Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2020, Blaðsíða 8
8 UMRÆÐA
Sandkorn
14. febrúar 2020
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru
hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
Aðalnúmer: 512 7000
Auglýsingar: 512 7050
Ritstjórn: 512 7010
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson
Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Ritstjóri: Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Prentun: Torg prentfélag Dreifing: Póstdreifing
Suðurlandsbraut 14
2. hæð
FRÉTTASKOT
512 7070
ABENDING@DV.IS
Spurning vikunnar Hver er uppáhaldsmálshátturinn þinn?
„Fátt er svo með öllu illt að ei boði gott.“
Ásgeir Jónsson
„Þessi er mjög dæmigerður fyrir mína hugsun sem
sálfræðingur og borgarfulltrúi: Of seint er að byrgja
brunninn þá barnið er dottið ofan í.“
Kolbrún Baldursdóttir
„Ég er náttúrulega málsháttadrotting Íslands – mikið
búið að gera grín að mér þegar ég gríp í málshætti og fer
rangt með þá.
Ég ætla því að leggja hér inn besta, umbreytta máls-
háttinn minn sem uppáhaldið mitt: „Það geta ekki allir
kastað grjóti úr steinhúsi“.“≈
Vigdís Hauksdóttir
Brengluð lífskjör
Þ
egar maður slær sér á lær
yfir öllu volæðinu sem ein
kennir fréttir þessa dagana
kemur sprengilægðin inn
eins og stormsveipur og sannfær
ir mann um að það sé vart búandi
á þessu skeri. Það var ekki nóg
að álverið væri í bobba, Wuhan
kórónaveiran haldi fyrir manni
vöku á næturnar, að rifist sé um
sýndarmennsku á góðgerðar
viðburði og allt logi í illdeilum á
Hafró, þá þurfti að demba á okkur
enn einu óveðrinu.
Það sem hefur án efa verið
mest áberandi í fréttum í þessari
viku og þeirri á undan er án efa
verkfallsaðgerðir Eflingar sem
beinast í þessu holli að Reykja
víkurborg. Sprengilægðin á ekk
ert í þær aðgerðir. Það er magn
að að fylgjast með andstæðingum
verkfalla sem hæst hafa; karl
menn um og yfir miðjan aldur,
allir á asskoti fínum launum,
sem skamma Eflingu fyrir barátt
una, fullyrða að verkfallsaðgerð
ir komi af stað höfrungahlaupi
og stefni Íslandi í glötun, nánast.
Segja margir hverjir að verkföll
hafi aldrei neinu skilað, þrátt fyrir
að verkfallsaðgerðir séu öflugasta
vopn verkalýðsins og til þeirra
gripið þegar öll önnur sund lok
ast.
Vissulega eru verkföll blóðug
og koma illa við marga, það þarf
ekkert að fjölyrða um það. Hins
vegar er þetta afar mikilvægt tól
þegar ekki er hlustað, þegar ráða
mönnum og fyrirtækjaeigendum
er fyrirmunað að setja sig í spor
vinnandi fólks í lægstu þrepum
samfélagsins. Ég vona að Efling
haldi í hörkuna og sætti sig ekki
við eitthvert kropp, eins og stund
um hefur gerst í sögu verkfalla á
Íslandi, sérstaklega þegar kem
ur að hinum svokölluðu kvenna
stéttum. Það er fátt meira „anti
climax“ en að fylgjast með hat
rammri verkfallahrinu sem endar
með lítilfjörlegum og skammar
legum samningum.
Hitt er svo það að ég vona inni
lega að þessar verkfallsaðgerðir
verði til einhvers stærra og meira.
Nú er unnið að því að koma lág
markslaunum upp í fjögur hund
ruð þúsund krónur í nánustu
framtíð. Það er algjörlega galið
að Ísland sé orðið það dýrt að lág
markslaun þurfi að vera svona
há. Af hverju þarf Ísland að vera
svona dýrt? Af hverju er húsnæð
ismarkaðurinn svona rotinn?
