Fréttablaðið - 27.05.2020, Blaðsíða 48
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Jónu Hrannar
Bolladóttur
BAKÞANKAR
BÆTTU LÍKAMSSTÖÐUNA
Minni verkir, betri líðan
GÖNGUGREINING
Faeturtoga.is
S: 55 77 100
COLLAB
ÁSTARALDIN &
LÍMÓNU 330 ML
249
KR/STK
756 KR/L
Ég heyrði eitt sinn af skag-firskum bónda sem var svo ánægður með banaleguna
sína að hann kvaðst alls ekki
hafa viljað missa af henni. Menn
höfðu komið og átt við hann inni-
haldsrík samtöl, mál höfðu verið
gerð upp og farið yfir dýrmætar
minningar. Nýlega heyrði ég
reyndan heilbrigðisstarfsmann
halda því fram að allt fólk ætti rétt
á elskandi höndum að halda utan
um sig þegar kallið kemur. Vegna
starfa minna hef ég oft vitjað fólks
á banalegunni og það eru líklega
merkilegustu stundir sem ég hef
lifað.
Nú hefur veiran kvatt okkur
vonandi fyrir fullt og allt og
menn eru að fara yfir viðbrögð
og af leiðingar. Eitt sem ein-
kenndi ástandið var takmarkaður
aðgangur að hjúkrunarheimilum
og sjúkrastofnunum. Margir fóru
í gegnum banalegu sína með tak-
markaðri nærveru ástvina. Iðulega
mátti bara einn koma í einu og þá
aðeins á allra síðustu dögum eða
jafnvel klukkutímum ævinnar.
Ég fullyrði að þetta olli mörgum
meiri raunum en takmarkaður
fjöldi kirkjugesta við útfarir. Ég
kynntist systkinahópi sem hitti
aldraða móður rétt í blálokin eftir
mánaðarsjúkdómslegu og f lutning
milli sjúkrastofnana. Þau höfðu
alltaf séð fyrir sér hvernig þau
myndu þakka einstaklega umvefj-
andi ættmóður með því að vera
hennar stuðningsmenn í raunum
og fylgja henni eftir í hverju spori
þegar síðasti lífsspölurinn væri
farinn. Margir glíma við erfiðar
tilfinningar vegna hliðstæðra mála
á þessu vori. Í næsta heimsfaraldri
þurfum við að skapa góða aðstöðu
fyrir ástvini að verja tíma með
þeim sem eru að hverfa úr þessum
heimi, minnug þess hve inni-
haldsrík banalegan gjarnan er í lífi
okkar, fyrir utan hvað aðhlynning
ástvina er margþætt og mikilvæg.
Banalegan
Sendu barnið út í sumarið með Nokia 3310. Einfaldur takkasími
sem þarf sjaldan að hlaða, þolir hnjask og smellpassar í litla lófa.
Með völdum farsímaleiðum færðu Krakkakort með endalausu
tali og 1 GB á 0 kr.
Þú færð síma fyrir börnin og fleiri sumarlegar vörur
í verslunum Símans og á siminn.is
Sumarið er þitt í góðu
sambandi við börnin
siminn.is
Nokia 3
310
9.990 kr
.