Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2020, Page 2
2 14. febrúar 2020FRÉTTIR
Íslendingar sem voru sakaðir um lagastuld
Drama vegna Debut
Árið 1995 var mál dómtekið í
London á milli tónlistarfólksins
Simons Lovejoy og Bjarkar
Guðmundsdóttur. Lagði Lovejoy
fram kæru á hendur Björk fyrir
lagastuld vegna fyrstu sóló-
breiðskífu hennar, Debut. Björk
hafði að lokum sigur í málinu og
greiddi breska ríkið málskostnað
Lovejoy.
Undir áhrifum Rihönnu
Í fyrravor myndaðist mikil
umræða um gífurleg líkindi
með lagi Friðriks Ómars í
Söngvakeppni Sjónvarpsins
og laginu Love on the Brain
sem Rihanna gerði vinsælt
árið 2016. Friðrik Ómar
kippti sér lítið upp við þessa
umræðu. Hann komst þó ekki
áfram það árið.
Millikafli að láni?
Þegar Selma Björnsdóttir
keppti í Eurovision árið 2005
með lagið If I Had Your Love
þótti mörgum ekki ólíklegt að
millikafli lagsins væri beint
tekinn úr laginu We Are All
to Blame með hljómsveitinni
Sum 41. Selma tjáði sig um
málið á þessum tíma og taldi
þetta vera bæði fráleitt og
tilviljanakennt.
Enginn eins og hann
Við upphaf þessa árs veltu
margir fyrir sér líkindum lagsins
Enginn eins og þú, eftir Auðun
Lúthersson, og lagsins On My
Mind með hljómsveitinni Leisure.
Auðunn er betur þekktur undir
nafninu Auður en umrætt lag var
gefið út í júlí 2019 og naut mikilla
vinsælda hér á landi. Lag Leisure
var gefið út í apríl á sama ári en
lögin eru keimlík að mati margra
netverja.
Segðu mér allt
Birgitta Haukdal var einnig á
meðal íslenskra Eurovision-þátt-
takenda sem lentu undir smá-
sjánni vegna meints lagastulds.
Þetta var árið 2003 þegar lagið
Open Your Heart var framlag
okkar Íslendinga og þótti fulllíkt
laginu Right Here Waiting eftir
bandaríska tónlistarmanninn
Richard Marx. Úrskurðarnefnd
STEF hafnaði að lokum þessum
líkindum.
Á þessum degi,
14. febrúar
1942 – Bandalag starfsmanna ríkis
og bæja (BSRB) var stofnað á Íslandi.
1945 – Sýning var opnuð á málverk-
um Jóhannesar Kjarvals í Listamanna-
skálanum í Reykjavík.
2003 – Ærin Dolly, fyrsta klónaða
spendýrið, drapst.
2005 – Stórvefurinn YouTube fór í
loftið.
2015 – Maður hóf skothríð í menn-
ingarhúsi í Kaupmannahöfn.
Fleyg orð
„Því meira sem við reiðum
okkur á eignir, því minna
reiðum við okkur á okkur
sjálf.“
– Bruce Lee
Íslenskt flöskuskeyti
fannst eftir níu
mánuði í sjónum
F
löskuskeyti sjö ára íslenskrar stúlku ferðaðist mörg þúsund kíló-
metra áður en það fannst við strendur norðvesturhluta Frakk-
lands. Amma stúlkunnar kveðst gáttuð yfir því hversu langt
skeytið náði en níu mánuðir liðu þar til svar barst til Íslands frá
Frakklandi.
Hin 7 ára gamla Emelía Rós var í heimsókn hjá ömmu sinni, Krist-
björgu Sigurvinsdóttur, þegar upp kom sú hugmynd að senda flösku-
skeyti. Franski miðilinn Le Télegramme ræddi við Kristbjörgu á dögun-
um.
„Ég ætlaði ekki að trúa þessu,“ segir Kristbjörg en skeytinu var hent
í sjóinn við stendur Íslands þann 17. mars í fyrra.
„Emelía var í heimsókn hjá mér í Kópavoginum og við fórum í
fjöruferð á Kársnes. Okkur finnst æðislegt að vera í fjörunni og leita
að kröbbum og skeljum,“ segir Kristbjörg og bætir við að þarna hafi
kviknað hjá þeim hugmyndin um henda flöskuskeyti í sjóinn og bíða
svo og sjá hvort að það fyndist. Þegar heim var komið skrifuðu þær
litla orðsendingu á miða og komu blaðinu fyrir í flösku. Í skeytinu
kom fram heimilisfang Kristbjargar og báðu þær viðtakandann um að
senda þangað svar.
Það vildi svo til að afi Emelíu var á leið á veiðar á bátnum sínum og
tók hann að sér að fleygja flöskuskeytinu í hafið á Faxaflóa.
„Ég verð að viðurkenna að ég var með örlítið samviskubit yfir því
að vera að henda plastflösku í sjóinn,“ segir Kristbjörg, en hún segist í
staðinn hafa heitið því að vera enn duglegri en áður við að hirða rusl á
gönguferðum sínum.
Það var síðan í byrjun janúar síðastliðinn að Kristbjörgu barst bréf
frá frönskum manni, Jean Marc, og konunni hans. Þau hjónin höfðu
verið í gönguferð á ströndinni við bæinn Plouhinec á suðvesturhorni
Bretagne þegar þau fundu flöskuna frá Íslandi.
Kristbjörg segir þær stöllur í skýjunum yfir því að flöskuskeytið hafi
fundist. „Okkur langar að þakka Jean Marc og konunni hans fyrir að
svara okkur,“ segir Kristbjörg en hún kveðst einnig vera þakklát þeim
hjónum fyrir að láta sér annt um umhverfið og taka upp flöskuna í stað
þess að hunsa hana eins og hvert annað rusl.
Þær Kristbjörg og Emelía Rós röktu leið skeytisins á heimskorti. „Við
erum ennþá gáttaðar á því hvernig skeytið gat endað þarna í Bretagne.
Satt að segja þá átti ég von á að skeytið myndi reka á land einhvers
staðar skammt í burtu, í fjörunni á Íslandi,“ segir Kristbjörg jafnframt
en þær stöllur eru ákveðnar í að heimsækja Plouhinec í nánustu fram-
tíð. n
Plouhinec. Ljósmynd/Wikipedia
Emelía Rós og Kristbjörg.
Ljósmynd/Le Télegramme
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is