Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2020, Síða 10
n Lærði fljótt að sjá fegurðina í einverunni n Öll okkar orka fór í að láta þetta virka
„Margir sjá
sækópata í mér“
S
nævar Darri Ingólfsson
leikari útskrifaðist frá
leiklistardeild Arts Ed
School of Acting í London
árið 2003 og segir verkefnalistann
orðinn helvíti langan síðan þá.
Darri, eins og hann er alltaf
kallaður, hefur nú dvalið í borg
englanna í tuttugu ár og unir hag
sínum vel enda erfitt að sakna
íslenska slabbsins.
Darri ól snemma með sér
leikaradraum en hann flutti til
London tæplega tvítugur þar
sem hann nam leiklist. Stefnan
var þó alltaf sett á stóra tjaldið
í Hollywood. „Ég var heppinn
að landa fyrsta hlutverkinu
mínu skömmu eftir útskrift hjá
Donmar Warehouse-leikhúsinu
í London. Eins gaman og mér
fannst að leika á sviði setti ég
alltaf stefnuna á kvikmyndaleik
– það var ástæðan fyrir því að
ég lagði í leiklistina. Mig langar
að búa til bíómyndir. Ég setti því
snemma stefnuna á Bandaríkin
og sjö árum eftir útskrift var ég
mættur til Los Angeles með eina
ferðatösku og þekkti ekki sálu.
Það var þó ekkert á við þá
áskorun að flytjast fyrst til
London, því fram að því hafði ég
alltaf átti stóran vinahóp á Íslandi
og alltaf umkringdur fólki, en
þarna var ég skyndilega aleinn.
Við leigðum fjögur saman og það
var alveg frábær tími, ég eignaðist
fljótt góða vini sem ég held í dag
enn góðum vinskap við, en ég
viðurkenni að það var erfitt að
vera svona einn þótt það hafi á
sama tíma verið það besta sem
kom fyrir mig. Ég lærði fljótt að
sjá fegurðina í einverunni og um
leið að íhuga allt sem áður hafði
gengið á í lífi mínu. Ómeðvitað
komst ég svo áfram yfir í næsta
kafla í lífi mínu.“
Ósofinn og útataður blóði
Að öðlast landvistarleyfi í
Ameríku er fjandanum erfiðara
og Darri segir biðina eftir græna
kortinu hafa tekið talsvert á
taugarnar. Hann hafði þó ekki
dvalið lengi við þegar ástin
barði að dyrum.
„Ég kynntist konunni minni
rétt tæpum sex mánuðum eftir að
ég fluttist hingað út en hún starfar
sem sálfræðingur og ljósmyndari
hér í borg. Við kynntumst á
stefnumótaforriti, en á þessum
tíma var ég nýfluttur út og hafði
ákveðið að eyða jólunum í Los
Angeles þrátt fyrir að þekkja varla
nokkurn mann. Ég vildi standa
með þeirri ákvörðun minni að
flytja hingað og vera úti yfir jólin
þótt tilhugsunin um það væri ögn
ógnvekjandi. Ég endaði á að fara
á eitt stefnumót í gegnum þessa
netsíðu og það reyndist vera við
Michelle. Í dag hef ég búið jafn
lengi erlendis og ég hef búið á Ís-
landi og kynnst mörgu góðu fólki
hér úti, bæði af erlendum upp-
runa og Íslendingum sem búa
hér. Ég er heppinn með allt þetta
góða fólk í lífi mínu og þakklátur
fyrir það.“
Saman eiga þau Darri og eig-
inkona hans, Michelle Datuin,
börnin Nolan Darra og Köru en
rúmt ár er á milli systkinanna.
Koma frumburðarins, Nolans,
í heiminn var þó með nokkuð
dramatískum hætti.
„Ég var staddur í miðjum tök-
um á Dexter þegar Michelle
missti vatnið og í kjölfarið heyrði
ég í framleiðenda þáttanna sem
gaf mér leyfi til að rjúka upp á
fæðingardeild. Tæpum klukku-
tíma eftir að sonur okkar kom í
heiminn hentist ég af stað aftur í
tökur, ósofinn og útataður blóði.
