Fréttablaðið - 27.05.2020, Blaðsíða 18
MARKAÐURINN
ÚTGÁFUFÉLAG Torg., Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík, sími 550 5000
Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 550 5051
Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@frettabladid.is Veffang frettabladid.is
750
milljónir króna var tap
móðurfélags gagnaversins
á Ásbrú árið 2018.
255
milljarðar króna er
markaðsvirði Play.
Félag í eigu Novator, fjárfest-ingafélags Björgólfs Thors Björgólfssonar, seldi í lok
síðustu viku liðlega fimm pró-
senta hlut í Play fyrir rúma þrettán
milljarða króna. Í kjölfar sölunnar
fer félagið með um fimmtungshlut
í pólska fjarskiptafélaginu Play.
Hlutabréfin voru seld til banda-
rískra og evrópskra fagfjárfesta á
genginu 28 pólsk slot á hlut, en til
samanburðar stóð gengi hlutabréfa
í fjarskiptafélaginu í 29,6 slotum í
gær. Hefur það lækkað um sextán
prósent frá áramótum.
Novator hefur þannig selt saman-
lagt um tíu prósenta hlut í Play á
síðustu átta mánuðum en félagið
gekk frá sölu á 4,5 prósenta hlut
í fjarskiptafélaginu fyrir um 12,3
milljarða króna í september í fyrra.
Þau viðskipti voru gerð á genginu
30,5 slot á hlut.
Gríska fjárfestingafélagið Toller-
ton hefur einnig minnkað við sig í
Play samhliða sölu Novators en
félagið, sem hefur verið stærsti
hluthafi fjarskiptafélagsins
ásamt Novator frá árinu 2008,
hefur selt alls níu prósenta
hlut í Play frá því í septem-
ber í fyrra. Fer það nú með
fimmtungshlut í fjarskipta-
félaginu, rétt eins og Nova-
tor, en sá hlutur er metinn
á ríf lega fimmtíu millj-
arða króna miðað
við núverandi
gengi hluta-
b r é f a í
p ó l s k a
félaginu.
Novator
og Toller-
ton höfðu
í hyg g ju
að s elja
samanlagt sjö prósenta hlut í Play í
síðustu viku, en vegna sterkrar eft-
irspurnar af hálfu fjárfesta ákváðu
félögin að lokum að selja alls 9,8
prósenta hlut.
Play var sem kunnugt er skráð á
hlutabréfamarkað í Varsjá sumarið
2017 í kjölfar eins stærsta hlutafjár-
útboðs í sögu Póllands þegar Nova-
tor og Tollerton seldu samanlagt
nærri 49 prósenta hlut í félaginu.
Félagið er stærsta fjarskiptafélag
Póllands með yfir fimmtán
milljónir viðskiptavina
og 28 prósenta mark-
aðshlutdeild. Markaðs-
virði þess nemur um
7,5 milljörðum slota
eða sem jafngildir um
255 milljörðum króna.
– kij
Novator selur í Play fyrir
þrettán milljarða króna
HAFÐU FJÖLPÓSTINN
ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU
– MEST LESNA DAGBLAÐ LANDSINS
Auglýsingaefnið lendir á eldhúsborðinu þegar
blaðið er opnað!
Íslendingar lesa Fréttablaðið
daglega að meðaltali.*
Kannaðu dreiileiðir og verð í síma 550 5050
eða sendu tölvupóst á orn@frettabladid.is.
Útvegum einnig hagstæð verð í prentun.
93.000
Hlutafé Valitor, dótturfélags Arion banka, hefur verið aukið um 3,5 milljarða
króna. Hlutafjárhækkunin, sem
fór fram á genginu einum, var sam-
þykkt á hluthafafundi greiðslumiðl-
unarfyrirtækisins undir lok síðasta
mánaðar og var hún greidd með
umbreytingu á kröfu Arion banka
á Valitor. Hlutafé félagsins eftir
hækkunina nemur 3,9 milljörðum
króna að nafnvirði.
Gríðarlegt tap hefur verið á
rekstri Valitor um langt skeið,
einkum vegna starfsemi félags-
ins erlendis, en á fyrsta fjórðungi
þessa árs nam tapið tæplega 1,2
milljörðum króna. Á árinu 2019
nam rekstrartapið hins vegar um
tíu milljörðum króna. Viðari Þor-
kelssyni, sem hafði stýrt Valitor
undanfarinn áratug, var sagt upp
störfum í lok marsmánaðar á þessu
ári. Herdís Fjeldsted, sem þá var
varaformaður stjórnar Arion banka
og formaður stjórnar Valitor, tók
við starfinu og mun gegna því þar
til stjórn félagsins hefur ráðið for-
stjóra til frambúðar.
Í lok síðasta árs var tilkynnt um
að stjórn Valitor hefði ráðist í end-
urskipulagningu á félaginu til að
snúa við taprekstrinum og styrkja
kjarnastarfsemina. Fjárfestingar
Valitor á undanförnum árum í
alþjóðlegri starfsemi nema um sex
milljörðum króna. Samanlagt tap
félagsins á þessari starfsemi, bæði
vegna kaupa á fyrirtækjum í Bret-
landi og Danmörku og uppsafnaðs
taprekstrar þeirra, er talið nema
um 13 milljörðum króna. Fyrr í
þessum mánuði var tilkynnt um
að Valitor hefði selt starfsemi sína
í Danmörku.
