Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2002, Síða 13
Utivist
fólk sér fyrir á Hótel Höfða, spjallaði og
hafði það náðugt.
Laugardagurinn byrjaði á því að allir
fengu sér góðan og hollan morgunmat.
Eftir það var lagt af stað til Stykkishólms.
Þar var snæddur hádegismatur og síðan
lagt úr höfn með hinu glæsilega fleyi
Særúnu frá Sæferðum. Starfsmenn um
borð í skipinu voru allir mjög hjálpsamir
og skemmtilegir og allir af vilja gerðir til
að aðstoða unglingana.
Mjög fróðlegt var að sjá allar þessar
eyjar og alveg ótrúlega fjölskrúðugt
fuglalíf. Þama vom bæði sílamáfar og
hafemir og allt þar á milli. Hent var út
„trolli“ og fiskaðist ágætlega upp úr því.
Var þarna bragðað á alls konar hráu
sjávarfangi.
Þegar ferðin var um það bil hálfnuð
gerðist eitt lítið ævintýri. Báturinn sigldi
inn í „straumhviðu”, sem hefur eitthvað að
gera með fjölda eyjanna þama í Breiðafírði
og mun á flóði og ljöru. Báturinn kipptist
hressilega til og þrátt fyrir aðvaranir
skipstjóra áttu margir fullt í fangi með að
halda sér á tveimur hjólum eða ijórum
fótum (eða var það öfugt?).
Niðri í borðsal gerðist sá atburður að
mikil læti, einhverskonar hvæs barst úr
eldhúsinu. Leiðbeinendur og bílstjóri sem
voru þarna niðri heyrðu að eitthvað var
talað um „gas” svo að björgunaraðgerðir
hófust, að koma okkar fólki strax upp á
dekk eins og skot! Sem betur fer reyndist
„gasið” vera einhvers konar kolsýra úr
slökkvitæki, þannig að alls engin hætta var
á ferðum. En spennandi var það á meðan á
þessu stóð!
Þegar „heim“ var komið var snæddur
dýrindis kvöldverður á Hótel Höfða. Eftir
kvöldverð þyrptust bæjarbúar inn á
Hótelið til að fylgjast með kosningunum.
Við fluttum okkur upp á íjórðu hæð, fómm
í einn leik en síðan fóm sumir í gönguferð,
aðrir út í sjoppu eða inn á herbergi til að
spjalla saman.
Eftir morgunverð á sunnudagsmorgun
var farið í skoðunarferð um nágrennið
undir styrkri leiðsögn Eyglóar, hótelstjóra
og leiðsögumanns. Margt áhugavert
reyndist hafa gerst í sveitinni á liðnum
öldum og urðu ferðalangarnir öllu fróðari.
Þá var farið í félagsheimilið þar sem
útbúinn var hádegismatur. Nokkrir
frábærir leiðbeinendur höfðu útvegað bæði
mat, drykk og flögur til styrktar og var
þetta nesti ómetanlegt. Eftir leiki og starf
var haldið heim á leið síðla dags og komið
að Sjálfsbjargarhúsinu rétt fyrir kl. 18 þar
sem foreldrar tóku á móti ánægðum en
þreyttum unglingum sínum.
Arni Salomonsson
ieiðbeinandi í Busl
Ekki á hverjum
degi sem maður
fær krabba í
fangið!
Leiðbeinendur
í BUSL eru
þeir bestu á
jarðríki!
tímarit öryrkjabandalagsins