Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.2020, Qupperneq 14
14 FÓKUS 14. febrúar 2020
n Ólöf sá húmorinn í grafalvarlegri lífsreynslu
n Hugmyndin kviknaði með „leiðinlegri færibandavinnu“
Þ
að að geta hlegið að
ákveðnum veruleika á
meðan tekist er á við hann
sendir oft sterkari skila-
boð og skilur meira eftir sig. Það
getur átt til með að vera svo-
lítið þungt ef maður fer alla leið í
dramanu, eða það er að minnsta
kosti áhættan,“ segir Ólöf Birna
Torfadóttir, kvikmyndagerðar-
kona og mikil áhugamanneskja
um þá list að blanda saman alvar-
leika og hnyttnu gríni sem sækir
í ákveðinn sannleika, eins og hún
orðar það.
Undanfarin ár hefur Ólöf
sankað að sér talsverðri reynslu
í sínu fagi eftir að hún lauk námi
af handrits- og leikstjórnarbraut
Kvikmyndaskóla Íslands árið
2016. Auk þess að hafa gegnt
fjölmörgum hlutverkum í ýms-
um verkefnum og þar á meðal
unnið á tökustað Game of Thro-
nes, stofnaði hún framleiðslufyr-
irtækið MyrkvaMyndir og vakti
jákvæða athygli með stuttmynd-
unum Millenium lausnir og Síð-
asta sumar. Hin síðarnefnda
var útskriftarverkefni Ólafar og
hlaut verðlaun á Los Angeles
Independent Film Festival sem
fram fór í ágúst 2016. Myndin
hlaut verðlaun í flokknum Best
Comedy/Dramedy, Foreign.
Síðasta sumar segir frá stúlku
sem er aftur flutt heim til for-
eldra sinna og fær vinnu í kjöt-
vinnslufyrirtæki þar í sveit. „Sú
mynd fjallaði um mjög persónu-
legt tímabil hjá mér, þannig að
ég ákvað að gera dramedíu út frá
því,“ segir Ólöf.
„Þetta fjallar allt um mjög
dramatíska hluti, en allt í kring-
um það spilast út með svo fárán-
legum hætti að það verður fyndið.
Það er oft þægilegt að nota húmor
til að vekja athygli á einhverju
þörfu. Þetta var allt saman mjög
fáránlegt en gerðist samt í raun.“
Annt um drusluna
Þessa dagana er Ólöf að leggja
lokahönd á sína fyrstu kvikmynd
í fullri lengd, sem frumsýnd verð-
ur þann þriðja apríl og ber heitið
Hvernig á að vera klassa drusla.
Þar segir frá tveimur ólíkum vin-
konum og uppákomum þeirra
þegar þær fara að vinna á sveita-
bæ yfir sumarið. Kvikmyndin
er lauslega byggð á lífi Ólafar og
hennar reynslu en hún eyddi sjálf
miklum tíma í sveit á yngri árum
og segir að henni þyki afskaplega
vænt um orðið drusla.
„Ég var oft kölluð drusla þegar
ég var yngri, en ekki samt í þeirri
meiningu sem við þekkjum flest í
dag,“ segir Ólöf. „Þetta fylgdi því
meira ef maður mætti eitthvert í
smá rifnum fötum, með úfið hár
eða var með gat á sokkunum.
Þetta var oft notað til að gera lítið
úr manni, og er að vissu leyti enn
gert í dag. Mér finnst titill þessar-
ar kvikmyndar berjast svolítið
gegn því.“
Þegar Ólöf varð eldri var orðið
notað í neikvæðri merkingu til
að lýsa klæðaburði eða hegðun á
unglingsárum og svo hefur þetta
orð einnig verið notað þó nokkuð
oft til að lýsa bílum hennar.
Ólafía og Ólöf
Aðspurð hvaða atvik úr tökum
hafi mest staðið upp úr rifjar
Ólöf upp daginn þegar hún fékk
stjörnuglampa í augun, þegar
hún hitti Ólafíu Hrönn Jónsdóttur
leikkonu. „Ég komst ekki yfir það
hvað mér fannst geggjað að leik-
stýra Ólafíu Hrönn. En að hitta
hana var eitt það vandræðaleg-
asta sem ég man eftir,“ segir Ólöf
og bætir við:
„Ég var mjög stressuð að vinna
með henni. Þegar hún kemur fer
ég og tek á móti henni. Ég kynni
mig og segi einfaldlega: „Hæ, ég
heiti Ólöf,“ og hún tekur í höndina
á mér og segir strax: „Nei.“ Ég
gleymi því seint hvað mér brá
mikið. Þetta er svolítið merki um
húmor hennar, en þetta setti mig
alveg úr jafnvægi, verandi svona
stressuð fyrir. Eftir þetta var ég
eins og algjör kjáni. Hún var samt
svo æðisleg og að þessum degi
loknum náði ég að tengjast henni
og fékk þetta móment þar sem við
ræddum hlutverkið.“
Þess má geta að Steinunn
Ólína Þorsteinsdóttir og Þor-
steinn Bachmann fara einnig
með hlutverk í kvikmyndinni, en
með aðalhlutverkin fara þær Ásta
Júlía Elíasdóttir og Ylfa Marín
Haraldsdóttir.
Leiðinleg færibandavinna
kveikti neistann
Ólöf segir það hafa skipt miklu
máli að hafa jafnt kynjahlutfall á
tökuliðinu og fer fögrum orðum um
framleiðsluteymið. Kvikmyndin er
að mestu tekin upp í Hvalfirði og
segir Ólöf að hugmyndin hafi byrj-
að að gerjast árið 2015, þegar hún –
líkt og aðalpersónan í útskriftarver-
kefninu – vann sjálf við kjötvinnslu.
„Ég var þarna í svo ótrúlega leiðin-
legri færibandavinnu það sumar
og þá hafði ég lítið annað að gera
en að festast í hausnum á mér.
Þarna var ég að vinna í sérfæðinu
og starfið gekk út á að mauka mat
allan daginn.“
Sagan varð smám saman til á
vinnustaðnum og Ólöf segir að
innblásturinn hafi komið frá henn-
ar reynslu, sögum annarra og
kostulegri eyðufyllinga. Þá bætir
hún við að umfang þessarar fyrstu
kvikmyndar hennar í fullri lengd
hafi endað á því að verða stærra en
vaninn er með frumraunir.
„Þetta varð allt svolítið stórt.
Þetta er í rauninni ekki þessi týpíska
byrjendamynd, sem hefur tvo leik-
ara og einn tökustað. Við höfðum
lítið fjármagn en bjuggum þarna
til heilt samfélag yfir þetta sumar
og notuðumst við fjölda tökustaða.
Þetta hafðist allt á endanum og við
fórum svolítið á hörkunni í gegn-
um allt. Það voru líka allir í teyminu
svo opnir og ólmir í að vera með. Ég
er mjög þakklát fyrir það.“
Með kvikmyndinni vonast Ólöf
til þess að hægt sé að brjóta þá
mýtu, ekki síður í augum borgar-
barna, að það sé leiðinlegt að vera
í sveitinni. Hún hvetur sem flesta til
þess að prófa það, að minnsta kosti
einu sinni ef ekki reglulega. n
Tómas Valgeirsson
tomas@dv.is
„Ég var
oft kölluð
drusla þegar
ég var yngri“