Fréttablaðið - 30.05.2020, Side 2
Núna eru liðnar
þrjár vikur og við
óttumst hið versta.
Ásgeir Falk
Veður
Sunnan 5-10 og dálitlar skúrir, en
áfram bjart og hlýtt norðaustan
til. SJÁ SÍÐU 38
Brettakúnstir á bryggjunni
Ungir áhugamenn um hjólabretti voru í óðaönn að smíða hjólabrettavöll við Gömlu höfnina í Reykjavík þegar ljósmyndara Fréttablaðsins bar að
garði í gær. Athafnamennirnir ungu höfðu lítinn tíma til að ræða við fjölmiðla. Á meðan lék félagi þeirra listir sínar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SAMFÉLAG „Okkur var sagt að við
myndum fá íbúð eftir viku en svo
dróst það. Loks kom póstur um að
það myndi ekkert gerast á næstunni.
Núna eru liðnar þrjár vikur og við
óttumst það versta,“ segir fjölskyldu-
faðirinn Ásgeir Falk. Hann og eigin-
kona hans, Sigrún Líndal, misstu allt
sitt í eldsvoða í Grafarvoginum fyrr
í þessum mánuði. Þau eiga tvö börn,
sex og tveggja ára, svo eiga þau von á
þriðja barninu í september.
Það kviknaði í íbúðinni þegar
sonur þeirra komst fyrir slysni í
kveikjara. Íbúðina leigðu þau af
Félagsbústöðum, en á meðan þau
bíða eftir annarri íbúð dvelja þau á
hóteli í Mosfellsbæ.
Ásgeir hefur miklar áhyggjur af
framtíðinni. „Hótelherbergið er
lítið, það er allt í lagi að vera hérna í
viku, en núna eru liðnar þrjár og við
bíðum í von og óvon hvort við séum
í raun að fara að fá nýja íbúð. Þeir
sögðu okkur að krossleggja fingur.“
Þau þurfa að greiða leigu af íbúð-
inni sem brann og myndu þurfa að
greiða leigu af íbúðinni sem þau von-
ast til að fá. Hann er öryrki, en Sig-
rún starfar sem stuðningsfulltrúi,
en þau hafa fengið fjárhags aðstoð
frá félagsþjónustunni til að greiða
fyrir hótelið.
Biðin hefur ekki farið vel með and-
legt ástand fjölskyldunnar. „Konan
mín er kvíðin yfir ástandinu og
er komin með samdrætti. Eldri
strákurinn hefur verið mjög niður-
dreginn síðan þetta gerðist. Nú er
yngri strákurinn með mikinn kvíða
yfir ástandinu og hefur lítið borðað
síðustu daga,“ segir Ásgeir.
Hann vonar að lausn finnist sem
fyrst, svo þau verði búin að koma sér
fyrir áður en þriðja barnið kem ur í
heiminn. „Við misstum allt í brun-
anum og það tekur tíma að gera allt
klárt.“
Sigrún Árnadóttir, framkvæmda-
stjóri Félagsbústaða, segir fullan
skilning á því að fjölskyldan sé í erf-
iðri stöðu eftir eldsvoðann og mildi
að ekki fór verr. „Allt kapp er lagt á
að lagfæra íbúðina þeirra og koma
henni í samt lag,“ segir Sigrún. Það
mun skýrast á næstu dögum hvort
fjölskyldan flytur aftur þangað, eða
í annað húsnæði. Þegar tjón á sér
stað í íbúð, sem verður til þess að
ekki er unnt að búa þar, höfum við
stundum getað útvegað aðra íbúð
með skömmum fyrirvara, en það er
ekki sjálfgefið.“
Eldsvoðann sé á engan hátt hægt
að rekja til ástands fasteignarinnar,
eða ábyrgðar húseigandans. „Það
er leigusamningur um íbúðina og
þau þurfa að borga af henni leiguna
á meðan leigusamningurinn er í
gildi,“ segir Sigrún. „Þegar eitthvað
þessu líkt kemur upp, hvort sem það
er í eigin húsnæði eða ekki, þá lendir
fólk í millibilsástandi á meðan leitað
er að öðrum lausnum.“
Velferðarsvið borgarinnar sér
um alla félagslega aðstoð á vegum
sveitarfélagsins og úthlutar lausum
íbúðum til þeirra sem falla undir
reglur um úthlutun félagslegs leigu-
húsnæðis. Félagsbústaðir sjá svo um
að ganga frá leigusamningum og allt
annað sem viðkemur skyldum leigu-
sala. arib@frettabladid.is
Bíða í óvissu eftir nýju
heimili eftir brunann
Ásgeir Falk og Sigrún Líndal misstu allt í eldsvoða fyrr í mánuðinum. Nú búa
þau á hóteli í Mosfellsbæ með tveimur sonum sínum. Þau vonast til að kom-
ast í skjól í nýja íbúð áður en þriðja barnið kemur í heiminn í september.
