Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2002, Page 25
Æviágrip
Ólafur Gísli var inikill dýravinur. Hér hefur
hann fengið heimiliskött nágrannans við
Framnesveg í heimsókn. Myndin er tekin á
60 ára afmæli Ólafs Gísla. Innheimtutaskan
sýnir að ekki hefur hann tekið sér frí þennan
dag.
með því að vísa honum úr starfi.
Þetta þótti Ólafi óréttmætt og
taldi að hér hefði hann goldið
þess að vera fatlaður. Hefði þetta
óhapp hent ófatlaðan stafsmann
hefði málsmeðferð orðið önnur.
A Grund taldi Ólafur sig
merkja að hinir efnaðri í hópi
vistmanna gætu veitt sér meira en
hinir sem bjuggu við minni efni.
Þetta þótti honum ámælisvert og
mun það hafa hvatt hann til að
íhuga stöðu öryrkja almennt.
Samstaða öryrkja varð eftir-
sóknarverð að hans dómi. Hann
ákvað árið 1969 að arfleiða
Öryrkjabandalagið að öllum
sínum eigum en ekki var öðrum
en hans nánustu greint frá þeirri
ákvörðun. Ólafúr átti á 7. ára-
tugnum all oft í stríði við trygg-
ingamar vegna örorkubóta enda
voru tekjur hans stundum full-
miklar til að hann mætti njóta
þeirra óskertra.
Ólafur leitaði enn til Kristins
Bjömssonar er honum var vísað
úr starfi á Grund. Kristinn
ráðlagði honum nú að fá sér starf
ætíð
við að bera út blöð. Ólafur
fylgdi þessu ráði og hóf
blaðaútburð í Vestur-
bænum. Bar út Alþýðu-
blaðið, Tímann og Þjóð-
viljann og hafði þetta starf
með höndum í hátt á þriðja
áratug.
Starfið hlýtur að hafa
verið honum erfítt enda
var hægri fóturinn afllítill
og ótraustur. Ólafur var
því ekki fljótur í fömm en
leysti þann vanda með því
að hefja blaðaútburðinn
eins snemma á daginn og
kostur var. Veturnir reynd-
ust honum erfíðastir og
gekk Ólafur við staf og var
með mannbrodda þegar
hált var. Ekki nægði það
og fékk Ólafur marga
byltuna. Hann meiddist stundum
illa og varð að leggjast inn á
spítala af þeirri orsök. Einkum
varð hægri fóturinn hart úti og
mátti hann þó síst við slíku.
Ólafur lét ekki deigan síga og
hóf blaðaútburð á nýjan leik strax
og hann varð vinnufær. Ekki var
tekið í mál að taka sér langa hvíld
eða hætta blaðburði. Ólafur hóf
innheimtu fyrir tímarit og félög
fljótlega eftir að hann hóf blað-
burð. Innheimti til dæmis árgjald
fyrir Rétt, Náttúrufræðifélagið og
Norræna félagið og auglýsingar
fyrir eftirmiðdagsblöðin. Vann
við innheimtu síðdegis og um
helgar. I þeim ferðum var Ólafur
ætíð fótgangandi eða ferðaðist
með strætisvagni og skipti veður
ekki máli.
Við þessi störf kynntist hann
ýmsu fólki, fékk margan kaffí-
sopann og tækifæri til að skiptast
á pólítískum skoðunum. Oft var
hann af bráðókunnugu fólki
keyrður milli staða. Blaðburð og
innheimtu annaðist hann fram
um 1990 en þá lögðu dagblöð
þau sem hann hafði borið út upp
laupana eitt af öðru.
Ólafur átti mun erfíðara um
gang þegar hér var komið sögu.
Aldur og óslitin vinna tók sinn
toll og eins þurflti hann að gang-
ast undir hjartaaðgerð. Hann varð
af þessum sökum að minnka við
sig innheimtustörf og hætti þeim
loks á tíunda áratugnum. Síðustu
árin stundaði Ólafur ekki vinnu
og undi hann illa hag sínum.
Vildi á engan hátt þiggja þá
aðstoð sem í boði var.
Tímamót urðu í ævi Ólafs um
miðbik sjöunda áratugsins. Hann
hafði þá haft fæði og húsnæði á
vinnustað í um það bil áratug en
þetta breyttist er honum var vísað
úr vinnu á Grund. Ólafur tók þá
húsnæði á leigu við Bræðra-
borgarstíg og bjó þar í nokkur ár.
Fæði fékk hann hjá foreldrum
okkar en þau fluttust til Reykja-
víkur árið 1959 og höfðu er hér
var komið sögu keypt íbúð að
Framnesvegi 5.
Ólafur hafði eignast nokkurt fé
um miðbik sjöunda áratugsins og
varði því til kaupa á lítilli íbúð í
háhýsi við Austurbrún árið 1965.
íbúð þessa leigði hann ætíð út.
Hann keypti síðan aðra íbúð upp
úr 1970. Sú var við Öldugötu.
Ólafur fluttist í þessa íbúð og bjó
þar til ársins 1981 en leigði hana
síðan út.
Móðir okkar andaðist árið
1981. Þá keypti Ólafur íbúð
hennar og fluttist þangað og bjó
þar til dauðadags. Hafði þar eitt
herbergi og eldhúsaðstöðu til
umráða en leigði afganginn út.
Matseld annaðist hann sjálfur þar
til síðustu árin að hann fékk
heimsendan mat.
Lausafé sínu varði Ólafur
löngum til kaupa á ríkisskulda-
bréfum enda voru þau verðtryggð
tímarit öryrkjabandalagsins
25