Fréttablaðið - 30.05.2020, Qupperneq 18
3 0 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R18 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
siminn.is
Sumarið er þitt í góðu
sambandi við börnin
Sendu barnið út í sumarið með Nokia 3310, frábæran
fyrsta síma fyrir krakka. Með völdum farsímaleiðum
færðu Krakkakort á 0 kr. með endalausu tali og 1 GB.
Símar fyrir börnin og fleiri sumarlegar vörur
fást í verslunum Símans og á siminn.is
9.990 kr.
Nokia 3310 3G
Einfaldur takkasími sem þarf
sjaldan að hlaða, þolir hnjask
og smellpassar í litla lófa.
FÓTBOLTI Í dagatölum landsmanna
er 17. júní merktur rauður dagur.
Eðlilega, því þá verður enski boltinn
flautaður af stað að nýju. BBC segir
að stjórnvöld hafi gefið grænt ljós.
Opnunarleikirnir verða Manchester
City gegn Arsenal og Aston Villa
gegn Sheffield United, sem þurfti
að færa vegna deildarbikarsins.
Alls á eftir að spila 92 leiki og þó
stuðningsmönnum verði haldið
frá völlunum, mun enski boltinn
snúa aftur á BBC. Ríkissjónvarpið
hefur ekki sýnt enska boltann síðan
enska úrvalsdeildin var sett á lagg-
irnar 1992. Fjórir leikir hið minnsta
verða í beinni útsendingu þar á
bæ. Sky sýnir 64, þar af 25 í opinni
dagskrá. BT mun sýna 20 leiki og
eftir á að ákveða með fjóra leiki.
Hér á fróni eru Símamenn að gera sig
klára og fór ritstjórn enska boltans
í hádegisverð í gær á Jómfrúnni, þar
sem farið var yfir komandi sumar.
Eina sem þarf að flauta af eru sumar-
frí og önnur ferðaplön, enda verður
hvergi slegið af þegar loksins verður
blásið í flautuna. Tómas Þór Þórðar-
son, ritstjóri enska boltans, segir að
það séu frábær tíðindi að enski bolt-
inn sé að fara aftur af stað. „Þegar
stórleikur City og Arsenal verður
flautaður á, verða nákvæmlega 100
dagar síðan enski var f lautaður í
stopp fyrir COVID. Þetta hafa verið
100 langir dagar, en nú fær þjóðin 92
leiki á einhverjum sex vikum. Þetta
verður bara eins og stórmót, nema
í enska boltanum og ekki er það
verra,“ segir hann.
Tómas segir að stefnan sé að sýna
alla leikina beint og landinn hafi
verið duglegur að ná sér í ferðalykla
til að sjá veisluna sem fram undan
er, hvar sem hann verður á landinu.
„Við munum sinna þessu eins vel
og við höfum verið að gera, á sama
tíma og við undirbúum okkur svo
fyrir uppfærslu fyrir næsta tímabil.
Sem betur fer hefur landinn verið
að undirbúa sig með ferðamynd-
lyklum og beinum í sumarbústað-
ina og fellihýsin, þannig að það eru
allir klárir í 92 leiki í enska, sama
Hæ, hó, jibbí!
Enska úrvalsdeildin heiðrar Íslendinga með því að
blása deildina aftur af stað á þjóðhátíðardaginn,
17. júní. Þó það sé reyndar fyrir tilviljun, verða
fleiri en Íslendingar í hátíðarskapi þann daginn.
Bobby Firmino og félagar hans í Liverpool eiga enska titilinn vísan, takist að fara af stað og klára þá leiki sem eftir
eru í enska boltanum. Lögreglan hefur þó áhyggjur af stuðningsmönnum liðanna. MYND/GETTY