Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2020, Side 30
30 PRESSAN 7. febrúar 2020
Í
rúmlega fjóra áratugi hefur
ráðgátan um hvarf Lucan lá-
varðar sett mark sitt á um-
ræðuna í Bretlandi. Hann hef-
ur margoft „sést“ víða um heim,
til dæmis í Afríku, Hollandi og
San Francisco, sem hippi á Ind-
landi og á Nýja-Sjálandi þar
sem hann var sagður búa í Land
Rover-bifreið með geit sem hét
Camilla. Einn vina Lucan sagði
að hann hafi skotið sig á sínum
tíma og líkið hafi verið notað sem
fæða fyrir tígrisdýr í dýragarði
sameiginlegs vinar þeirra. Eigin-
kona hans, sem fór varla úr húsi í
fjóra áratugi, hélt því alla tíð fram
að hann hefði hoppað fyrir borð
af ferju og hafi lent í skrúfu henn-
ar. Ekkert af þessu reyndist á rök-
um reist.
Ef Lucan er á lífi þá er hann
orðinn 85 ára. Hann var þó úr-
skurðaður látinn af breskum
dómstól fyrir fjórum árum. En
af hverju þessi áhugi á honum?
Ástæðan er að fyrir 46 árum myrti
hann barnapíu fjölskyldunnar,
sem hét Sandra Rivetts, og hvarf
síðan sporlaust. Málið hefur alla
tíð síðan verið nokkuð ofarlega
á baugi í Bretlandi. Margir hafa
tengt hvarf Lucan við að hann
hafi notið aðstoðar vina sinna úr
efri stéttum samfélagsins til að
láta sig hverfa. Málið hefur ver-
ið tengt við það sem sumir segja
ákveðin forréttindi hinna ríku og
valdamiklu.
En nú segir sonur Söndru að
hann hafi hitt Lucan. Hann segir
Lucan búa í Ástralíu, að hann sé
alvarlega veikur og sé búddisti.
Það er því hugsanlegt að nú sé
þetta dularfulla mál við það að
leysast. Sonurinn, sem heitir Neil
Berriman og er 52 ára, vonast til
að nú verði loksins hægt að draga
Lucan lávarð fyrir dóm.
„Ég held að mér hafi tekist að
hafa uppi á Lucan lávarði sem
myrti mömmu. Hann hefur verið
á lífi allan þennan tíma. Logið til
um hver hann er. Logið að nýjum
vinum sínum,“ sagði Berriman í
samtali við Daily Mirror.
Fjárhættuspilari og morðingi
Lucan lávarður, sem hét eða heit-
ir í raun Richard John Bingham,
var sjöundi jarlinn af Lucan.
Hann var þekktur fjárhættu-
spilari. Hann kvæntist Veronicu
Duncan 1963. Hann hafði sest í
helgan stein 25 ára að aldri eft-
ir að hafa unnið milljónir í fjár-
hættuspilum.
Hjónin eignuðust þrjú börn og
bjuggu í glæsilegu húsi í Belgrave
í Lundúnum. En upp úr sauð á
milli þeirra hjóna eftir frekar stutt
hjónaband og á endanum flutti
Lucan frá eiginkonunni. Hófst
þá bitur barátta um forræðið yfir
börnunum.
Að kvöldi 7. nóvember 1974
sváfu börnin, Frances, 9 ára,
George, 7 ára og Camilla, 3 ára,
vært. Móðir þeirra var að horfa
á sjónvarpið í svefnherberginu.
Barnapían, Sandra Rivett, 29
ára, fór niður á aðalhæðina til að
sækja te handa húsmóðurinni.
Búið var að taka peruna úr peru-
stæðinu í eldhúsinu og í myrkr-
inu var ráðist á Söndru og hún
barinn til dauða með járnröri. Frá
upphafi hefur verið talið víst að
þar hafi Lucan lávarður verið að
verki en talið að þarna væri eigin-
kona hans á ferð.
Síðar skýrði lafði Lucan frá því
að hún hefði komið niður í eld-
húsið skömmu síðar og komið að
eiginmannin sínum. Hann hefði
ráðist á hana með járnrörinu og
reynt að kyrkja hana og þrýsta
augunum úr augnatóftunum.
Hún sagðist hafa náð taki á kyn-
færum hans. Hún grátbað hann
um að þyrma lífi sínu og bað um
eitt vatnsglas. Því næst hljóp hún
alblóðug út og inn á nærliggjandi
bar, Plumber‘s Arms, og öskraði:
„Hjálpið mér! Hjálpið mér!
Hann er í húsinu. Hann myrti
barnapíuna.“
Þegar lögreglan kom á vettvang
blasti blóðpollur við á aðalhæð-
inn og í honum var karlmanns-
fótspor. Lík Söndru lá í póst-
poka. Lucan lávarður var horfinn
af vettvangi, hafði flúið í bíl sem
hann hafði fengið lánaðan hjá
góðum vinum sínum. Hann sagði
þeim að eiginkona hans hefði
sakað hann um að hafa ráðið leig-
umorðingja til starfa og af þeim
sökum þyrfti hann að láta lítið
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is
„Veist þú að skilgreining
á sótthita breytist eftir aldri?
Thermoscan eyrnahita-
mælirinn minn veit það.“
Braun Thermoscan
eyrnahitamælar fást í öllum
lyfjaverslunum
ThermoScan® 7
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
Ráðgátan um
Lucan lávarð
n Hefur litað umræðuna í Bretlandi í fjóra áratugi n Myrti barnapíu og hvarf sporlaust
Hjónin Hér
sést lávarður-
inn með eig-
inkonu sinni,
Veronicu.