Fréttablaðið - 19.05.2020, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 19.05.2020, Blaðsíða 38
D-víta mín er nauðsyn legt fyr-ir heil brigt tauga kerfi, heila, hjarta og æðakerfi. Það er nauðsyn legt fyr ir húðina, bein in, sjón ina og heyrn ina, svo nokkuð sé nefnt, og er lykilatriði til að styrkja ónæmiskerfið. Skortur á D-vítamíni þegar kemur á full- orðinsár getur valdið beinþynn- ingu, beinmeyru, vöðvarýrnun og tannskemmdum. Rannsóknir gefa einnig sterkt til kynna að D-víta- mín sé í raun grundvallarefni til að viðhalda heilsu og getur það fyrirbyggt sjúkdóma en vitað er um a.m.k. 100 mismunandi sjúk- dómseinkenni eða sjúkdóma sem tengjast D-vítamínskorti. Magaverkjaköst vegna skorts Rakel Ósk er hress og kát, ung fim- leikastelpa sem vanalega er heilsu- hraust. Í nóvember 2018 byrjaði hún svo að veikjast en það lýsti sér fyrst og fremst í magaverkja- köstum þar sem versta kastið varði í 3 vikur. Hún fór til meltingarsér- fræðings sem setti hana í alls kyns rannsóknir og það eina sem kom út úr því var að hún var langt undir mörkum í D-vítamíni. Gildið var aðeins 25 nmól/l en eðlilegt er að vera á bilinu 50 til 150 nmól/l. Gildin ruku upp á 4 vikum Rakel Ósk þurfti því samkvæmt læknisráði að taka sterkan D- vítamínskammt til að ná upp gildunum og mælti læknirinn með 3000 einingum á dag. Rakel Ósk er eins og mörg börn (og jafnvel fullorðnir) með að finnast vont að gleypa töf lur þannig að þeim mæðgum var bent á DLúx 3000 munnúðann í apóteki og fannst Rakel ekkert mál að úða upp í sig einu sinni á dag. Fjórum vikum síðar fór hún svo í blóð- prufu og læknirinn ætlaði varla að trúa sínum eigin augum. Gildin voru komin í 98 nmól/l og taldi hann þetta örugglega vera met í bætingu og hvatti til þess að passa áfram upp á inntöku til að viðhalda gildunum. Rakel er öll önnur í dag, er sjálfri sér lík og hefur ekki fengið magaverk aftur. D-vítamínskortur á norðlægum slóðum Sérfræðingar við Friedman School of Nutrition Science and Policy hafa birt rannsóknir sem gerðar voru á skólabörnum í Boston og sýndu að allt að 90% þeirra voru með D-vítamínskort. Einnig kom þar fram að þeir sem eru í ofþyngd, með dökka húð og/eða lifa á norðlægum slóðum séu oftar með skort en aðrir. Í framhaldi af þessu var skoðað hvað þyrfti að taka mikið af D-vítamíni daglega til að hækka gildin hjá þeim börnum sem mældust með skort. Í ljós kom að stærstur hluti barnanna þurfti að taka 2000 a.e. (alþjóðlegar einingar) af D-vítamíni í 6 mánuði til að ná ásættanlegum gildum en hámarksskammtur fyrir 9 ára og eldri er 4000 a.e. á dag. Þetta segir okkur að ef um D-vítamínskort er að ræða dugir ekki að taka bara ráðlagðan dagskammt, enda eru þeir hugsaðir til að viðhalda þeim gildum sem fyrir eru, ekki til að hækka þau. Hvar fáum við D-vítamín? Þetta vítamín er ekki eins og önnur vítamín sem við getum fengið úr fjölbreyttri fæðu en aðeins um 10% af D-vítamíni koma úr matnum. Sólin er helsta og besta uppspretta D-vítamíns en það verður til í líkama okkar vegna áhrifa UVB-geisla sólarinnar á húðina. Þetta gerist eingöngu þegar hún er mjög hátt á lofti og ef hún skín á stóran hluta líkamans. Því getur verið erfitt fyrir fólk á norðlægum slóðum að tryggja sér nægilegt magn nema rétt yfir hásumarið, um hádegið þegar sól er hæst á lofti. Landlæknisemb- ættið hvetur fólk til þess að taka D-vítamín sérstaklega á formi bætiefna því eins og áður kom fram er það okkur lífsins ómögu- legt að fá það úr fæðunni eða frá sólinni nema í takmörkuðu magni. Af hverju DLúx í úðaformi? Munnúði tryggir hraða og mikla upptöku því vítamínið seytlar gegnum slímhúðina í munninum og beint út í blóðrásina. Mörgum finnst erfitt að taka inn töflur og svo getur meltingin verið undir álagi eða ekki alveg í lagi af ýmsum ástæðum en munnspreyið snið- gengur meltingarkerfið. DLúx hentar grænmetisætum og sykur- sjúkum sem og þeim sem eru á glútenlausu fæði. Læknirinn sagði að ég þyrfti miklu meira D-vítamín DLúx 3000 munnúðinn hækkaði D-vítamíngildin hjá Rakel Ósk á methraða og kom heilsunni í lag. Einungis 4 vikur þurfti til að ná upp í vel ásættanleg gildi og það með bara einu spreyi á dag. DLúx munnsprey tryggir hámarks upptöku. Rakel Ósk þurfti að taka sterkan D-vítamínskammt samkvæmt læknisráði til að ná upp gildunum og mælti læknirinn með 3.000 einingum á dag. Læknirinn sagði mér að ég þyrfti að fá miklu meira D-víta- mín. DLúx úðinn er ekki vondur á bragðið og ekki sterkur. Mér líður miklu betur eftir að ég byrjaði að taka hann þannig að ég mæli með honum. FÓLÍNSÝRA munnúðasprey Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana. Fólínsýra er B-vítamín sem gegnir stóruhlutverki í frumuskiptingu líkamans. Fólínsýra stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins. Bragðgóður munnúði með náttúrulegu bláberjabragði. Styður við heilbrigða meðgöngu og eðlilegt ónæmiskerfi Fólínsýra er nauðsynlegt vítamín á meðgöngu og öruggt á meðan barn er á brjósti. NÝTT Umbúðir endurunnar úr plasti úr sjónum. 8 KYNNINGARBLAÐ 1 9 . M A Í 2 0 2 0 Þ R I ÐJ U DAG U RSUMAR OG BÖRN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.