Fréttablaðið - 30.05.2020, Side 33
DEILDARSTJÓRI
UPPLÝSINGATÆKNIDEILDAR
Lyfjastofnun er ríkisstofnun sem
heyrir undir heilbrigðisráðherra.
Helstu hlutverk hennar eru að
gefa út markaðsleyfi fyrir lyf á
Íslandi í samvinnu við lyfjayfirvöld
á Evrópska efnahagssvæðinu, hafa
eftirlit með lyfjafyrirtækjum og
heilbrigðisstofnunum á Íslandi,
meta gæði og öryggi lyfja og
tryggja faglega upplýsingagjöf
um lyf til heilbrigðisstarfsfólks og
neytenda. Hjá Lyfjastofnun vinna
um 60 starfsmenn. Lyfjastofnun
leggur áherslu á gott vinnuumhverfi,
starfsþróun og framfylgir stefnu um
samræmingu fjölskyldulífs og vinnu.
Gildi Lyfjastofnunar eru
gæði – traust – þjónusta.
Sjá nánari upplýsingar um Lyfja
stofnun á vef stofnunarinnar
www.lyfjastofnun.is
Helstu verkefni:
Vegna aukinna verkefna óskar Lyfjastofnun eftir að ráða öflugan einstakling til að veita forstöðu deild sem sér um rekstur og uppbyggingu
tölvukerfa stofnunarinnar. Leitað er að sveigjanlegum og jákvæðum leiðtoga sem er reiðubúinn að vinna fjölbreytt og krefjandi starf.
Starfshlutfall er 100%.
Menntunar og hæfniskröfur:
Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað. Umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf.
Sótt er um starfið á www.alfred.is. Umsóknarfrestur er til og með 15. júní 2020. Nánari upplýsingar um starfið veitir ragnheidur.sigridur.dagsdottir@gmail.com.
• Dagleg stjórnun upplýsingatæknideildar.
• Stefnumótun og áætlanagerð upplýsingatæknimála.
• Verk og kostnaðareftirlit, samningagerð og samskipti vegna
aðkeyptrar þjónustu.
• Verkefnastjórnun hugbúnaðarverkefna, þarfagreining og hönnun
sérhæfðra upplýsingakerfa.
• Ábyrgð og umsjón með innleiðingu sameiginlegra upplýsingakerfa
stofnunarinnar.
• Ábyrgð og umsjón með innkaupum á tölvubúnaði.
• Ábyrgð og umsjón með fræðslu og þjálfun notenda upplýsingakerfa.
• Erlend samskipti við systurstofnanir.
• Háskólapróf á sviði tölvunar eða verkfræði skilyrði,
framhaldsmenntun mikill kostur.
• Reynsla af rekstri, stjórnun og samningagerð í upplýsingatækni.
• Þekking á öryggismálum skilyrði.
• Reynsla af verkefnastjórnun í hugbúnaðargerð kostur.
• Þekking á Microsoft Dynamics 365 mikill kostur.
• Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í
ræðu og riti.
• Leiðtogahæfni, frumkvæði og faglegur metnaður.
• Mjög góð teymisvitund og lipurð í mannlegum samskiptum.
• Nákvæmni, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
Hlutverk Póst- og fjarskiptastofnunar er að tryggja hagkvæm, örugg og aðgengileg fjarskipti
og póstþjónustu og efla virka samkeppni á markaði. Meginþungi starfseminnar eru fjarskipti
og tengd mál. Hjá PFS starfa 29 starfsmenn, aðallega sérfræðingar við úrlausn tæknilegra, við-
skiptalegra og lagalegra verkefna er tengjast hlutverki stofnunarinnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Þátttaka í uppbyggingu á samhæfingarhlutverki PFS og samvinna við önnur
eftirlitsstjórnvöld
• Uppbygging á aðferðarfræði eftirlits og gerð almennra tilmæla
• Framkvæmd úttekta og prófana á grundvelli fjarskiptalaga og NIS-laga
• Rannsókn á alvarlegum atvikum sem verða í net- og upplýsingakerfum eftirlitsskyldra aðila
Hæfnikröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði verk-, tækni- eða tölvunarfræði
eða sambærilegu
• Reynsla af gæða- og öryggismálum net- og upplýsingakerfa, þ.m.t. framkvæmd prófana og/
eða úttekta m.a. á grundvelli staðla, er kostur
• Þekking á stafrænum innviðum og stafrænni þjónustustarfsemi er kostur
• Umsækjendur þurfa að eiga auðvelt með að starfa sjálfstætt sem og í hópi og jafnframt búa
yfir þeim sveigjanleika og festu sem nauðsynleg er til að ná árangri í starfi
• Umsækjendur þurfa að geta unnið undir álagi og hafa tamið sér skipulag í vinnubrögðum
• Góð íslensku og enskukunnátta, bæði töluð og í rituðu máli, er áskilin
Sérfræðingur við samhæfingu og eftirlit
á öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða
Póst- og fjarskiptastofnun óskar eftir að ráða í stöðu sérfræðings við samhæfingu og eftirlit á öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða.
Póst- og fjarskiptastofnun hefur eftirlit með net- og upplýsingaöryggi fjarskiptafyrirtækja, stafrænna grunnvirkja og veitenda stafrænnar þjónustu í samræmi við fjarskiptalög og ný
lög um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða (NIS-laga). Þá gegnir stofnunin ráðgefandi samhæfingarhlutverki gagnvart eftirlitsstjórnvöldum í því skyni að stuðla að
samræmdri framkvæmd eftirlits.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Krafist er sakavottorðs. Umsækjandi þarf að gangast undir og standast bakgrunnsskoðun og öryggisvottun Ríkislögreglustjóra.
Umsóknarfrestur er til og með 4. júní nk. Umsóknir óskast fylltar út á Starfatorgi.
Póst- og fjarskiptastofnun lítur svo á að umsókn gildi í 6 mánuði frá dagsetningu hennar, nema umsækjandi ákveði umsókninni skemmri gildistíma.
PFS hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um störf hjá stofnuninni.
Nánari upplýsingar veitir Björn Geirsson - bjorn@pfs.is
Erum við
að leita að þér?