Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2002, Page 37

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.2002, Page 37
Frá aðildarfélögum FAAS - Samtök minnissjúkra Dvöl í Fríðuhúsi rýfur einangrun Fríðuhús að Austurbrún 31 í Reykjavík er aðsetur FAAS Félags áhugafólks og aðstandenda Alzheimers- sjúklinga. Húsið er gjöf frá Pétri Símonarsyni frá Vatnskoti í Þingvallasveit en hann gaf samtökunum húsið til min- ningar um eiginkonu sína, Fríðu Olafsdóttur, ljósmyndara, sem var Alzheimerssjúklingur. Mikil þörf var á húsnæði undir dagvist fyrir minnissjúka og félagsstarfsemina alla og gjöfin því vel þegin. í janúar 2001 var opnuð dagvist í Fríðuhúsi fyrir Alzheimers- sjúklinga og er heimilt að hafa þar 15 sjúklinga. Dagvistin er opin frá kl. 8 - 17 og er þar margt til gamans og gagns gert eins og t.d. stunduð leikfimi, hæfing og farið í gönguferðir. Einnig vinna dvalar- gestir mikið handverk og taka þátt í öllu heimilishaldi. Farin er ein löng ferð í mánuði og hefur verið farið í Bláa Lónið, listasöfn og er Húsdýragarðurinn oft heimsóttur. Hljómsveit leikur fyrir dvalargesti við öll hátíðleg tækifæri og sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson sóknarprestur í Ásprestakalli hefur bænastund tvisvar í mánuði í Fríðuhúsi. Formaður FAAS, María Th. Jónsdóttir, segir að dvölin létti undir með aðstandendum og rjúfi einangrun sjúklinganna. María tekur fram að dvalargestir missi ekki ellilífeyri sinn þótt þeir fái inni í Fríðuhúsi. Dvalargestir greiða 500 krónur á mánuði í afþreyingarsjóð. FAAS - Samtök minnissjúkra hafa staðið að bókaútgáfu til upplýsingar og fróðleiks um sjúkdóminn. Bókin Karen - í viðjum Alzheimers kom út 1997 og Hvers vegna svarar þú ekki afi? var gefin út 1999. Félagið hefur selt til ljáröflunar markmiðskort, kort eftir Alzheimerssjúklinga, áletraða penna og fleira. Einnig gefur félagið út fjölda bæklinga um sjúkdóminn. Félagið heldur fræðslufundi og leiðbeinir aðstandendum. Þeim gefst kostur á að sækja fundi með stuðn- ingshópum sem stjórnað er af fagfólki. FAAS er í samstarfi við norrænu Alzheimerssamtökin og sendi félagið þrjá fulltrúa á stjómarfund sem haldinn var nú á vordögum. Norrænu samtökin stóðu að könnun á meðal aðstandenda Alzheimerssjúklinga um hvemig hið opinbera geti komið til móts við þeirra þarfir. Niðurstaðan verður notuð sem leiðarvísir fyrir sveitarfélög og ætlar FAAS að helja viðræður við sveitarfélög sem hafa áhuga á að bæta þjónustu sína við þennan hóp. í haust ætlar FAAS að standa fyrir ráðstefnu um sjúkdóminn og verður þar boðið upp á fræðslu og kynningu fyrir aðstandendur Alzheimerssjúklinga. K.Þ /WvT MS-félagið Sérhæfð göngudeild vex og dafnar Hjá MS félaginu er margt á döfinni sem fyrr. Göngudeild félagsins sem er sérhæfð fyrir MS fólk og aðstandendur þeirra vex og dafnar óðfluga og gaman að sjá hve vel hefur tekist til. Þekking á MS er mikil og samansöfnuð hjá okkur, hvort sem er á göngudeild félagsins eða hjá D&eMS. Vert er að hvetja alla sem hafa fengið MS greiningu til að leita sér upplýsinga hjá okkur. Einnig þá sem hafa ekki fengið greiningu en “liggja undir grun” eins og við segjum gjarnan. Alltaf er gott að atla sér þekkingar og í sumum til- fellum getur verið hægt að segja til um hvort líkur á MS séu meiri eða minni hjá viðkomandi þótt oft sé það tíminn einn sem úrskurðar endanlega þar um. Við höfum látið þýða bók ætlaða nýgreindu MS fólki og aðstandendum þeirra. Bókin heitir í þýðingu okkar „Multiple Sclerosis - upplýsingar fyrir nýgreinda”. í bókinni er að finna upplýsingar og hagnýt ráð sem nýst hafa MS fólki vel. Ætlunin tímarit öryrkjabandalagsins 37

x

Tímarit Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1441

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.