Fréttablaðið - 30.05.2020, Side 66

Fréttablaðið - 30.05.2020, Side 66
Dóra Júlía Agnarsdótt-ir, betur þekkt sem DJ Dóra Júlía hefur getið sér gott orð sem einn vinsælasti plötusnúður lands- ins. Hún hefur haft í nógu að snú- ast síðastliðin þrjú ár en lifibrauð hennar er að koma fram og spila. Líf plötusnúðsins tók því miklum breytingum þegar samkomu bann var sett á í mars. „Þetta eru búnir að vera skrítnir tímar. Ég fór frá því að vera upp- bókuð í mars við að gigga á hverjum degi, yfir í að hafa allan tímann í heiminum. En stundum gerast hlutir sem eru miklu stærri en við sjálf.“ Dóra hafði tekið sér frí í apríl enda stefndi hún á jógakennaranám á Balí í lok mars. „Ég hélt lengi í vonina um að ég myndi fara út en það kom fljótt í ljós að ég kæmist ekki. Ég hlakkaði mjög til að fara og gera þetta fyrir sjálfa mig. Ég hef stundað jóga í rúm tíu ár og hefur lengi langað til að læra til jógakennara. Ég þurfti líka bara á hvíldinni að halda.“ Dóra var auk þess bókuð út sum- arið og átti að spila í Króatíu og á Grikklandi í útskriftarferð. Hún segir að þrátt fyrir að öll plön hafi fokið út um gluggann þá sé hún afar þakklát fyrir að búa á Íslandi á tímum sem þessum. „Ég er ótrúlega þakklát fyrir að búa á Íslandi og það er búið að vera magnað að fylgjast með hvernig við höfum tæklað þennan faraldur í sameiningu. Í fyrstu var ég hálf eirðarlaus en svo bara vandist þetta og veruleikinn varð annar.“ Náði að núllstilla sig Ég er með útvarpsþátt á K100 einu sinni í viku sem ég tók upp hér heima og svo skrifaði ég tvo jákvæða pistla á dag sem fengu nafnið Ljósi punkturinn. Það var gott haldreipi í gegnum þennan tíma. Ég fór út að hlaupa, hugleiddi, drakk te og skrifaði jákvæðar fréttir á daginn.“ Dóra segir þennan tíma hafa verið sér mikilvægur. Hún eigi það til að keyra sig út en náði að núll- stilla sig. „Það er átakanlegt að horfa upp á það sem er að gerast í heiminum en á sama tíma er mikilvægt að passa upp á andlega heilsu. Mér þykir vænt um að hafa fengið tíma fyrir mig til að fara aðeins inn á við. Ég var búin að vera smá kvíðin í vetur og þurfti að hlaða batteríin. Ég áttaði mig á því að það þarf ekki alltaf að enda daginn gjörsam- lega útkeyrður.“ Hún er spennt fyrir komandi tímum og segir það ánægjulegt að sjá samfélagið fara í gang aftur. „Núna er allt að vakna til lífsins og það er mjög táknrænt að laufin eru að verða græn, daginn er að lengja, við heyrum fuglana syngja á morgnana. Ég er mikið betur í stakk búin að fara af stað í keyrsluna núna en ég var fyrir nokkrum mánuðum.“ Kemur fílefld til baka Dóra spilaði sitt fyrsta gigg í tæpa tvo mánuði síðastliðna helgi í sól- skinsveðri á veitingastaðnum Sjá- landi í Garðabæ. „Ég viðurkenni alveg að settið var farið að safna smá ryki þarna um tíma á meðan ég var að skrifa fréttir og drekka te. En það er gott að finna að ég hef engu gleymt og ég kem fíl- efld til baka,“ segir hún og brosir. Hún segir að frægðin hafi vanist f ljótt en hún gleymi því oft sjálf að fólk viti hver hún er. „Því meira sem maður er í sviðs- ljósinu, því fleiri taka eftir manni og þetta er eitt af því sem maður þarf að sætta sig við. Hver og einn fær að túlka mig eins og hann vill, ég reyni alltaf að vera einlæg en að sjálfsögðu er ekki hægt að þóknast öllum.“ Henni þykir gaman að geta vakið athygli og verið einhvers konar kraftur fyrir aðrar stelpur og konur. „Það er algjörlega ómetanlegt og vonandi hef ég uppbyggileg áhrif einhvers staðar. Ég er ótrúlega ein- læg og opin bók, það er bara partur af því hver ég er. Það sést alltaf á mér hvernig mér líður og ég forðast felu- leiki.“ Dóra Júlía er vinsæl á Instagram en hún er með rúmlega 10.600 fylgj- endur. „Instagramið mitt er mjög óút- pælt og óritskoðað. Það hefur verið eins frá því ég stofnaði það árið 2012 og ég gleymi oft hversu margir eru að fylgjast með. Ég set allt þarna inn sem ég geri dagsdaglega og mér finnst gaman að deila því með fólki. Ég spái ekkert í það í hvaða röð myndirnar mínar birtast og kann ekki á nein forrit til að breyta myndum, ég skelli kannski í smá filter eða skerpi aðeins á mynd- unum í appinu sjálfu. Ég er allavega alls ekki jafn „pro“ og margir áhrifa- valdar,“ segir Dóra og hlær. Leikstýrum ekki ástinni Dóra Júlía fór til spákonu í Los Angeles fyrir nokkrum árum sem sagði að hún yrði einhleyp þangað til hún yrði 32 ára. Örlögin hafa því eitthvað ruglast því fjórum árum fyrr fann Dóra ástina á ný rétt áður en samkomubannið skall á og er í sambandi með stelpu. „Ég hef mikið verið spurð út í sambandið okkar en í stað þess að tjá mig um það held ég að það sjáist bara á mér hvað mér líður vel. Ég hef ekki verið svona hamingjusöm lengi.“ Dóra var í langtímasambandi en því lauk fyrir rúmlega tveimur árum. „Ástin er eitt af því sem við getum lítið leikstýrt. Ástarsorg er erfið, ég var í löngu sambandi sem ég lærði mikið af, þroskaðist með því og þykir óendanlega vænt um það.“ Hún segir að það hafi verið þrosk- andi að vera ein um tíma. „Ég er glöð að ég fékk tíma með sjálfri mér, það sýndi mér hversu sterk ég er og ég sé hlutina í öðru ljósi. Ég var aldrei að leita mér að maka. Ástin er eitthvað sem gerist af sjálfu sér og það er ekki hægt að stjórna henni.“ Takmarkar ástina ekki við kyn „Ég hef aldrei gefið út að ég sé gagn- kynhneigð eða „bi“ enda þarf ekki að skilgreina allt, tilfinningar eru bara tilfinningar. Þó svo að ég hafi aldrei átt kærustu áður þá lokaði ég aldrei á möguleikann. Ég var bara með opið hjarta og það lenti hjá henni.“ Dóra segir erfitt að sjá fyrir sér hvar hún væri ef hún væri ekki plötusnúður. „Þetta gerðist allt svo hratt en núna er þetta bara minn raunveru- leiki. Það er mjög fyndið að hugsa til baka, ef fyrrverandi kærastinn minn hefði ekki beðið um að ég fengi að spila eitt gigg á Airwaves 2016 þá væri ég kannski ekki hér í dag. Annars er ég ekki mikið fyrir að hugsa hvað ef, hlutirnir gerast ef þeim er ætlað að gerast og núna er ég spennt að sjá hvað ég og framtíðin gerum saman.“ Einlæg og sem opin bók Plötusnúðurinn Dóra Júlía hlóð batteríin í samkomubanninu og segist vera klár í að takast á við verkefnin sem bíði hennar. Hún hefur vanist frægðinni og segir að ástin sé einn af þeim hlutum sem við stjórnum ekki sjálf. Dóra Júlía nýtti tímann og fór inn á við. Hún segir mikilvægt að hlúa að andlegri heilsu og er þakklát fyrir að búa á Íslandi á tímum sem þessum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK ÉG HEF ALDREI GEFIÐ ÚT AÐ ÉG SÉ GAGNKYNHEIGÐ EÐA „BI“ ENDA ÞARF EKKI AÐ SKILGREINA ALLT, TILFINNINGAR ERU BARA TILFINNINGAR. Urður Örlygsdóttir urdur@frettabladid.is 3 0 . M A Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.