Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2020, Síða 31
PRESSAN 317. febrúar 2020
fyrir sér fara um hríð. Þremur dög-
um síðar fannst bíllinn, útataður í
blóði í Newhaven í East Sussex. En
ekki fannst tangur né tetur af Luc-
an lávarði. Þegar hraðbátur hans
fannst mannlaus og nær ónýt-
ur eftir árekstur var talið að hann
hefði siglt á haf út og fyrirfarið sér.
En líkið fannst aldrei eða nokkuð
annað sem studdi þetta.
Úrskurðaður látinn
Ári síðar komst kviðdómur að
þeirri niðurstöðu að Lucan lávarð-
ur hefði að öllum líkindum myrt
Söndru Rivett. Yngsti sonur henn-
ar, Neil Berriman, sem var gefinn
til ættleiðingar aðeins sex mánaða
að aldri, vissi ekki hver líffræðileg
móðir hans var fyrr en fyrir þrett-
án árum þegar fósturmóðir hans,
Audrey, lést. Þegar hann opn-
aði umslagið, sem hann fékk eftir
andlát hennar, komst hann að því
að Sandra Rivett var móðir hans
og að hún hefði verið myrt þegar
hann var sjö ára. Síðan þá hefur
hann leitað að morðingja hennar.
Þegar Lucan lávarður var úr-
skurðaður látinn 2016 og son-
ur hans, George, fékk að taka tit-
il hans sem áttundi jarlinn af
Lucan, fékk Berriman bréf með
ábendingu um að Lucan lávarð-
ur væri enn á lífi. Berriman hef-
ur á undanförnum árum helgað
líf sitt leitinni að Lucan lávarði.
Nú hefur honum, að því að hann
heldur fram, tekist að hafa upp á
morðingja móður sinnar.
Hann segir að Lucan lávarð-
ur búi í Ástralíu og hafi gert árum
saman. Hann hafi í fyrstu búið í
Perth en eftir að hafa margoft lent
upp á kant við vini sína hafi hann
hann flutt í annan landshluta. Þar
hafi hann búið síðustu ellefu árin
með tveimur ungum Bretum og
Ástrala. Þeim hafi hann kynnst í
athvarfi fyrir búddista fyrir ellefu
árum. Berriman segir að þeir
stundi hugleiðslu saman daglega.
Vinirnir staðfestu við Daily
Mirror að eldri Englending-
ur, sem líkist Lucan lávarði, búi
í húsinu. Berriman segir að þeir
viti vel að maðurinn sé dularfull-
ur, eldri Englendingur og ekki sá
sem hann segist vera. Vinina hafi
grunað eitt og annað um mann-
inn árum saman. Maðurinn er
sagður þarfnast mikillar daglegr-
ar aðstoðar vegna heilsu sinnar og
að hann bíði nú eftir að komast í
stóra aðgerð á sjúkrahúsi.
Berriman er sannfærður um að
Lucan lávarður hafi yfirgefið Eng-
land á lífi þessa örlagaríku nótt
fyrir 46 árum og hafi notið aðstoð-
ar vina sinna við að komast yfir
Ermarsund. Hann hafi fengið nýtt
vegabréf og nafn og sé á lífi í dag,
85 ára. Hann segist hafa heimild-
ir fyrir að Lucan lávarður hafi not-
ast við að minnsta kosti sex mis-
munandi nöfn í gegnum tíðina.
Hann hefur kynnt Scotland Yard
þau gögn sem hann hefur aflað og
vonast nú til að lögreglan rannsaki
málið frekar. n
Lögregluvakt Fyrir
utan heimili lávarðsins,
daginn eftir morðið.
Leikur í tré
Veronica með
börnin tvö.
Hin myrta
Sandra Revitt.
Leitin mikla Leitað að lávarðinum árið 1974.
„Lucan er
svikahrappur
og það var hann sem
myrti móður mína