Fréttablaðið - 30.05.2020, Page 8
Þegar rúðurnar
brotna er um
verulegt fjárhagslegt tjón að
ræða.
Hafberg Þórisson,
framkvæmdastjóri
NÝIR TÍMAR Í
SAMGÖNGUM
Rafhjólatrygging TM er sérsniðin trygging
fyrir rafknúin farartæki. Kláraðu málið á tm.is.
ÞÚ FÆRÐ RAFHJÓLATRYGGINGU Á TM.IS
HUGSUM Í FRAMTÍÐ
MOSFELLSBÆR Bæjarráð Mosfells-
bæjar hafnaði í vikunni tillögu um
að Laufskálar, fasteignafélag Lamb-
haga, myndi kaupa landsvæði í
eigu Mosfellsbæjar sem notað er
til æfinga á golfvelli Bakkakots.
Haf berg Þórisson, framkvæmda-
stjóri Laufskála og eigandi Lamb-
haga, hefur í eitt ár óskað eftir því
að sveitarfélagið grípi til aðgerða í
von um að vernda nýja gróðrarstöð
fyrirtækisins.
Haf berg sendi Mosfellsbæ fyrst
kvörtun í maí á síðasta ári og ítrek-
aði kvörtun sína um mitt sumar.
Þar sagðist hann margoft hafa lýst
yfir áhyggjum sínum af hættu sem
fylgdi golfkúlunum sem kæmu yfir
á landareignina sem gróðurhúsið
er byggt á. Þá bætti Haf berg við að
starfsmenn hefðu unnið við verri
golfkúlnahríð en hann hefði búist
við, sem fylgdi veruleg slysahætta,
enda gróðurhúsið byggt úr gleri.
Samkvæmt umsögn Mosfells-
bæjar á síðasta ári eru 250 metrar
frá æfingasvæðinu að gróðurhúsinu
og var framkvæmdastjóra umhverf-
issviðs úthlutað því verkefni að leita
lausna í samráði við báða aðila. Það
var tekið fram að golfvöllurinn
hefði þegar verið til staðar þegar
gróðurhúsið var reist og hefði því
verið hægt að gera viðeigandi varn-
arráðstafanir við byggingu hússins.
Í byrjun maí var það borið undir
Mosfellsbæ að tillögu Golf klúbbs
Mosfellsbæjar og framkvæmda-
stjóra umhverfissviðs, að Laufskál-
ar myndu festa kaup á umræddu
æfingasvæði og því yrði fundinn
nýr staður fjarri gróðrarstöðinni
sem myndi hagnast báðum aðilum,
en þeirri tillögu var hafnað. Í sam-
tali við Fréttablaðið sagði Haf berg
að tillagan hefði komið frá Golf-
klúbbi Mosfellsbæjar og fram-
kvæmdastjora umhverfissviðs og
bætti við að hann vildi bara fá lausn
í þessu máli. „Við fórum í stærðar-
innar framkvæmdir við að byggja
þetta gróðurhús þarna og erum
búnir að fá nóg af því að fá golfbolta
í glerið hjá okkur. Þegar rúðurnar
brotna er um verulegt fjárhagslegt
tjón að ræða.“ – kpt
Vildu kaupa landsvæði til að verjast hættulegri golfkúlnahríð
Markmiðið er að breyta efnahagskerfinu til að takast á við loftslagsbreytingar. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
EFNAHAGSMÁL „Mér finnst megin-
punkturinn vera sá að nú er tæki-
færi til breytinga og við verðum
að nýta það. Í rúman áratug hefur
fjöldi manns talað fyrir grænum,
ný jum samfélagssáttmála, en
hann er núna loksins kominn inn í
almenna, pólitíska umræðu,“ segir
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, aðal-
hagfræðingur BSRB, um grænu
leiðina út úr kreppunni.
Efnið var rætt á hádegisfundi ASÍ,
BSRB og Vörðu – rannsóknastofn-
unar vinnumarkaðarins í gær. Þar
hélt breski hagfræðingurinn Ann
Pettifor erindi en Sigríður Ingibjörg
stýrði fundinum sem fór fram í
gegnum fjarfundarbúnaðinn Zoom.
