Fréttablaðið - 30.05.2020, Side 64
GAMLAR KENNINGAR
UM KALORÍUR INN OG
KALORÍUR ÚT ERU AÐ-
EINS AÐ FÆRAST AFTAR,
UMRÆÐAN HEFUR VERIÐ
UM GÓÐAR KALORÍUR
OG SLÆMAR.
Mjólkurvörur, glúten, egg, ger og
litarefni eru algengir óþolsvakar.
Ein algengasta dánarorsök á Vesturlöndum eru hjarta- og æðasjúkdómar og vitum við
mjög mikið um það hvernig þeir
þróast og hvaða áhættuþættir
liggja til grundvallar. Greining og
meðferð hefur stórbatnað á síðustu
áratugum og sýna gögn að okkur
hefur orðið talsvert ágengt í nálgun
á þennan sjúkdóm hérlendis en
betur má ef duga skal.
Í stuttu máli eru hjarta- og æða-
sjúkdómar þrengingar og f læði-
röskun í slagæðakerfi líkama okkar,
þannig kemst ekki nægjanlegt
magn blóðs, súrefnis og næringar-
efna á sinn stað. Kerfið er byggt upp
með þeim hætti að það er tengt við
hjartað sem sér um að halda þrýst-
ingi og tryggja eðlilega starfsemi í
hinum ýmsu líkamspörtum.
Þessir sjúkdómar þróast á mörg-
um árum og áratugum og er summa
áhættuþáttanna það sem gildir í
því, auk erfðaþátta hvers og eins. Ef
þú átt nákominn ættingja sem hefur
fengið hjartaáfall, heilaáfall eða
glímt við slíka sjúkdóma, þá ertu
líklegri til að þróa með þér hjarta-
og æðasjúkdóm en aðrir.
Lúmskir áhættuþættir
Reykingar eru auðvitað sá áhættu-
þáttur sem hefur verið hvað mest
áberandi í þróun hjarta- og æða-
sjúkdóma. Í dag er vitað að það er
engum hollt og ættu allir að hætta,
eða fá náungann sem þeir þekkja og
reykir til að hætta þeim óþverra.
Aðrir áhættuþættir eru hár blóð-
þrýstingur og er nauðsynlegt að
mæla hann reglulega þar sem fólk
getur gengið um með háan blóð-
þrýsting árum saman án þess að
vera meðvitað um það.
Háar blóðfitur og mismunandi
samsetning þeirra er einnig skil-
greindur áhættuþáttur og er eina
leiðin til að átta sig á því að fá blóð-
rannsókn. Of hátt kólesteról er talið
ýta undir kölkun æða og skapa
þrengingar.
Aldurinn er mikilvægur þar
sem þessir sjúkdómar taka tíma í
þróun og því má segja að eftir því
sem hann færist yfir aukist líkur
á að vandi skapist í æðakerfinu.
Ofþyngd og offita auk hreyfingar-
leysis auka áhættu verulega og
er þar frekar f lókið samspil efna-
skipta og bólguþátta á ferðinni, ef
viðkomandi þjáist af sykursýki þá
aukast líkurnar. Kæfisvefn hefur
verið nefndur til sögunnar og svo
má ekki gleyma mataræðinu sem
hefur vissulega mikla þýðingu.
Nauðsynlegt er að reyna eftir
fremsta megni að draga úr fjölda
áhættuþátta, hreyfa sig reglulega,
borða holla og fjölbreytta fæðu,
draga úr streitu og álagi og einnig
tækla áhættuþættina sérstaklega
með því að halda þeim í skefjum
eða losa sig alfarið við þá, líkt og til
dæmis reykingar. Aldrinum fáum
við ekki breytt en markmiðið er að
vera hraust á efri árum og helst laus
við hjarta- og æðasjúkdóma.Mikilvægt er að draga úr helstu áhættuþáttum hjarta- og æðasjúkdóma.
Það er varla ofsögum sagt að undanfarin ár hefur verið mikil umræða um tengsl mataræðis við þróun sjúkdóma, bólgu-þætti í líkamanum og
áhrif á heilsu. Í dag er mun meiri
þekking en áður á samspili þess-
ara þátta þó enn sé býsna mörgum
spurningum ósvarað og við eigum
enn langt í land með að finna hina
einu réttu lausn. Með aukinni þekk-
ingu og þeirri vitneskju að ekki eru
allar manneskjur eins, er ljóst að
einstaklingsbundin nálgun varð-
andi mataræði einstaklinga verður
framtíðin.
Hver kannast ekki við að þessi
eða hinn kúrinn eigi að leysa allan
vanda, oftast er verið að horfa til
þess að grennast og styrkjast svo
samhliða æfingum. Mikil áhersla
er á útlit í kynningarefni og oftar
en ekki er verið að tengja það við
hamingju og líðan einstaklinga
sem vissulega skiptir verulegu
máli. Svarið við nær öllum þessum
kúrum er að enginn þeirra virkar
fyrir alla, það að halda því fram
að ein nálgun geti leyst fjölþættan
vanda er auðvitað fáránleg, en að
sama skapi heillandi og góð sölu-
vara. Nægir að nefna nöfn á kúrum
eins og Skinny Bitch, Fat Smash,
French Women don´t get fat diet,
Ten years thinner og svo auðvitað
Picture Perfect Diet þar sem nafnið
segir allt sem segja þarf.
