Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2002, Blaðsíða 35

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2002, Blaðsíða 35
Félagslega líkanið um fötlun lega hnignun. Niðurstöður erfða- fræðilegra rannsókna sköpuðu þannig kjörinn hugmyndafræði- legan grundvöll fyrir þvingaðar fjöldaófrjósemisaðgerðir sem tíðkuðust í Evrópu langt fram á síðustu öld og voru framkvæmdar á þeim sem taldir voru bera í sér þá erfðavísa sem þjóðfélagið vildi útrýma. Læknisfræðilega líkanið um fötlun. Læknisfræðilega líkanið um fötlun spratt upp úr þessum jarðvegi. Sjónarhorn þess á fötlun hefur verið ráðandi í hinum vestræna heimi mestan hluta síðustu aldar. Sá skilningur sem það leggur í fötlun byggir á vísindalegri þekkingu læknis- fræðinnar sem lítur á fötlun sem andstæðu þess sem er heilbrigt og eðlilegt. Áhersla er lögð á að greina líkamlega eða andlega skerðingu og veita ráðgjöf um viðeigandi meðhöndlun, meðferð, endurhæfíngu og/eða umönnun allt eftir eðli og alvarleika fötlun- arinnar. Fötlunin sem slík verður því megineinkenni einstaklings- ins og alhæft er út frá vangetu hans. Þar sem fötlunin er álitin uppspretta allra erfiðleika ein- staklingsins er hvorki tekið tillit til áhrifa kringumstæðna né um- hverfis á líf hans. Greiningin verður því til þess að fatlaðir einstaklingar eru flokkaðir óhæfir (invalid). Það eru ófatlaðir fag- menn og fræðimenn sem skil- greina allar þarfír fatlaðs fólks út frá fötlun þeirra, ólíkt því sem gerist hjá ófötluðu fólki sem skilgreinir sjálft sínar þarfir út frá eigin löngunum. Þar sem vanda- mál og erfiðleikar eru ein- staklingsbundin leiðir það til þess að litið er á fatlaða sem „hina“ eða öðruvísi á neikvæðan hátt. Þegar einstaklingur hefur verið greindur fatlaður er hann stimpl- aður og félagslegar væntingar um hvernig hann skuli hegða sér og hvað hann sé fær um, bætast við skerðinguna. Það að „vanda- málið“ krefst afskipta sérfræðinga gerir einstaklinginn ósjálfbjarga í augum annarra, hamlar honum félagslega og útilokar hann bæði frá samskiptum og tækifærum í lífinu. í stuttu máli felur læknis- fræðilega líkanið um fötlun í sér að um persónulegan harmleik sé að ræða. Litið er á einstaklinginn sem ólánssamt fómarlamb, háðan öðmm og í þörf fyrir umönnun. Þetta sjónarhom hefur lengi litað nálgun fagmanna jafnt sem almennings til fatlaðra og gerir að miklu leyti enn. Alþjóða heilbrigðisstofn- unin. Á áttunda áratugnum gerði Alþjóða heilbrigðisstofnunin (WHO) greinarmun á hug- tökunum skerðing, fötlun og hömlun. Samkvæmt þeirri grein- ingu vísaði hugtakið skerðing (impairment) til líkamlegrar og/eða andlegar skerðingar. Hugtakið fötlun (disability) var notað til að skýra þau áhrif sem skerðingin hefur á daglegt líf. Hömlun (handicap) vísaði aftur á móti til þeirra hindrana eða hafta sem fötlunin hefur á félagslíf og þeirrar mismununar sem ein- staklingurinn verður fyrir hennar vegna. Greining Alþjóða heil- brigðisstofnunarinnar var á allan hátt unnin í anda skilgreininga læknisfræðilega líkansins á fötlun. Skerðingunni voru eignaðir allir erfiðleikar einstak- lingsins og hvorki tekið tillit til áhrifa samfélagslegra eða um- hverfislegra þátta. Jarðvegur félagslega líkansins. Á áttunda áratugnum reis líkamlega fatlað baráttufólk í Bretlandi og samtök þess upp gegn þeirri einangrun og mis- munun sem einkennt hafði líf þess. Það gagnrýndi skilgreiningu Alþjóðlegu heilbrigðisstofnunar- innar harðlega, fyrir að tengja skerðingu, fötlun og hömlun nánum böndum og endurspegla þar með engan veginn raun- verulega reynslu fatlaðs fólks. Það sagði að með því að einblína á líkamlega skerðingu liti Alþjóðlega heilbrigðisstofnunin fram hjá öðrum orsökum fyrir mismunun og styrkti þannig útbreiddan misskilning um að skerðing og „óeðlilegheit“ væru lögð að jöfnu. Líkamlega fatlað fólk hafnaði því skilgreiningum fagmanna á fötlun og þróaði þess í stað eigin skilgreiningu með áherslu á hindranir og hamlanir samfélagsins. Það færði rök fyrir því að það væri ekki skerðingin sjálf sem gerði þau fötluð og legði hömlur á þau heldur væri orsaka að leita í formgerð samfélagsins. Samfélagið bætti fötlun ofan á skerðinguna með því að mis- muna, einangra og útiloka fólk frá fullri þátttöku í því. Fullyrðingin um að fötlun væri afleiðing samfélagslegrar kúgunar og tengsla fatlaðs fólks við aðra í samfélaginu varð grunnurinn að þróun félagslega líkansins um fötlun. Félagslega Iíkanið um fötlun. Félagslega líkanið um fötlun leggur áherslu á ytri orsakir sem hindra þátttöku fatlaðra í samfélaginu og það felur í sér róttæka endurskilgreiningu á hugtakinu fötlun. Þá hafnar það læknisfræðilegri nálgun sem leggur örlög fatlaðra algjörlega í hendur fagmanna til endur- hæfíngar og félagslegrar aðstoðar. Áhersla þess er á að mannlegri virkni sé stjórnað af félags- og efnahagslegum öflum sem stýrast tímarit öryrkjabandalagsins 35

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.