Bókfært virði Valitor í reikn-
ingum Arion banka hefur lækkað
verulega á undanförnum misserum
og árum og nam 5,5 milljörðum
króna í lok fyrsta ársfjórðungs. Til
samanburðar var félagið bókfært
á liðlega 16 milljarða í ársbyrjun
2019. Valitor er skilgreint sem eign
til sölu í reikningum Arion, en
bandaríski f járfestingabankinn
Citi var fenginn til að hafa umsjón
með sölunni í lok árs 2018. – hae
Hlutafé Valitor aukið um 3,5 milljarða
Herdís Fjeldsted, forstjóri Valitor.
Verne Global, sem rekur gagnaver á Á sbr ú í Reyk ja-nesbæ, hefur lokið við hlutafjáraukn-ingu fyrir um tíu
milljónir dala, jafnvirði tæplega
1,4 milljarða króna, auk þess sem
félagið hefur tryggt sér yfir fjög-
urra milljarða króna lán frá Arion
banka. Er fjármögnuninni ætlað að
auka afkastagetu gagnaversins um
liðlega fjögur megavött, að sögn for-
svarsmanna fyrirtækisins.
Samkvæmt gögnum sem hefur
verið skilað inn til bresku fyrir-
tækjaskrárinnar, tóku stærstu
hluthafar Verne Global, þar á meðal
félög á vegum Novators og fram-
takssjóður í stýringu Stefnis, þátt í
hlutafjáraukningunni.
Þannig lögðu félög í stýringu
Novator, fjárfestingafélags Björgólfs
Thors Björgólfssonar, gagnaverinu
til um 2,6 milljónir dala, jafnvirði
um 360 milljóna króna, á meðan
sjóðurinn SF VI, sem er að mestu
fjármagnaður af innlendum líf-
eyrissjóðum, fjárfesti í því fyrir um
2,9 milljónir dala, eða sem jafngildir
um 400 milljónum króna.
Breski góðgerðarsjóðurinn Well-
come Trust, stærsti hluthafi Verne
Global með nærri 30 prósenta hlut,
lagði félaginu til 3,2 milljónir dala
og þá nam framlag bandaríska fjár-
festingarsjóðsins General Catalyst
Partners um 1,3 milljónum dala.
Novator hafði sem kunnugt er
forystu um stofnun Verne Global
árið 2007 ásamt General Catalyst.
Wellcome Trust, sem er meðal ann-
ars einn stærsti bakhjarl rannsókna
í líf- og læknisfræði í heiminum,
fjárfesti í gagnaverinu árið 2010 og
þá kom fyrrnefndur sjóður í rekstri
Stefnis, sjóðastýringarfélags Arion
banka, inn í hluthafahópinn með
um fjórðungshlut snemma árs 2015.
Fram kemur í fyrrnefndum gögn-
um úr bresku fyrirtækjaskránni að
Verne Global og Arion banki hafi
samið um miðjan síðasta mánuð
um annars vegar framkvæmdalán í
evrum og dölum fyrir jafnvirði um
2,3 milljarða króna og hins vegar
lán til endurfjármögnunar á eldri
lánum fyrir allt að 1,9 milljarða
króna.
Eru lánin tryggð með veði í öllu
hlutafé gagnaversfélagsins.
Bankinn hefur áður komið að
fjármögnun Verne Global, en hann
endurfjármagnaði sem dæmi félag-
ið að fullu árið 2014, tveimur árum
eftir að starfsemi gagnaversins
hófst, auk þess sem hann fjármagn-
aði á sama ári frekari stækkun þess.
Tap hefur verið á rekstri gagna-
versins frá því að það var opnað
árið 2012. Sem dæmi nam tap Verne
Holdings, móðurfélags Verne Glo-
bal, um 5,4 milljónum dala, jafn-
virði um 750 milljóna króna, árið
2018 og nærri 10,2 milljónum dala
árið 2017.
Tekjur félagsins námu saman-
lagt 17,5 milljónum dala, um 2,4
milljörðum króna árið 2018, borið
saman við 12,3 milljónir dala árið
áður.
Móðurfélagið átti eignir upp á alls
98,5 milljónir dala, sem jafngildir
um 13,7 milljörðum króna, í lok
árs 2018, en á sama tíma var eigið fé
þess 72,7 milljónir dala og eiginfjár-
hlutfallið því um 74 prósent.
Dominic Ward, sem hefur starfað
sem fjármálastjóri Verne Global,
tók við forstjórastarfi gagnavers-
félagsins fyrr á árinu af Jeff Monroe,
sem hafði gegnt starfinu í meira en
tíu ár. Áður starfaði Dominic fyrir
fjárfestingararm Wellcome Trust
þar sem hann leiddi meðal annars
fjárfestingu sjóðsins í Verne Global
á árunum 2010 og 2011.
kristinningi@frettabladid.is
Verne eykur umsvifin
með nýju hlutafé
Gagnaver Verne Global á Ásbrú hefur tryggt sér um sex milljarða króna fjár-
mögnun með hlutafjáraukningu og láni frá Arion banka. Stærstu hluthaf-
arnir lögðu félaginu til fé. Mikið tap hefur verið á rekstrinum á síðustu árum.
Gagnaver Verne Global á Ásbrú, sem er meðal annars í eigu lífeyrissjóða, var opnað árið 2012. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Björgólfur
Thor Björg-
ólfsson,
aðaleig-
andi fjár-
festinga-
félagsins
Novator.
2 7 . M A Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R2 MARKAÐURINN