Af hverju stundar lánastofnun á
vegum ríkisins svo hatrammar
innheimtuaðgerðir í húsnæðis
lánum? Af hverju tekur það mig
ævina að borga upp námslán
in mín? Af hverju fékk ég ekki
einhverja niðurfellingu fyrir að
standa mig vel? Af hverju titrar
og skelfur debetkortið mitt alltaf
þegar ég fer í Bónus? Af hverju
þarf ég að borga fyrir að bíða á
bráðamóttökunni klukkutímum
saman og af hverju er ekki séns
að lifa hér á lágum launum í starfi
sem maður elskar?
Af hverju?
Eftir heilt ár þar sem varla var
talað um annað en stöðugleika
og góða fjárhagsstöðu ríkisins
blasir nú við djúp efnahagslægð,
þannig að ekki er ástandið að
fara að batna. Yfirvöld og aðil
ar vinnumarkaðarins halda lífs
kjarasamningi hátt á lofti og berja
sér á brjóst. Þessi samningur á að
vera svar við öllu en það er nán
ast móðgun að tengja hann á ein
hvern hátt við lífskjör. Lífskjör eru
ekki fólgin í því að fá að hætta
53 mínútum fyrr í vinnunni eða
hækka í launum um nokkur þús
und krónur á ári. Lífskjör eru
fólgin í því að ég geti haft öruggt
þak yfir höfuðið og að börnin mín
geti farið með hollt og gott nesti
í skólann og iðkað tómstund
ir sem þau kjósa sjálf. Lífskjör er
að finna í minna álagi á vinnu
stað, að hann sé vel mannaður
svo ófremdarástand skapist ekki
ef einhver verður veikur. Þau eru
fólgin í betra fæðingarorlofskerfi,
betra heilbrigðiskerfi, betra
námslánakerfi.
Þessi umræða er nauðsynleg
ur fylgifiskur verkfallsaðgerða Efl
ingar. Ráðamenn þurfa bara að
þora að ræða þessa hluti af hrein
skilni en ekki blása sandi í augun
á okkur sí og æ. n
Leyndarhjúpurinn
Fyrrverandi formaður og
stjórnarmaður Gagnsæis, sér
stakra samtaka gegn spillingu,
Jón Ólafsson sá siðlegi – sem er
á sérstökum samningi við rík
isstjórnina – situr í stjórn RÚV
og hefur þar lagt sig fram um
að sveipa opinbera ráðningu
á útvarpsstjóra þjóðarinnar
sérstökum leyndarhjúp. Það
er þó virðingarvert af Jóni að
segja sig frá stjórnarstörfum
Gagnsæis rétt áður en hann
stóð að þeirri ákvörðun stjórn
ar ríkisfjölmiðilsins að halda
sérstakri leynd yfir umsækj
endum um hið opinbera starf
útvarpsstjóra. Skjótt skipast
veður í lofti.
Ekkert að sjá hér
Norski bank
inn DNB sagði
upp öllum við
skiptum við
Samherja eftir
að upp komst
um vafasama
viðskiptahætti fyrirtækisins í
Namibíu. Björgólfur Jóhanns
son, forstjóri fyrirtækisins,
snýr út úr, segir þetta gaml
ar fréttir og að engin lánavið
skipti hafi verið stunduð við
DNB. Hann gerir lítið úr því að
erlend stórfyrirtæki slíti tengsl
við Samherja út af Namibíu
braskinu. Þessu eigum við að
gleypa við enda er það vinsælt
viðkvæði hér á landi að út
lönd séu slæm – Ísland sé gott.
Einmitt.
Leiðari
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
lilja@dv.is
Litadýrð í Listasafni Reykjavíkur
Verkið Chromo Sapiens eftir Hrafnhildi Arnar-
dóttur/Shoplifter.
M
Y
N
D
: E
Y
Þ
Ó
R
Á
R
N
A
S
O
N
Þar sem ekki eru nema
tveir mánuðir í pásk-
ana er tímabært að
bursta rykið af sínum
bestu málsháttum,
enda eru þeir órjúfan-
legur hluti páskanna.
Allavega að mati
blaðamanns. Til að
hjálpa til við upprifjun
fengum við nokkra
góða landsmenn til að
deila með okkur sínum
uppáhaldsmálshætti.