Pettifor er einn af upphafshugs-
uðum um grænan, nýjan samfélags-
sáttmála, sem hún hefur barist fyrir
frá árinu 2008. Hugmyndirnar ganga
út á breyta hagkerfinu og samfélag-
inu, til að geta tekist á við áskorun
loftslagsbreytinga. Meðal þeirra sem
hafa tekið hugmyndafræðina upp á
sína arma er Alexandria Ocasio-
Cortez, fulltrúadeildarþingmaður
Demókrata í Bandaríkjunum.
Pettifor sagði á fundinum í gær
að horfa þyrfti á hina stóru heildar-
mynd til þess að ná fram nauðsyn-
legum kerfisbreytingum, til þess að
fjármagna umskiptin frá notkun
jarðefnaeldsneytis.
Ekki væri hægt að skattleggja
fólk til að fjármagna breytingarnar
heldur sé atvinnusköpun svarið.
Stjórnvöld þurfi að ráðast í miklar
fjárfestingar í nýjum orku- og sam-
göngukerfum.
Sigríður Ingibjörg tekur undir og
segir sömu leið eiga við til að takast
á við efnahagslegar af leiðingar
COVID-19.
„Við verðum að fjárfesta okkur
út úr kreppunni. Niðurskurðar-
stefnan sem rekin hefur verið í Evr-
ópu síðasta áratug hefur bara leitt til
hallareksturs ríkissjóða. Hið opin-
bera þarf að fara í fjárfestingar og
fara í samvinnu við einkaaðila sem
síðan framkvæma,“ segir Sigríður
Ingibjörg.
Ha lla Gu nna rdót t ir, f ram-
kvæmda stjóri ASÍ, tók einnig þátt í
fundinum. Hún segir að viðbrögðin
við kórónaveirunni sýni hversu rót-
tækra aðgerða sé hægt að grípa til,
þegar líf og heilsa mannkyns hangi
á spýtunni.
„Við þurfum að draga lærdóm
af þessu núna þegar við höldum
áfram að takast á við loftslagskrís-
una. Hugmyndafræðin um grænan,
nýjan samfélagssáttmála rammar
inn grænu leiðina út úr kreppunni,“
segir Halla.
Pettifor sagði einnig í erindi
sínu að þjóðir heims þyrftu í meiri
mæli að verða sjálfum sér nægar.
Kapítalisminn gangi meðal annars
út að hvetja til sífellt meiri neyslu,
en græni sáttmálinn leggi meiri
áherslu á raunverulegar þarf ir
fólks.
„Það má kannski segja að asinn
sem fylgir neyslunni og markaðs-
hyggjunni sé ekki endilega val fólks.
Ekki það að við viljum hætta allri
neyslu, en þarna eru markaðsöf l
að stjórna hegðun okkar að miklu
leyti,“ segir Sigríður Ingibjörg.
sighvatur@frettabladid.is
Atvinnusköpun út úr kreppu
Græna leiðin út úr kreppunni var til umfjöllunar á hádegisfundi ASÍ, BSRB og Vörðu í gær. Breski hag-
fræðingurinn Ann Pettifor segir atvinnusköpun og opinberar fjárfestingar leiðina út úr kreppunni.
SAMFÉLAG Bræðurnir Baldur og
Snæbjörn Ragnarssynir, stofnuðu
fyrir skemmstu nýja hlaðvarpsstöð,
Hljóðkirkjuna. Þegar eru komnir
fjórir þættir á dagskrána og f leiri
gætu bæst við í flóruna.
„Þegar ég hef svona mikinn áhuga
á einhverju er rökrétt skref fyrir mig
að gera það sjálfur,“ segir Baldur sem
hefur stýrt þættinum Dómsdegi í
tvö ár. Besta platan hóf göngu sína
í fyrra við góðan orðstír. Þar skegg-
ræða þeir bræður tónlist ásamt
doktor Arnari Eggerti Thoroddsen.
Tvö ný hlaðvörp hafa bæst við,
sagnfræðiþáttur Baldurs og Flosa
Þorgeirssonar og viðtalsþátturinn
Snæbjörn talar við fólk.
Þegar er farið að ræða um fleiri
nýja þætti, en ekkert ákveðið á
þessari stundu. Bibbi segir tvo aðra
þætti komna á teikniborðið. „Við
fáum svona 25 hugmyndir á dag. En
tíminn er ekki ótakmarkaður og við
viljum frekar gera aðeins minna og
gera það þá vel,“ segir Bibbi. – khg
Stofnuðu nýja
hlaðvarpsstöð
Bræðurnir húsvísku hafa komið
víða við. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Meira á frettabladid.is
3 0 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð