Fréttablaðið - 30.05.2020, Page 33

Fréttablaðið - 30.05.2020, Page 33
DEILDARSTJÓRI UPPLÝSINGATÆKNIDEILDAR Lyfjastofnun er ríkisstofnun sem heyrir undir heilbrigðisráðherra. Helstu hlutverk hennar eru að gefa út markaðsleyfi fyrir lyf á Íslandi í samvinnu við lyfjayfirvöld á Evrópska efnahagssvæðinu, hafa eftirlit með lyfjafyrirtækjum og heilbrigðisstofnunum á Íslandi, meta gæði og öryggi lyfja og tryggja faglega upplýsingagjöf um lyf til heilbrigðisstarfsfólks og neytenda. Hjá Lyfjastofnun vinna um 60 starfsmenn. Lyfjastofnun leggur áherslu á gott vinnuumhverfi, starfsþróun og framfylgir stefnu um samræmingu fjölskyldulífs og vinnu. Gildi Lyfjastofnunar eru gæði – traust – þjónusta. Sjá nánari upplýsingar um Lyfja­ stofnun á vef stofnunarinnar www.lyfjastofnun.is Helstu verkefni: Vegna aukinna verkefna óskar Lyfjastofnun eftir að ráða öflugan einstakling til að veita forstöðu deild sem sér um rekstur og uppbyggingu tölvukerfa stofnunarinnar. Leitað er að sveigjanlegum og jákvæðum leiðtoga sem er reiðubúinn að vinna fjölbreytt og krefjandi starf. Starfshlutfall er 100%. Menntunar­ og hæfniskröfur: Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað. Umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf. Sótt er um starfið á www.alfred.is. Umsóknarfrestur er til og með 15. júní 2020. Nánari upplýsingar um starfið veitir ragnheidur.sigridur.dagsdottir@gmail.com. • Dagleg stjórnun upplýsingatæknideildar. • Stefnumótun og áætlanagerð upplýsingatæknimála. • Verk­ og kostnaðareftirlit, samningagerð og samskipti vegna aðkeyptrar þjónustu. • Verkefnastjórnun hugbúnaðarverkefna, þarfagreining og hönnun sérhæfðra upplýsingakerfa. • Ábyrgð og umsjón með innleiðingu sameiginlegra upplýsingakerfa stofnunarinnar. • Ábyrgð og umsjón með innkaupum á tölvubúnaði. • Ábyrgð og umsjón með fræðslu og þjálfun notenda upplýsingakerfa. • Erlend samskipti við systurstofnanir. • Háskólapróf á sviði tölvunar­ eða verkfræði skilyrði, framhaldsmenntun mikill kostur. • Reynsla af rekstri, stjórnun og samningagerð í upplýsingatækni. • Þekking á öryggismálum skilyrði. • Reynsla af verkefnastjórnun í hugbúnaðargerð kostur. • Þekking á Microsoft Dynamics 365 mikill kostur. • Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti. • Leiðtogahæfni, frumkvæði og faglegur metnaður. • Mjög góð teymisvitund og lipurð í mannlegum samskiptum. • Nákvæmni, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð. Hlutverk Póst- og fjarskiptastofnunar er að tryggja hagkvæm, örugg og aðgengileg fjarskipti og póstþjónustu og efla virka samkeppni á markaði. Meginþungi starfseminnar eru fjarskipti og tengd mál. Hjá PFS starfa 29 starfsmenn, aðallega sérfræðingar við úrlausn tæknilegra, við- skiptalegra og lagalegra verkefna er tengjast hlutverki stofnunarinnar. Helstu verkefni og ábyrgð • Þátttaka í uppbyggingu á samhæfingarhlutverki PFS og samvinna við önnur eftirlitsstjórnvöld • Uppbygging á aðferðarfræði eftirlits og gerð almennra tilmæla • Framkvæmd úttekta og prófana á grundvelli fjarskiptalaga og NIS-laga • Rannsókn á alvarlegum atvikum sem verða í net- og upplýsingakerfum eftirlitsskyldra aðila Hæfnikröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði verk-, tækni- eða tölvunarfræði eða sambærilegu • Reynsla af gæða- og öryggismálum net- og upplýsingakerfa, þ.m.t. framkvæmd prófana og/ eða úttekta m.a. á grundvelli staðla, er kostur • Þekking á stafrænum innviðum og stafrænni þjónustustarfsemi er kostur • Umsækjendur þurfa að eiga auðvelt með að starfa sjálfstætt sem og í hópi og jafnframt búa yfir þeim sveigjanleika og festu sem nauðsynleg er til að ná árangri í starfi • Umsækjendur þurfa að geta unnið undir álagi og hafa tamið sér skipulag í vinnubrögðum • Góð íslensku og enskukunnátta, bæði töluð og í rituðu máli, er áskilin Sérfræðingur við samhæfingu og eftirlit á öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða Póst- og fjarskiptastofnun óskar eftir að ráða í stöðu sérfræðings við samhæfingu og eftirlit á öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða. Póst- og fjarskiptastofnun hefur eftirlit með net- og upplýsingaöryggi fjarskiptafyrirtækja, stafrænna grunnvirkja og veitenda stafrænnar þjónustu í samræmi við fjarskiptalög og ný lög um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða (NIS-laga). Þá gegnir stofnunin ráðgefandi samhæfingarhlutverki gagnvart eftirlitsstjórnvöldum í því skyni að stuðla að samræmdri framkvæmd eftirlits. Frekari upplýsingar um starfið Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Krafist er sakavottorðs. Umsækjandi þarf að gangast undir og standast bakgrunnsskoðun og öryggisvottun Ríkislögreglustjóra. Umsóknarfrestur er til og með 4. júní nk. Umsóknir óskast fylltar út á Starfatorgi. Póst- og fjarskiptastofnun lítur svo á að umsókn gildi í 6 mánuði frá dagsetningu hennar, nema umsækjandi ákveði umsókninni skemmri gildistíma. PFS hvetur konur jafnt sem karla til að sækja um störf hjá stofnuninni. Nánari upplýsingar veitir Björn Geirsson - bjorn@pfs.is Erum við að leita að þér?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.