Fréttablaðið - 30.05.2020, Síða 77
VIRÐING • V IRKNI • VELFERÐ
Barnavernd Reykjavíkur óskar eftir samstarfi við
fjölskyldur í Reykjavík sem geta tekið að sér að
veita börnum heimili í neyðartilvikum
til allt að þriggja mánaða
skv. 84. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.
Umsóknarfrestur er til og með 14. júní n.k.
Frekari upplýsingar veitir Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifstofustjóri í tölvupósti eða í síma 411 9200.
Umsóknum skal skilað til: Katrin.Helga.Hallgrimsdottir@reykjavik.is eða á skrifstofu Barnaverndar,
Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík
Velferðarsvið / Barnavernd
Fjölskyldur í Reykjavík
Áður en gerður er samningur við vistunaraðila þarf að afla úttektar eldvarnaeftirlits, heilbrigðisvottorða
vistunaraðila og upplýsinga úr sakaskrá allra heimilismanna sem eru eldri en 15 ára.
Gert er ráð fyrir að a.m.k. einn fjölskyldumeðlimur sinni eingöngu þessu starfi, þegar börn eru á heimil-
inu. Starfið er unnið í nánu samstarfi við starfsmenn Barnaverndar Reykjavíkur og eftir atvikum foreldra
eða aðra ættingja barnanna.
Með umsókn skulu fylgja upplýsingar um fjölskyldumeðlimi, menntun og starfsreynslu. Um er að ræða
krefjandi og gefandi starf þar sem gerð er krafa um menntun eða reynslu af starfi með börnum eða
unglingum og miklum metnaði til að veita börnum öryggi í krefjandi aðstæðum. Einnig skal fylgja lýsing
á húsnæði og af hverju fjölskyldan hefur hug á samstarfi við Barnavernd Reykjavíkur.
Nýjasta Tímarit Máls og menningar er komið út og er að þessu sinni helgað barnabók menntum. Elín Edda Páls
dóttir og Sigþrúður Gunnarsdóttir
eru ritstjórar tímaritsins, tóku við
því haustið 2018.
„Ritstjórnarstefnan er ekki mjög
ströng,“ segir Sigþrúður. „Þegar við
byrjuðum ákváðum við að gera
enga meiriháttar byltingu heldur
halda áfram sömu stefnu, sem er að
hafa breitt efnisval fyrir okkar stóra
og fjölbreytta áskrifendahóp.“
„Í tímaritinu á að vera aðgengilegt
og skemmtilegt efni um menning
armál fyrir hinn almenna lesanda,
sem hefur áhuga á listum og menn
ingu,“ bætir Elín Edda við.
Spurðar hvort það skipti máli að
ritstjórarnir eru tvær konur segir
Elín Edda: „Við höfum kynjahlutföll
alltaf í huga, tökum saman hvort
karl eða kona sé að skrifa og hvort
skrifað sé um karla eða konur. Við
viljum forðast einsleitni, bæði hvað
varðar aldur og kyn höfunda efnis.“
Heilinn fer á flug
Tímarit Máls og menningar varð 80
ára í fyrra og þær segjast vera með
tryggan hóp áskrifenda. „Það eru
ekki mikil afföll, þannig að fólk þolir
tímaritinu ýmislegt og segir ekki
upp áskrift þótt því þyki eitt hefti
leiðinlegt,“ segir Sigþrúður. „Okkur
berst mikið efni af alls kyns tagi og
núna upp á síðkastið frá kornungum
skáldum og fólki í háskólanámi. Það
er verulega skemmtilegt að á tímum
netsins skuli fólki þykja akkur í því
að fá efni eftir sig birt í prentuðu
tímariti.“
Nýjasta heftið er helgað barna
bókmenntum, en það var fyrst gert
árið 1979 þegar Silja Aðalsteinsdótt
ir, móðir Sigþrúðar, ritstýrði því. Sig
þrúður, sem var þá 8 ára, átti sögu
í því hefti. „Barnabókaáherslan
hefur fylgt tímaritinu upp frá því,“
segir Sigþrúður. „Sigrún Eldjárn á 40
ára rithöfundar afmæli á þessu ári,
þannig að við Elín Edda ákváðum
að panta stóra grein um hana og í
framhaldi af því datt okkur í hug
að kalla eftir meira efni um barna
bækur. Sem lesanda tímaritsins
í gegnum tíðina finnst mér alltaf
gaman þegar f leiri en ein grein,
eða efnisatriði í hefti, tengjast. Þá
fer heilinn á f lug og lesandinn fer
sjálfur að spinna.“
„Stundum gerist þetta líka óvilj
andi,“ segir Elín Edda. „Í einu hefti
var fyrir tilviljun mjög sterkur fókus
á ljóðið og það sem er að gerast þar
í grasrótinni. Þannig varð nánast
óvart til þemahefti.“
Allt á réttri leið
Sigþrúður hefur lengi starfað sem
barnabókaritstjóri og hún er spurð
hvort henni þyki barnabókmennt
um vera gert nægilega hátt undir
höfði. „Það má sinna þeim miklu
betur og þær eiga gjarnan á hættu
að verða út undan,“ segir hún. „Ég
er búin að vera að sýsla við barna
bækur meira og minna í næstum
20 ár og mér finnst þetta allt á réttri
leið. Það kemur bakslag öðru hvoru,
en ég held að barnabækur njóti
almennt meiri virðingar núna en
þær gerðu fyrir tveimur áratugum.“
Tímarit Máls og menningar
kemur út fjórum sinnum á ári. „Eitt
af því sem breyttist þegar við tókum
við, var að tímaritið fékk sína eigin
vefsíðu – tmm.is, og þar birtum við
bæði nýtt og gamalt efni, til dæmis
alla bókadóma úr heftum síðustu
tíu ára og leikdóma Silju Aðalsteins
dóttur. Við deilum þessu efni svo á
samfélagsmiðlum Tímaritsins. Það
er gaman að sjá viðbrögðin og tíma
ritið verður sýnilegra en það var
áður,“ segir Elín Edda.
Breitt efnisval fyrir stóran áskrifendahóp
Elín Edda Pálsdóttir og Sigþrúður Gunnarsdóttir eru ritstjórar Tímarits Máls og menningar. Nýjasta heftið
er helgað barnabókmenntum. Tímaritið hefur sína eigin vefsíðu og þar er birt bæði nýtt og gamalt efni.
Okkur berst mikið efni, segja Sigþrúður og Elín Edda. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
ÞAÐ ER VERULEGA
SKEMMTILEGT AÐ Á
TÍMUM NETSINS SKULI FÓLKI
ÞYKJA AKKUR Í ÞVÍ AÐ FÁ EFNI
EFTIR SIG BIRT Í PRENTUÐU
TÍMARITI.
Sigþrúður
ÞETTA ER STERKT OG
VANDAÐ VERK SEM
VEKUR LESANDA TIL UMHUGS-
UNAR OG HREYFIR VIÐ HONUM.
Rithöfundasamband Íslands og Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn veita verð
laun fyrir ljóðabók sem kom út á
árinu 2019.
Verðlaunin Maístjarnan voru
af hent í fjórða sinn við hátíðlega
athöfn í Þjóðarbókhlöðunni fyrr
í vikunni. Verðlaunin eru veitt
fyrir bestu ljóðabók ársins. Maí
stjörnuna hlaut að þessu sinni Jónas
Reynir Gunnarsson, fyrir bókina
Þvottadagur.
Í umsögn dómnefndar um verð
launabókina segir: „Þvottadagur
er afar innihaldsrík og margræð
ljóðabók. Einkennandi fyrir ljóðin
er kraftmikið og hrífandi mynd
mál og þótt viðfangsefni þeirra
séu gjarnan alvarleg er ísmeygilegi
húmorinn sjaldnast langt undan.
Þetta er sterkt og vandað verk sem
vekur lesanda til umhugsunar og
hreyfir við honum.“
Jónas Reynir Gunnarsson er
fæddur 1987. Hann hefur áður sent
frá sér skáldsögurnar Millilendingu
og Krossfiska, verðlaunaleikritið
Við deyjum á Mars og ljóðabæk
urnar Leiðarvísi um þorp og Stór
olíuskip, en fyrir þá síðarnefndu var
hann tilnefndur til Maístjörnunnar
og hlaut Bókmenntaverðlaun Tóm
asar Guðmundssonar, 2017. Milli
lending var tilnefnd til Menningar
verðlauna DV 2017.
Þvottadagur er síðasti kafli þrí
leiks sem hófst með Leiðarvísi um
þorp og hélt áfram í Stórum olíu
skipum. – kb
Jónas fékk Maístjörnuna
Jónas fékk verðlaunin fyrir innihaldsríka og margræða ljóðabók.
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 41L A U G A R D A G U R 3 0 . M A Í 2 0 2 0