Þegar ég settist í förðunarstólinn
brotnaði ég svo gjörsamlega nið-
ur, en þetta var dæmalaust magn-
aður dagur.“
Framtíðin algjör óvissa
Á fyrsta afmælisdegi Nolans
komust hjónin að því a ð annað
barn væri á leiðinni og þótt frek-
ari barneignir hefðu ekki verið
formlega settar á stefnuskrána
segist Darri gríðarlega glaður og
þakklátur enda hafi stefnan alltaf
verið að eiga fleiri en eitt barn.
„Daginn sem við komumst að
því að Michelle var ófrísk í fyrsta
sinn var ég að vinna sem þjónn
á bar. Við áttum þrjú hundruð
dollara á bankareikningi og þótt
við hefðum planað það barn
var framtíðin fullkomin óvissa.
Tveimur vikum síðar fékk ég svo
hlutverk Olivers Saxo í sjónvarps-
þáttunum Dexter, ég hef ekki bók-
að mig í margar prufur af þáttum
sem ég þekki eða hef horft á sjálf-
ur, en þarna var ég vel kunnug-
ur. Þess vegna var það enn meiri
heiður fyrir mig að vera ráðinn
inn í síðustu seríuna og fyndið að
hugsa til þess hversu margir leik-
stjórar sjá einhvern sækópata í
mér, eins og ég er nú næs gaur.“
Darri lýsir ferlinu fyrir hlut-
verkið af mikilli innlifun en hann
var prófaður í þrjú mismunandi
hlutverk.
„Það ríkti mikil leynd yfir
þessu öllu saman og umboðs-
maður minn mátti ekki einu sinni
vita neitt. Daginn eftir prufurn-
ar, þar sem ég hafði prófað þrjú
mismunandi hlutverk, fékk ég
svo hringingu þar sem mér var
sagt að ég yrði vondi karlinn. Ég
varð auðvitað rosalega spenntur
enda mun stærra hlutverk en ég
hafði þorað að vona að hreppa
og algjör draumur að ganga inn
í þetta sett. Þau voru þarna að
skjóta sjöundu seríu og allt eins
og vel smurð vél, svo þrátt fyrir
langa tökudaga var yndislegt að
vinna með öllu þessu fólki. Þetta
er óneitanlega það stærsta sem
ég hef gert hingað til hér úti og
ég hlakka mikið til að ná að festa
mig í þáttum sem „series regular“
enda breytast launin talsvert við
það, en fyrsta hlutverkið sem ég
fékk var einmitt í þáttum þar sem
ég átti að vera í einum þætti en
leikstjóranum leist svo vel á mig
að hann framlengdi minn karakt-
er í sjö af tíu þáttum. Þetta var í
sjónvarpsþáttunum Last Resort
og hlutverkið opnaði óumdeil-
anlega margar dyr fyrir mig, sem
óbeint komu mér á þann stað að
ég endaði á, á fundi með umboðs-
aðilunum sem voru að leita að
leikurunum fyrir Dexter.“
Straujar út íslenska hreiminn
Spurður hvernig Ameríkanar taki
í íslenska hreiminn segist Darri
strax hafa fundið sér fagmann til
að strauja út hljóðin sem hann
kunni sjálfur ekki að fást við.
„Auðvitað eru mismunandi
hreimar hér í Ameríku og þetta er
eflaust barátta sem ég mun alltaf
þurfa að eiga í. Hér eru margir
sem berjast um sama bitann og
þótt ég standi eflaust jafnfæt-
is einhverjum hvað leikræna til-
burði varðar hafa innfæddir alltaf
tungutakið fram yfir mig. Ég tók
samt strax meðvitaða ákvörðun
um að láta hreiminn ekki stoppa
10 14. febrúar 2020FRÉTTIR
Íris Hauksdóttir
iris@dv.is
Fjölskyldan Darri og Michelle með börnum sínum.
Tveir á setti Darri ásamt aðalleikara Dexter, Michael C. Hall.
„Ég skildi ekki neitt í
neinu þarna