Fréttablaðið - 30.05.2020, Blaðsíða 6
Ef við gætum dreift
álaginu þá myndum
við finna mikinn ávinning.
Hildur
Björnsdóttir,
borgarfulltrúi
Sjálfstæðis-
flokksins
Orkustofnun - Grensásvegi 9 - 108 Reykjavík - Sími 569-6000 - www.os.is
Tvö ný útboð verkefna á sviði
jarðhita og lítilla vatnsaflsvirkjana
á vegum Uppbyggingarsjóðs EES
í Póllandi - tækifæri á samstarfi
pólskra og íslenskra fyrirtækja
Jarðhiti
Markmið útboðsins er að fjármagna verkefni á sviði
endurnýjanlegrar orku, orkunýtni og orkuöryggis – með
aukinni notkun á jarðhita. Framkvæmd verkefnanna munu
leiða til minni losunar á CO2 og auka hagkvæmni.
Litlar vatnsaflsvirkjanir
Markmið útboðsins er að fjármagna verkefni á sviði
endurnýjanlegrar orku, orkunýtni og orkuöryggis – með
endurnýjun og aukinni hagkvæmni lítilla vatnsaflsvirkjana
(allt að 2MW). Verkefninu er einnig ætlað að auka
fræðslustarfsemi sem miðar að því að þjálfa fagfólk á sviði
vatnsaflsvirkjana.
Áður hafa verið auglýst 8 útboð verkefna á sviði loftslags-,
umhverfis- og orkumála, sem munu leiða til mun minni losunar
á CO2. Heildarumfang allra verkefnanna
getur verið allt að 65 milljarðar sem
skapa mikil tækifæri á samstarfi
pólskra og Íslenskra fyrirtækja.
Nánari upplýsingar á vefsíðu
Orkustofnunar os.is
Vegahandbókin • Sundaborg 7 • Sími 893 1091
• Uppl. um 3.000 staði
• Uppl. um 1.000 menn
verur og vætti
• Vegakort
• Þéttbýliskort
• Þjóðsögur
• Ítarlegur hálendiskafli
• 24 síðna kortabók
• Vegahandbókar App
• Hljóðbók með
þjóðsögum
• Hljóðbók með
þjóðlögum
o.fl. o.fl.
Hafsjór af fróðleik um perlur Íslands
FULLT VERÐ
4.990-
1.000 kr. afsláttur ef þú
kemur með gömlu bókina.
Bara í bókaverslunum.
Stöðug uppfærsla
í 47 ár
COVID -19 Dönsk stjórnvöld til-
kynntu í gær að frá og með 15. júní
yrði opnað fyrir ferðir frá Íslandi,
Noregi og Þýskalandi. Fara á var-
lega í opnun landsins og er ekki
búist við að f leiri lönd bætist við
fyrr en í haust.
Nokkur skilyrði eru þó sett fyrir
ferðalögum til Danmerkur. Þannig
verður ferðamönnum ekki heimilað
að gista í Kaupmannahöfn en þar
hafa flest smit komið upp í landinu.
Þó verður heimilt að heimsækja
höfuðborgina og borða á veitinga-
stöðum þar.
Ferðamenn þurfa að sýna fram á
að hafa bókað gistingu í minnst sex
nætur á hótelum, gistiheimilum eða
tjaldsvæðum.
Dönum er ráðið frá því að ferðast
til annarra landa fram til 31. ágúst.
Undantekning frá þessu eru ferðir
til Íslands, Noregs og Þýskalands.
Þeir sem koma þaðan þurfa ekki að
fara í sóttkví eins og þeir sem koma
frá öðrum löndum.
Þá var tilkynnt í gær að opnað
yrði á ferðir frá Íslandi til Eistlands
næsta mánudag og til Færeyja 15.
júní.
„Stóra málið er að við höfum
verið að halda á lofti hvernig hlut-
irnir hafa gengið hér. Við höfum
verið að ýta á eftir því að það sé
unnið saman, sérstaklega á vegum
Norðurlandanna, þegar kemur
að opnun landamæra,“ segir Guð-
laugur Þór Þórðarson utanríkis-
ráðherra.
Í gær var einnig tilkynnt að opnað
yrði fyrir ferðalög milli Danmerkur
og Noregs frá 15. júní. Erna Solberg,
forsætisráðherra Noregs, sagði í gær
að það væri ekki útilokað að opnað
yrði á ferðir frá öðrum Norður-
löndum á næstunni.
„Ég er á þessu stigi vongóður um
að það opnist líka á ferðir til Noregs
15. júní miðað við þau samtöl sem
ég hef átt við Norðmenn,“ segir Guð-
laugur Þór. – sar
Íslendingum heimilað að ferðast til Danmerkur frá 15. júní
Borgaryfirvöld í Kaupmannahöfn eru ósátt við að ferðamenn fái ekki að
gista í borginni þegar landið opnast að nýju í júnímánuði. MYND/GETTY
Ég er á þessu stigi
vongóður um að
það opnist líka á ferðir til
Noregs 15. júní.
Guðlaugur Þór Þórðarson,
utanríkisráðherra
REYKJAVÍK „Ég held að við ættum
að nota ástandið sem skapaðist í
COVID-19 og samkomubanninu til
þess að stokka svolítið spilin í sam-
félaginu. Horfa á kerfin sem við
höfum búið til og reyna að sjá hvort
þau séu raunverulega að þjóna
okkur,“ segir Hildur Björnsdóttir,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
Umferð í Reykjavík dróst veru-
lega saman þegar samkomubann
var sett á þann 16. mars, en hefur
aukist aftur eftir að breyttar reglur
tóku gildi þann 4. maí síðast-
liðinn. Umferðin hefur þó ekki
náð sömu hæðum og síðustu ár og
umferð hjólandi hefur aldrei verið
meiri. Þrátt fyrir minni umferð má
gera ráð fyrir að meðalborgarbúi
muni eyða tugum klukkustunda í
umferðartafir á árinu.
„Helstu umferðar t af ir nar í
borginni eiga sér stað í sirka tvær
klukkustundir á dag, eina klukku-
stund að morgni og eina síðdegis,
þá er allt stíflað. Á öðrum tímum er
umferðin tiltölulega greið. Ef að við
gætum dreift álaginu þá myndum
við finna mikinn ávinning,“ segir
Hildur.
„Þar getur sveigjanlegur vinnu-
tími skipt öllu, það að allir hefji ekki
vinnudaginn á sama tíma og ljúki
honum á sama tíma, gæti breytt
ýmsu. Við sáum það í samkomu-
banninu og það er full ástæða til
þess að skoða það betur, þetta er
valkostur sem kostar okkur ekkert,“
bætir hún við.
Þá segir Hildur langtíma sam-
gönguáætlanir mikilvægar, en að
einnig sé mikilvægt að vera opinn
fyrir breytingum þar á. „Þegar
svona aðstæður koma upp og sam-
félagið tekur svona örum breyt-
ingum, þurfum við að vera opin
fyrir því að breyta bæði því sem
við erum vön og langtímaáætl-
unum. Við sjáum það að sveigjan-
legur vinnutími skiptir þarna máli
og að borgarbúar eru opnir fyrir
breytingum, það sjáum við til
dæmis á notkun hjólastíganna og
rafskútanna,“ segir hún.
Frá því að samkomubannið var
sett á hefur sala á bæði reiðhjólum
og rafskútum aukist, sama má segja
um leigu á rafskútum í borginni.
Adam Karl Helgason, framkvæmda-
stjóri Zolo rafskútuleigunnar, segir
áhuga Íslendinga á hjólunum gríð-
arlegan. „Við bjuggumst ekki við
því í upphafi að Íslendingar myndu
leigja hjólin í miklu magni, en raun-
in er önnur. Við byrjuðum með 100
hjól en erum nú að bæta enn frekar
við okkur. Á þessum örfáu mánuð-
um sem við höfum verið starfandi
eru notendur okkar orðnir rúmlega
6.000 talsins.“
Eyþór Máni Steinarsson, rekstrar-
stjóri Hopp, tekur undir orð Adams
og segir mikinn áhuga á hjólunum,
„Fólk virðist vera reiðubúnara en
áður til að leggja einkabílnum og
finna aðrar leiðir til að koma sér á
milli staða,“ segir hann.
Notendur Hopp eru yfir 30 þús-
und talsins og segir Eyþór nokkur
hundruð bætast í hópinn á hverjum
degi. „Notendur okkar eru virki-
lega ánægðir með að hafa f leiri og
umhverfisvænni valkosti, saman-
lagðar ferðir á hjólunum ná nú tæp-
lega sex hringi í kringum heiminn.“
birnadrofn@frettabladid.is
Sveigjanleiki minnki
líklega umferðartafir
Umferð í Reykjavík breyttist mikið í samkomubanninu. Borgarfulltrúi segir
líkur á að sveigjanlegur vinnutími geti haft jákvæð áhrif á umferð í borginni,
borgarbúar séu opnir fyrir nýjum leiðum í samgöngum, svo sem rafskútum.
Umferðin í Reykjavík dróst verulega saman í samkomubanni en hefur nú aukist á nýjan leik. FRÉTTABLAÐI/ERNIR
3 0 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð