Fréttablaðið - 19.05.2020, Blaðsíða 42
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar
í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á
timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Innilegar þakkir til ættingja og vina
fyrir samúð og vináttu vegna andláts
móður okkar,
Valborgar Sigurðardóttur
Hringbraut 50,
áður Grandavegi 47.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
Grundar á deild A-3 og handavinnustofu.
Magnús, Valgeir, Anna Soffía og Valgerður
Elsku eiginkona mín,
móðir, systir og tengdadóttir,
Gréta Garðarsdóttir
flugfreyja,
Hólmaþingi 14,
lést á líknardeild LSH
miðvikudaginn 13. maí.
Útför hennar fer fram frá Digraneskirkju mánudaginn
25. maí klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er
bent á Krabbameinsfélagið. Streymt verður frá útförinni á
Facebook-síðu hinnar látnu. https://www.facebook.com/
profile.php?id=100001228429922
Torfi Sigurjónsson
Nína Dröfn Eggertsdóttir
Sigurjón Torfason
Sólrún Garðarsdóttir Reynir Sigurðsson
Erlingur Garðarsson Anna Valdís Jónsdóttir
Gerður Garðarsdóttir Helgi Sigurgeirsson
Ragna Rut Garðarsdóttir Friðgeir Haraldsson
Vilborg Þórðardóttir
Elskulegur eiginmaður minn,
tengdasonur, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
Kristinn Matthías
Kjartansson
frá Þórisholti,
Lómasölum 12, Kópavogi,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
fimmtudaginn 14. maí. Útför hans fer fram frá
Bústaðakirkju 25. maí kl. 13.00. Blóm og kransar eru
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á sjóð
krabbameinsdeildar 11-EG á Landspítalanum.
Guðrún Helgadóttir
Sigríður Skúladóttir
Steinar Þór Kristinsson Sigrún Stefánsdóttir
Sigríður Kristinsdóttir Halldór Bárðarson
Kristín Björg Kristinsdóttir David Hedin
afa- og langafabörn.
Eiginmaður minn og faðir okkar,
Aðalbjörn Haraldsson
(Addi Halla)
útgerðarmaður á Seyðisfirði,
lést 8. maí. Jarðarförin hefur farið fram.
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð, hlýhug og aðstoð við útförina.
Guðný Ragnarsdóttir og fjölskylda.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Sigríður K. Thors
lést miðvikudaginn 13. maí
á hjúkrunarheimilinu Mörk.
Útförin verður auglýst síðar.
Ágústa Stefánsdóttir
Margrét Þ. Stefánsdóttir Jón Magnússon
Inga L. Stefánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Gyða Gunnlaugsdóttir
Sléttuvegi 11,
lést á hjartadeild LSH við Hringbraut
þann 5. maí. Útförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk á hjartadeild LSH við
Hringbraut, fyrir einstaka og góða umönnun.
Hörður G. Pétursson
Pétur Rúnar Harðarson Björg H. Hávarðardóttir
Bryndís Harðardóttir Bragi Björnsson
Kristjana Gyða Pétursdóttir Davíð Sveinsson
Gyða Steinarsdóttir Tryggvi Svansson
Hörður Pétur Steinarsson
og langömmubörn.
Veist þú hvert eignir þínar renna eftir þinn dag?
Kynntu þér málið á heimasíðu okkar, www.útför.is.
Þar getur þú m.a. sett inn þínar forsendur
í reiknivél. Við aðstoðum þig við gerð
erfðaskrár, kaupmála og við dánarbússkipti.
Katla Þorsteinsdóttir,
lögfræðingur
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Kristín Ólöf Björgvinsdóttir
lést þriðjudaginn 5. maí.
Í ljósi aðstæðna mun útförin fara
fram með nánustu aðstandendum
þriðjudaginn 19. maí klukkan 13. Athöfninni
verður streymt á Facebook-síðu hinnar látnu.
Helga Lilja Tryggvadóttir Sigurjón Magnússon
Magnús Björgvin Tryggvason Elsa Maria Alexandre
Þórhallur Tryggvason Þórhalla Guðmundsdóttir
Hanna Tryggvadóttir Torfi Ragnar Vestmann
barnabörn og barnabarnabörn.
Við Eyjamenn viljum að unglingarnir okkar hafi eitthvað að gera í sumar. Rútínan skiptir svo miklu máli. Við reynum því að tryggja að krakkar sem
eru búsettir hér fái vinnu,“ segir Íris
Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmanna-
eyjum.
Hún segir umsóknir um sumarstörf
hjá bænum með mesta móti í ár. „Eldri
krakkar sækja um vinnu hjá okkur í
meiri mæli en áður. Fimmtán og sex-
tán ára fengu gjarnan störf í frystihús-
unum en það komast færri í þau vegna
aukinnar tæknivæðingar. Við fáum
þann aldurshóp inn í Vinnuskólann,
hann er fyrir 13 til 16 ára, og svo höfum
við umhverfis- og sumarstörf fyrir 17
ára og eldri. Það er nóg af verkefnum
í umhverfinu. Stundum hefur okkur
vantað hendur til að sinna þeim, nú bara
bætum við í,“ segir Íris.
Stígagerð er meðal þess sem umverfis-
deildin mun sinna. „Við þurfum að
bæta stígana á fjöllunum hjá okkur og
á öðrum vinsælum gönguleiðum. Svo
þarf að fegra umhverfið kringum söfn
og aðrar stofnanir og sinna grænum
svæðum, allt undir handleiðslu verk-
stjóra. Við reynum að hafa framboðið
fjölbreytt og fólk getur valið að vera í
blómagengi, sláttugengi, sinna hinum
ýmsu verkum eða gerast f lokksstjórar
í Vinnuskólanum.“
Íris nefnir líka af leysingastörf á
stofnunum bæjarins. „Við setjum öll
sumarstörf hjá okkur í eina auglýsingu
hvort sem þau eru á dvalarheimili fyrir
aldraða, bókasafninu, leikskólanum,
umhverfinu eða söfnunum. Fólk sækir
um en þeim sem ekki komast í sitt val er
alltaf boðið að fá umhverfisstarf og ég
get ekki betur heyrt en fólk sé almennt
ánægt með þetta fyrirkomulag. Við
sóttum um sjö störf fyrir háskólanema
en fengum úthlutað fjórum og erum að
auglýsa þau líka.“
gun@frettabladid.is
Allir fá eitthvað að gera
Þó umsóknir um sumarstörf í Eyjum séu með flesta móti í ár hefur bærinn svarað kalli
um fjölgun starfa og býður öllum þeim unglingum vinnu sem eru þar með lögheimili.
Íris bæjarstjóri segir fjölbreytt úrval sumarstarfa í boði fyrir unga fólkið í Eyjum.
1 9 . M A Í 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R18 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT