Fréttablaðið - 30.05.2020, Side 19
Þetta hafa verið 100
langir dagar en nú
fær þjóðin 92 leiki á ein-
hverjum sex vikum. Þetta
verður bara eins og stórmót
nema í enska boltanum.
Tómas Þór Þórðarson
Lið Stig
Liverpool 82
81
80
79
78
77
76
75
74
73
72
71
70
69
68
67
66
65
64
63
62
61
60
59
58
Manchester City 57
56
55
54
Leicester City 53
52
51
50
49
Chelsea 48
47
46
Manchester United 45
44
Wolverhampton Wanderers 43
Sheffield United
42
Tottenham Hotspur 41
Arsenal 40
Burnley 39
Crystal Palace
38
Everton 37
S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 19L A U G A R D A G U R 3 0 . M A Í 2 0 2 0
siminn.is
Sumarið er þitt í góðu
sambandi við börnin
Sendu barnið út í sumarið með Nokia 3310, frábæran
fyrsta síma fyrir krakka. Með völdum farsímaleiðum
færðu Krakkakort á 0 kr. með endalausu tali og 1 GB.
Símar fyrir börnin og fleiri sumarlegar vörur
fást í verslunum Símans og á siminn.is
9.990 kr.
Nokia 3310 3G
Einfaldur takkasími sem þarf
sjaldan að hlaða, þolir hnjask
og smellpassar í litla lófa.
Tómas Þór Þórðarson, ritstjóri enska boltans. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
hvar þeir verða staddir á landinu í
sumar,“ segir hann.
„Dagurinn 17. júní markar endur-
komu enska boltans. Við getum
þó ekki staðfest að við byrjum þá,
nema öllum öryggiskröfum verði
fylgt og græna ljósið kvikni,“ sagði
Richard Masters, framkvæmda-
stjóri úrvalsdeildarinnar við tíma-
ritið FourFourTwo. „Því miður
munu leikirnir fara fram án áhorf-
enda en við höfum, að okkar mati,
fundið góða lausn svo allir geti séð
leiki með sínu liði,“ bætti hann við.
Samkvæmt breskum fjölmiðlum
hefur verið rætt um nýja leiktíma.
Mánudags- og föstudagsleikirnir
munu þá byrja klukkan 20, þriðju-
dags- og miðvikudagsleikirnir
klukkan 18 og 20, en á laugardögum
verður spilað klukkan 12.30, 15,
17.30 og 20. Sunnudagsleikir byrja
klukkan 12 og svo verður haldið
áfram kl 14, 16.30 og síðasti leikur-
inn fer fram klukkan 19.
Sjónvarpsstöðvarnar hafa rætt
sín á milli, samkvæmt enskum fjöl-
miðlum, um að koma myndavél inn
í búningsklefann, fá viðtöl við þjálf-
ara í hálfleik, setja söngva og annað
yfir, svo það sé stemning heima í
stofu og ýmislegt fleira.
Oliver Dowden, menningar-
mála- og íþróttamálaráðherra Breta,
fagnaði á Twitter að fótboltinn væri
að byrja aftur og vonaðist eftir að
f lestir leikir yrðu sýndir í opinni
dagskrá. Hann bætti við að vinna
stæði enn yfir við að fá græna ljósið
frá ríkisstjórninni til að hefja leik.
Manchester City Liverpool
Manchester City Newcastle
Manchester United Sheffield United
Newcastle Liverpool
Everton Liverpool
✿ Leikir sem lögreglan
vill á hlutlausa velli
✿ Stigamunur í enska
Liverpool þarf aðeins sex stig til
að verða Englandsmeistari í fyrsta
sinn í 30 ár. Lögreglan í Liverpool
hefur áhyggjur af að ef liðið tryggir
sér titilinn á Anfield verði mann-
fögnuðurinn gríðarlegur og enginn
muni hlýða Víði eða tveggja metra
reglunni. Vefmiðillinn Goal.com
greindi frá því að lögreglan á Bret-
landseyjum hefði beðið um að
leikir Liverpool gegn Manchester
City, Newcastle og Everton, verði
spilaðir á hlutlausum velli. Aðrir
leikir sem er til skoðunar að spila
á hlutlausum velli, eru Manchester
City gegn Newcastle og Manchester
United gegn Sheffield United.
Í yfirlýsingu sem Mark Roberts,
lögreglustjóri, sendi frá sér, sagði
hann að vinna væri í gangi með
deildinni og jákvæð teikn væru á
lofti um að deildin færi af stað á
þjóðhátíðardaginn. Það þurfi þó að
tryggja heilsu almennings. Roberts
þessi er ígildi Víðis hér á landi þegar
kemur að fótbolta. „Enska deildin
hefur verið skilningsrík þegar kemur
að sveigjanleika við að breyta leik-
stöðum þar sem það hefur átt við.
Áætlanir munu sífellt vera til endur-
skoðunar til að tryggja heilsu aðdá-
enda, því við viljum ekki að þeir
komi og safnist saman fyrir utan
leikvanga.“ Samkvæmt nokkrum
fjölmiðlum hefur verið nefnt að hafa
Wembley sem hlutlausa völlinn, því
þar sé gæsla auðveld.
benediktboas@frettabladid.is