Örvandi og ávanabindandi efni
Í gegnum tíðina hafa komið fram
ýmis ráð fyrir þá sem glíma við
of þyngd og/eða efnaskiptavanda
samhliða. Í auglýsingum fyrri tíma
var verið að selja fólki að hlusta
á ákveðna hljómplötu sem gæti
grennt viðkomandi, notkun ýmiss
konar örvandi efna hefur verið
áberandi og ýmis ávanabindandi
efni verið notuð þar. Koffín og nik-
ótín hefur verið áberandi auk svo-
kallaðra brennsluefna. Amfetamín
var á sínum tíma notað í slíkum til-
gangi og var meira að segja skrifað
út sem hressingarlyf, en í dag er
afleiðan fyrst og fremst notuð við
ofvirkniröskunum og athyglis-
bresti. Aukaverkanir þeirra lyfja
eru vel þekktar, svo sem lystarleysi
og meltingartruflanir sem hafa eðli-
lega áhrif á heildarmagn inntöku
orkuefna.
Sprengjusvæði
Gamlar kenningar um kaloríur inn
og kaloríur út eru aðeins að færast
aftar, umræðan hefur verið um
góðar kaloríur og slæmar. Þar erum
við í raun komin á sprengjusvæði
þar sem mikið er rifist um einmitt
uppistöðu orkuefna, sem eru pró-
tein, fita og kolvetni, og þá í hvaða
magni skuli innbyrða þau. Margir
verða mjög uppteknir af þeirri iðju
og vigta ofan í sig sem getur vissu-
lega skilað árangri til skemmri tíma,
en hver nennir að standa í því ævi-
langt? Það skapast samt mikil með-
vitund þegar einstaklingar fara að
huga að mataræði sínu og breyta
vana sínum til betri vegar, sem er
líklega einn meginkosturinn og
afleiðingin af því að hugsa um mat-
aræði sitt.
Það má því segja að nálgun á
mataræði með áherslu á orðið ÆÐI
er býsna algeng, við höfum á undan-
förnum árum horft á lágkolvetna-
fæðu eða ketó mataræði ryðja sér til
rúms. Steinaldarfæði hefur einnig
verið vinsælt sem og grænmetisfæði
og vegan nálgun. Svo eru aðrar nálg-
anir sem eru að hluta íhaldssamari
líkt og Miðjarðarhafsmataræði
sem byggja að mestu á fjölbreyttri
fæðu, kjöti, fiski, grænmeti, ávöxt-
um, hnetum, ólífuolíu og fersk-
leika. Heilmikið er til af vísindum
varðandi mataræði, kosti þess og
galla. Niðurstaða samanburðar-
rannsókna er nokkuð einróma, að
enginn kúr hafi algera yfirburði yfir
aðra og að það þurfi að horfa til ein-
staklinganna sjálfra með ráðgjöf.
Fjölbreytt, ferskt og litaglatt hráefni
í hæfilegum skammtastærðum með
áherslu á að elda sjálfur og vita hvað
hefur verið sett í matinn og gefa sér
tíma til að borða í samneyti við aðra
er líklega einfalt og gott ráð sem
hentar öllum. Ekki láta glepjast af
sölumennsku.
MatarÆÐI
Við þurfum að nærast og helst sem best og
réttast, en það getur vafist ansi mikið fyrir
okkur, bæði fagfólki og leikmönnum.
Fjölbreytt, ferskt og litaglatt hráefni í hæfilegum skammtastærðum með áherslu á að elda sjálfur er einfalt og gott ráð sem hentar öllum. MYND/GETTY
Það eru ansi margir sem glíma við einhvers konar meltingar-truf lanir og óþægindi sem
geta verið af ýmsum toga og tengj-
ast fæðuinntöku.
Eitt af því sem þarf að huga að
er fæðuóþol og ofnæmi sem getur
verið flókið að greina. Áætlað er að
algengi fæðuóþols á heimsvísu geti
verið allt að 20 prósent. Einkenni frá
meltingarvegi eins og uppþemba
eða niðurgangur, kviðverkir, höfuð-
verkur, ógleði, þreyta, slappleiki
og útbrot eru meðal þess sem við
sjáum, og stundum einkenni önd-
unarfæra og slímhúðar.
Algengasta óþol er við mjólkur-
vörum, glúteni, koffíni, eggjum,
geri, litarefnum og mörgu öðru.
Yfirleitt þarf að halda matardag-
bók og fara útilokunarleið að hluta
þegar unnið er með slík mál. Þá eru
gerð próf og mælingar sem einnig
geta greint vandann, sérstaklega ef
um ofnæmi er að ræða eða greina
þarf þarna á milli. Munurinn þarf
ekki að vera ýkja mikill varðandi
einkenni, en orsökin er mjög ólík og
við ofnæmi snýst þetta um ræsingu
ónæmiskerfisins og getur meðferð
verið bæði að forðast ofnæmisvald-
inn en einnig með lyfjum sem hafa
takmarkað gildi í óþoli.
Fæðuóþol
eða ofnæmi
Teitur
Guðmundsson
læknir
Hjarta- og æðasjúkdómar
Eðlileg beinþéttni T-gildi > -1,0
Beingisnun T-gildi -1,0 til -2,5
Beinþynning T-gildi < -2,5
Beinþéttni
3 0 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R28 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð