu og því hvað það er mikilvægt
að börn gangi í góðum skóm til að
líða vel,“ upplýsir hún.
Börn þurfa að vera í
vönduðum skóm
„Fætur eru flóknir enda eru í þeim
26 bein þegar þeir eru fullþroska.
Það eru ekki allir sem gera sér
grein fyrir að það verða þeir ekki
fyrr en um 18 ára aldur. Vandamál
tengd fótum og göngulagi geta
haft áhrif á stoðkerfi barnsins til
lengri tíma. Þess vegna er sér-
staklega mikilvægt að hlúa að
fótunum með góðum skófatnaði
til að stuðla að eðlilegum vexti og
þroska þeirra. Sjálfum líður manni
illa í óþægilegum skóm. Börn geta
oft ekki tjáð sig um það. Foreldrar
ættu því að fylgjast vel með göngu-
lagi barna sinna, hvort þau séu
að hlífa öðrum hvorum fætinum,
hvort tærnar séu að vaxa rétt,
hvort þau séu inn- eða útskeif eða
með önnur einkenni.
Barnsfóturinn er mjúkur og
sveigjanlegur til að byrja með.
Börn sem eru ekki byrjuð að
ganga ættu að fá að vera sem mest
berfætt eða í mjúkum skóm sem
vernda fæturna en hefta ekki
hreyfigetu þeirra og tilfinningu
fyrir fótunum. Mjúkir skór henta
líka best þegar þau eru að skríða.
Þegar þau eru orðin öruggari og
farin að ganga eru þau tilbúin í
harðari sóla. Við erum með gríðar-
mikið úrval af svokölluðum fyrstu
skóm og seljum þar af leiðandi
mjög mikið af þeim,“ segir Kristín.
Nokkur atriði sem er mikilvægt
að hafa í huga við val á skóm:
n Að lagið/breidd á skónum sé í
samræmi við fótlagið.
n Hafa hæfilegt pláss til vaxtar
(vaxtarbil) oft 1,2 cm (frávik eru
þó eftir aldri barns og tegund
skófatnaðar).
n Að hælkappinn veiti góðan
stuðning og það sé nóg pláss
fyrir táslurnar.
n Velja réttan sveigjanleika í sóla
sem hentar barninu eftir því
á hvaða stigi það er í göngu-
ferlinu.
n Að efni séu góð að innan sem
utan.
n Velja efni sem gefa vel eftir og
andi vel.
„Það er líka gott ef skórnir eru
sterkir. Krakkar eru mikið úti að
leika og það er áætlað að meðal
manneskja stígi um 18.000 skref
á dag – krakkar jafnvel f leiri. Það
reynir því á alla sauma og efnið
sem skórnir eru gerðir úr. Þeir eru
fljótir að skemmast ef frágangur-
inn er ekki góður.
Magic skórnir er skemmtileg nýjung frá Froddo – þeir breyta um lit við
dagsljós en krökkunum finnst það einmitt mjög skemmtilegt.
Afar vandaðir skór fyrir börn sem eru að byrja að ganga, en hugsa þarf sérstaklega um gæði í fyrstu skónum.
Allir krakkar
þurfa að eiga
flott stígvél.
Þau eru til í
nokkrum litum
hjá Fló.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Glæsilegir bítlaskór fyrir börn. Í svona skóm verða krakkarnir alltaf fínir.
Klassísku
„fyrstu skórnir“
frá Bundgaard
eru dásamlegir.
Mjúkir og vandaðir leðurskór fyrir yngstu börnin. Fallegir og góðir.
Góðir og fallegir
sumarskór með
dúnmjúkum
sóla. Næstum
því eins og að
vera berfættur.
Krúttlegir skór. Mjúku leðurskórnir henta jafnt strákum og stelpum.
Sterkar hefðir sem skapa
vandaða barnaskó
Við höfum kappkostað að velja
merki sem eru traust. Dönsku
merkin Bundgaard og Angulus
hafa framleitt barnaskó síðan 1904
og króatíska merkið Froddo síðan
1946. Það er því mikil hefð og stolt
hjá þessum framleiðendum að
framleiða vandaða og góða skó
fyrir börn.
Þessi fyrirtæki hafa lagt kapp á
allt gæðaeftirlit og að öll hráefni
séu fyrsta flokks. Þau eru með
stöðuga framþróun í sínum vörum
og með þroska barnsfótarins að
leiðarljósi. Þetta geta birgjar okkar
gert með því að framleiða alla sína
skó í sinni eigin verksmiðju og vera
með þróunardeild á staðnum,“
segir Kristín.
Gaman að vera í miðbænum
„Mér finnst dýrmætt að vera í
miðbænum. Hér er iðandi mannlíf
og menning. Það er góð sál í
húsinu hérna á Klapparstíg 44 og
skemmtilegar verslanir og veit-
ingahús allt í kring. Svo er óendan-
lega gaman að taka á móti yngstu
kynslóðinni hér í versluninni. Við
viljum að upplifunin hjá þeim sé
skemmtileg og eftirminnileg hvort
sem það er við að máta nýja skó
eða gleyma sér í öllum dýrunum
sem leynast í búðinni.
Hægt er að skoða úrvalið og kaupa
á vefsíðunni okkar, flo.is, og við
sendum skóna hvert á land sem
er.“