Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2002, Side 27

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2002, Side 27
Útivist A hjólastól að jökli Viðtal við Ragnar Frank Kristjánsson þjóðgarðsvörð í Skaftafelli ann 4. júlí verður form- lega opnaður í þjóð- garðinum í Skaftafelli aðgengilegur göngustígur. Ragnar Frank Kristjánsson þjóðgarðsvörður segir göngu- stíginn ná frá þjónustu- miðstöðinni að Skaftafellsjökli. Göngustígurinn er 1 XA km á lengd og er aðgengilegur hreyfihömluðum og fólki með barnavagna. Að sögn Ragnars er þetta vinsælasta gönguleiðin 1 þjóðgarðinum og ákvað hann að sækja um styrk til Ferðamálaráðs til að bæta aðgengið á svæðinu. „Þetta er alveg örugg leið að jöklinum. Göngustígurinn er um 1,6 km. langur og byrjar við Skaftafellsstofu þar sem eru upplýsingar um sögu og náttúru Öræfasveitar. Þar er gott aðgengi fyrir fatlaða. Stígurinn er um 2,5 m breiður, 160 m eru klæddir með olíu- klæðningu og tvær litlar göngubrýr eru á leiðinni. Stígurinn endar skammt frá jöklinum við lítinn útsýnispall, að pallinum liggur skábraut með hallanum 1:20. Á pallinum er handrið og þar kemur skilti með fróðleik um Skaftafellsjökul og Svínafellsjökul. “Markmið okkar í þjóð- garðinum er að gera göngu- stíginn færan sem flestum. Handrið hefur ekki verið sett meðfram stígnum og ég veit ekki hvort það verði gert, en ég stefni að því að öðrum megin stígsins verði upphækkaður kantur til hagsbóta fyrir blinda og sjóndapra. Ég óska einnig eftir því að Öryrkjabandalagið komi með tillögur um hvemig hægt sé að gera göngustíginn svo vel úr garði að hann geti verið öðrum til fyrirmyndar á Islandi. Mitt markmið er skýrt en þetta veltur allt á ljármagni sem við fáum til verkefnisins”. Ragnar er menntaður lands- lagsarkitekt frá Kaupmanna- höfn og í námi kynntist hann hvemig huga skuli að hönnun á umhverfi fyrir fatlaða. Þá er innan ijölskyldu hans fatlaður einstaklingur og honum hefur ávallt verið kunnugt um þessar þarfir. Ragnar vill með þessu vekja athygli á hvað er hægt að gera á einfaldan hátt og að þessi framkvæmd í þjóðgarðinum gagnist mörgum. K.Þ. Hlerað í hornum Þeir urðu samferða að Gullna hliðinu presturinn og leigubíl- stjórinn og við inngönguna lét Sankti Pétur prestinn fá tréstaf en leigubílstjórann gullstaf. Prestur kvartaði sáran yfir þessari öfugu mismunun að honum fannst, en Pétur gaf sína skýringu: „Jú, sjáðu til, þegar þú messaðir varstu svo langorður og leiðinlegur að allir kirkjugestir sofnuðu, en þegar leigubílstjórinn ók sínum farþegum báðu allir bænirnar sínar”. Helgi Seljan, hinn ástsæli rit- stjóri þessa blaðs til margra ára, er mikið fyrir sykur og einu sinni þegar hann gjörðist fullfrekur til sykurmolanna sagði eiginkonan: „Hættu þessu sykuráti, þú drepur þig á þessu”. Þá sagði nær- staddur dóttursonur þeirra hjóna: „Ja, það yrði þá sætur dauðdagi”. Þeir bræður, Jónas og Guðmundur voru nokkuð aldraðir orðnir og óku þó til skiptis bíl um alla Reykjavík, en ekki þótti nú aksturinn til beinnarfyrirmyndar. Einu sinni þegar Jónas ók, fannst Guðmundi hann fara yfir þegar Ijósið var að breytast úr gulu í rautt og aftur gjörðist sama sagan nema þá var Ijósið orðið rautt, þegar Jónas ók yfir. Guðmundur þagði þó, en þegar Jónas ók svo rakleitt yfir á rauðu Ijósi, þá sagði Guðmundur: „Heyrðu Jónas bróðir, ég held þú hafir þrisvar ekið yfir á rauðu Ijósi. Ætlarðu að drepa okkur eða hvað?”. Þá hrekkur Jónas við og segir: „Æ, æ, Mundi bróðir. Er ég að aka?”. tímarit öryrkjabandalagsins 27

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.