Fréttablaðið - 30.05.2020, Qupperneq 24
Valgerður skynjaði undirtón gegn þeirri starfsemi sem hún og hennar fólk byggði upp. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Nú er rétti tíminn til að njóta Íslands
og alls þess sem lífið hefur upp á að bjóða.
Hvort sem þú vilt vera sóló, í hópi eða í rómans geturðu fundið þína
flugleið til Egilsstaða þar sem Vök Baths, Icelandair hótel Hérað og
fleiri eðalviðkomustaðir taka þér og þínum fagnandi.
Flug og bíll eða flug og gisting eru á sérkjörum í allt sumar þannig
að núna er rétti tíminn til að kynnast Egilsstöðum upp á nýtt.
+ Bókaðu á airicelandconnect.is
+ Heiður Vigfúsdóttir
Vök Baths, við Egilsstaði
Flug og gisting frá
í eina nótt á mann
29.900 kr.
Flug og bíll frá
í einn sólarhring á mann
28.900 kr.
+ Egilsstaðir
hluti af heilbrigðisþjónustunni. Góð
þverfagleg samvinna og samtal milli
kerfa er nauðsynlegt til að sinna
fólki með fíknsjúkdóm sem best
á öllum stigum í okkar velferðar-
kerfi; heilsugæslu, sjúkrahúsum,
félagsþjónustu, sérfræðistofum, og
svo framvegis. Þessa samvinnu vil
ég sjá dafna enn frekar.“
Uppsagnirnar átylla
Um 70–80 prósent af starfsemi SÁÁ
eru fjármögnuð með samningum
við ríkið en samtökin standa straum
af afganginum. Vegna COVID-19 var
fyrirséð að 120 milljóna tekjufall
yrði á sjálfsaflafé samtakanna, sem
þýðir samdráttur á starfseminni og
að hægt verði að taka við 15 prósent
færri einstaklingum það sem eftir
lifir árs en í vanalegu árferði.
„Það er afleitt að þurfa að draga úr
þjónustu, en nauðsynlegt þar sem
samtökin þurftu að draga úr með-
gjöf með sjúkrarekstrinum úr 250
milljónum í 125 milljónir króna árið
2020 vegna COVID-19 áhrifanna,“
segir Valgerður og heldur áfram:
„Best færi á því að yfirvöld greiddu
að fullu fyrir þá heilbrigðisþjónustu
sem SÁÁ veitir, svo hún sé ekki háð
sjálfsaflafé og aflögufé félagasam-
takanna. Brýn þörf fyrir þjónustu
hefur leitt til þess að SÁÁ hefur bætt
á sig verkefnum í gegnum árin sem
ríkið greiðir ekki fyrir.“
Í mars síðastliðnum ákvað fram-
kvæmdastjórn félagasamtakanna
SÁÁ að segja upp nærri öllum sál-
fræðingum spítalans og elstu starfs-
mönnum. Í kjölfarið sagði Valgerður
upp og einnig þrír úr framkvæmda-
stjórninni. Tæpum mánuði síðar
dró hún uppsögnina til baka og
skömmu síðar voru uppsagnir
starfsfólksins dregnar til baka.
Mikið var fjallað um ágreininginn
milli stjórnarinnar og meðferðar-
sviðsins í fjölmiðlum.
Hjá SÁÁ starfa um 100 manns
úr ýmsum heilbrigðisstéttum og
á skrifstofu. Valgerður segir þetta
mjög góðan og samrýndan hóp
fagfólks sem unnið hafi saman að
því að þróa meðferðarúrræðin hjá
spítalanum, eftirmeðferðarstöð og
göngudeildum. Mun minni starfs-
mannavelta sé nú en áður og þörf sé
á að bæta við fagstéttum, svo sem
félagsráðgjöfum, og efla samráð og
samskipti við aðrar stofnanir.
„Þarna var tekin ákvörðun án
samráðs við mig um uppsagnir fólks
á meðferðarsviði án þess að athuga
hvaða áhrif það hefði á starfsemina.
Og það var hrapallega röng ákvörð-
3 0 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð