Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2002, Qupperneq 30

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2002, Qupperneq 30
Viðtal farið að þora að bjóða mér aðstoð ef ég þarf að komast yfir götu eða er að lenda í vandræðum. Fólk er yfirleitt mjög almenni- legt en það kunna auðvitað ekki allir að leiða blinda. Fólk býður sjaldnast arminn, það vill heldur taka í handlegginn og toga mann áfram“. Hér áður fyrr kom það iðulega fyrir að engin girðing var sett fyrir ef grafinn var skurður í gangstétt eða götu og oft kom það fyrir að hún datt ofan í skurð. En sem betur fer hefur hún aldrei slasað sig alvarlega. Nú er farið að girða af skurði ef verið er að laga götur eða gangstéttar. Það er bót fyrir alla gangandi veg- farendur. Þurfti að sækja endurhæfingu til Bretlands Ásrún fór 1981 til Torquay í Bretlandi í þriggja mánaða endurhæfingu og lærði að nota hvíta stafinn. „Það var enga endurhæfingu að fá hér á landi og á þessum ámm þurfti maður að sækja alla endurhæfingu til útlanda. Ég lærði að nota hvíta stafinn svo að ég yrði meira sjálfbjarga. En ég var vel sett því að ég hafði unnið sjálf öll mín daglegu störf og hef aldrei hætt því. Ég fékk samt ekki næga kennslu með hvíta stafinn og fór í stutta endurhæfingu hér heima. Ég veit að hæfingarmálin em komin í betra horf hér á Islandi“. Ásrún hefur farið á námskeið í handavinnu og matreiðslu á vegum Blindrafélagsins og Sjón- stöðvar íslands og ætlar seinna að læra smíðar. Hún hefur mikinn áhuga á heimspeki og hefur sótt mörg námskeið í Háskóla íslands og hjá Endur- menntunarstofnun. Stundar sund og fer á fjöll Ásrún á góða vinkonu sem fer með henni í matvömbúð einu sinni í viku. Þær fara einnig saman í sund og gönguferðir með hundana. „Ég er afskaplega heppin manneskja og á góða að. Ég á kannski ekki marga vini en þeir em góðir. Ég á líka marga kunningja. Dóttir mín hjálpar mér mikið og fer stundum með mér í sérverslanir. Ásrún leggur stund á líkams- rækt og inni í stofu hjá henni er þrekhjól sem hún notar mikið. Hún er einnig mikið náttúmbarn og nýtir hvert tækifæri til að komast út úr bænum. Ásrúnu finnst gaman að ganga á fjöll og finna ilminn af náttúmnni. Hún nýtur þess að hlusta á fuglasöng. Blindan var feimnismál Ásrún vildi í fýrstu ekki tala við nokkurn mann um sjónmissinn því að hún óttaðist fordóma. „Ég vildi ekki að nokkur vissi þetta. Þetta er það sem blindir ganga í gegnum. Fólk reynir að leyna sjón- skerðingunni alltof lengi. Ungt fólk er kannski skynsamara nú á dögum og segir frá þessu strax. Ég sagði til dæmis foreldrum mínum ekki frá þessu fyrr en ég hafði lokið við hjúkmnina. Ég talaði ekki um þetta við nokkurn mann. Ég var svo hrædd um að mér yrði vantreyst. Þetta er mjög heimskulegt. Fólk á bara að vera sem eðlilegast. Mér finnst ég stundum ekki vera fötluð og gleymi oft stafnum mínum þegar ég fer út. Ég er auðvitað ekki með þetta neglt stöðugt inn í höfuðið á mér“. Ásrún les mjög mikið þ.e. hlustar á hljóðbækur. Hún segist ekki enn vera farin að lesa sjálfsævisögur en les flest annað. Hún hlustar mikið á tónlist en segist ekki ná alveg rappinu og þungarokkinu. „Mér þykir gaman að dansa og fer stundum á skemmtanir hjá Blindrafélaginu.“ Ásrúnu finnst ekki gaman að fara niður í miðbæ á krá en fer oft í leikhús. Ásrún segir að eftir sjón- missinn skynji hún lífið á annan hátt en áður og njóti þess til fulls. „Maður verður að nota dóm- greind og innsæi. Það er ekki það versta að missa sjónina. Stundum er gaman að sjá ekki neitt. Ég nýt núna lífsins á annan hátt en áður og geri mér grein fyrir að það er enginn hlutur sjálfsagður. Ég get ekki útskýrt það frekar“. Að lokum vitnar hún í orð Antoine de Saint-Exupéry „Maðurinn finnur með hjartanu það sem mikilvægt er, ósýnilegt augunum “ K.Þ. Hlerað í hornum Maður einn rogaðist inn til úrsmiðsins með heljarmikla Borgundarhólmsklukku og úrsmiðurinn spurði: „Gengur hún ekki?“ „Nei, þess vegna þarf ég nú að halda á henni”. Forstjóri heimilisföðurins var í heimsókn og sat inni í stofu þegar Nonni litli kom inn og gekk til hans og sagði föðurn- um til mikillar skelfingar: „Pabbi segir að þú vitir ekkert í þinn haus. Er það nokkuð satt?” Tvær vinkonur voru að tala saman og þá sagði önnur: „Ég vissi ekki hvað hamingja var fyrr en ég giftist honum Kalla, en þá var það bara of seint” 30 www.obi.is

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.