Fjölskyldan heldur í vonina um betri tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Einbeittu þér að rekstrinum á meðan
Sintra sér um bókhaldið
Persónuleg og aðgengileg þjónusta
Sendu okkur fyrirspurn og við munum svara eins fljótt
og við getum. sintra@sintra.is , 822-8586, www.sintra.is
Sintra sérhæfir sig í persónulegri og aðgengilegri bókhaldsþjón-
ustu. Láttu okkur sjá um færslu bókhalds, bankaafstemmingar,
gerð sölureikninga, skráningu bankakrafna, innheimtu, upp-
gjör virðisaukaskatts, uppgjör aðflutningsgjalda, launavinnslu,
staðgreiðsluskil, skil á launatengdum gjöldum, verkbókhald,
verkreikninga, birgðabókhald, skráningu á lager, mánaðarlegar
rekstrarskýrslur og skil til endurskoðanda í ársbyrjun.
FLUG Icelandair er tilbúið að hefja
f lug til Norður-Ameríku þegar
ferðatakmörkunum þar í landi
verður aflétt. Þetta staðfesti Birna
Ósk Einarsdóttir, framkvæmda-
stjóri sölu- og þjónustusviðs Ice-
landair. Fyrr í vikunni var greint frá
því að Icelandair stefndi að daglegu
f lugi til lykilstaða í Evrópu þegar
landið verður opnað á ný.
Icelandair hefur í samstarfi við
utanríkisráðuneytið flogið nokkur
f lug til Boston með bandaríska
ríkisborgara og þá sem eru með
lögheimili í Bandaríkjunum. Birna
segir Icelandair vera í reglulegum
samskiptum við f lugvellina og
borgirnar vestanhafs.
„Við nálgumst alla áfangastaði
eins og stökkvum á það ef tæki-
færið býðst. Það er auðvitað meiri
óvissa í Bandaríkjunum, eins og
sakir standa. Hlutirnir eru fljótir að
breytast, við erum í startholunum
með f lug til bæði Bandaríkjanna
og Kanada og bíðum þess að landa-
mærin opnist,“ segir Birna.
Aðspurð hvort Icelandair sé búið
að hanna nýja áætlun fyrir f lug til
Norður-Ameríku segir Birna að
svipuð stefna verði tekin og í Evr-
ópu. „Í grunninn er unnið út frá
fyrri áætlun en það er alveg ljóst að
það mun taka sinn tíma að komast
aftur á sama stað. Í Evrópu erum við
að fylgjast með opnunum og gerum
áætlanir út frá því hverju sinni,
miðað við nýjar reglur. Vonandi
getum við gert það sama í Banda-
ríkjunum.“ – kpt
Bíða heimildar
frá N-Ameríku
Icelandair bíður færis til Ameríku.
COVID -19 Framboð g istir ý ma
minnkaði um tæp 45 prósent í
apríl á þessu ári, sé miðað við sama
mánuð í fyrra, en í liðnum apríl-
mánuði voru 75 hótel á Íslandi
lokuð í kjölfar kórónaveirufarald-
ursins.
Nýting á hótelherbergjum var
á sama tíma 3,5 prósent og dróst
saman um 45,7 prósent frá fyrra
ári. Þetta kemur fram á vef Hag-
stofunnar.
Fjöldi greiddra gistinátta í apríl
2020 dróst saman um 96 prósent,
miðað við sama mánuð í fyrra. Í
ár voru greiddar gistinætur ferða-
manna tæplega 21 þúsund talsins
í apríl, miðað við 519 þúsund í
fyrra. Sextíu og átta prósent gisti-
nátta í apríl á þessu ári voru skráð á
Íslendinga, eða 14.200 nætur, og 32
prósent á erlenda gesti, um 6.600.
Flestar voru gistinætur á hót-
elum, 9.200 talsins og 4.300 gisti-
nætur voru á gistiheimilum.
– bdj
Yfir sjötíu hótel
lokuð í apríl
3 0 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð