Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2020, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2020, Síða 20
20 FÓKUS - VIÐTAL 7. febrúar 2020 n Sonur Helgu glímir við þroskaskerðingu og mikla offitun Hefur beðið eftir búsetuúrræði í fimm ár n Öll sund lokuð eftir 18 ára aldur H elga Skjoldal er móðir 22 ára manns sem hefur ver­ ið greindur með röskun á einhverfurófi, ADHD og þroskaskerðingu. Hann er einnig í mikilli ofþyngd og vegur í dag 156 kíló. Eftir að hann varð 18 ára reyndist mun erfiðara en áður að útvega honum viðeigandi þjón­ ustu og aðstoð hjá Kópavogsbæ. Hann hefur nú beðið í fimm ár eftir sérstöku búsetuúrræði. Helga kveðst verulega áhyggjufull yfir heilsu og framtíð sonar síns auk þess sem hún er langþreytt eftir meira en tveggja áratuga baráttu við kerfið. Helga hefur sjálf glímt við heilsubrest og segist hreinlega ekki vita hvað verði um son hennar ef hún fell­ ur frá eða verður skyndilega ófær um að sinna honum. Þarf stöðugt aðhald „Á sumum sviðum er hann mjög nálægt aldri í þroska, sem sagt 22 ára, en á öðrum sviðum er hann töluvert á eftir og það þarf enn að minna hann á ýmsa einfalda hluti sem tilheyra daglegu lífi, eins og að fara í sturtu, bursta tennurnar og þrífa sig. Vegna einhverfunnar finnst honum mikið betra að tala og skrifa á ensku frekar en ís­ lensku. Hann er ekki fær um að vinna á „venjulegum“ vinnustað“ eða eða sjá um sig algjörlega sjálf­ ur. Hann hefur til dæmis ekki enn getu til þess að taka bílpróf og veit ég ekki hvort það muni nokkurn tímann gerast,“ segir Helga í sam­ tali við DV. Helga segir að þar til sonur hennar varð 18 ára hafi í raun gengið nokkuð vel að útvega honum þann stuðning sem hann þarf. Þegar hann varð sjálfráða varð róðurinn skyndilega mun þyngri. Árið 2015, þegar sonur Helgu var á átjánda ári, sótti hún um sérstakt búsetuúrræði fyrir hann. Planið var að hann flytti að heiman og á sambýli þar sem íbúar hafa sitt eigið rými með eldhúsi, stofu og svefnherbergi. Helgu var sagt að biðtíminn væri venjulega þrjú til fjögur ár. Síðan eru liðin fimm ár liðin og ekkert búið að gerast. „Ég vissi mætavel að biðin yrði löng. En ekki svona löng. Mín mistök voru einna helst þau að vera ekki með frekju og minna ekki nógu mikið á okkur.“ Helga segir að þegar hún hafi farið að grennslast fyrir um svör hafi henni verið bent á að sækja um almenna íbúð hjá Félagsþjónustunni, með sértækum stuðningi. „Það er sniðið þannig að hann fær manneskju heim til sín, einu sinni á dag, til að hjálpa hon­ um með þessi „basic“ atriði eða minna hann á þau, öllu heldur.“ Helga sótti um slíka íbúð á seinasta ári og það sama tók við, endalaus bið sem stendur enn. „Ég hélt í sakleysi mínu að það hefði verið sótt um hana líka á sama tíma og hitt, en svo kom í ljós að svo var ekki, þannig að ég sótti um íbúðina í mars 2019. Þau sáu reyndar aumur á okkur eftir að ég sendi ráðgjafanum hans, félagsmálastjóra og bæjarstjóra Kópavogs skammarpóst. Þá settu þau umsókn hans frá 2015 í sama ferli, eða sem sagt eins og hann sé búinn að bíða síðan þá líka í al­ menna kerfinu.“ Helga segist hafa stungið upp á að bærinn leigði íbúð af leigu­ félagi og áframleigja hana til sonarins. Henni hafi verið sagt að slíkt væri aldrei gert neins staðar. Hún segist engu að síður vita frá fyrstu hendi að gripið hafi verið til þessa ráðs í öðrum sveitarfé­ lögum. Hún bendir á að sonur hennar muni seint geta öðlast nokkurt sjálfstæði á meðan hann er neyddur til að búa hjá móður sinni. Sjálf kveðst hún vera orðin langþreytt. „Eins mikið og ég elska þennan strák, þá er ég bara búin að missa tökin á því sem hann þarf á að halda og það þarf hreinlega einhver fagaðili að taka við keflinu.“ Helga segist mæta því viðmóti Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is „Ef ekkert verður gert þá mun ég missa barnið mitt“ M Y N D IR : E Y Þ Ó R Á R N A S O N Framhald á síðu 22

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.